Ægir

Årgang

Ægir - 15.09.1955, Side 13

Ægir - 15.09.1955, Side 13
ÆGIR 235 Ný gerð af floivörpu til síldveiða Tilraunir með ýmsar gerðir af flot- vörpum hafa farið fram í mörgum lönd- um undanfarin ár. Hafa tilraunir þessar aðallega miðað að því að veiða síld eða aðra uppsjávarfiska. Einnig hér á landi hafa verið gerðar margvíslegar tilraunir í þessa átt, en án þess að nokkur teljandi árangur næðist. Til skamms tíma hefur að- eins ein gerð slíkrar vörpu gefið góðaraun, en það er hin svonefnda Larsenvarpa, sem notuð hefur verið til síldveiða í Skagerrak undanfarin ár. Er hún kennd við höfund sinn, sem er danskur netagerðarmaður. Tilraunir með þessa vörpu, sem er dreg- in af tveim bátum, hafa þó ekki borið árangur annars staðar. Um þessar mundir fara fram tilraunir hér við Suðvestur- land með þessa vörpu og er skýrt frá því á öðrum stað í blaðinu. Nýlega hafa hins vegar borizt af því fregnir, að vestur við Kyrrahafsströnd Kanada í British Columbia, hafi tekizt að veiða mikið magn af síld í nýja gerð flot- vörpu, sem dregin er af einum bát. Fylgir hér teikning af vörpu þessari eins og hún er í drætti en helzta einkenni hennar er að hlerarnir eru festir á vírinn alllangt fyrir framan vörpuopið, eða 30 faðma, og festir þar með 10 faðma löngum vír. Netið er allt úr nylon. Hefur fengizt mjög góð veiði í vörpu þessa og hafa náðst 20—30 smál. af síld í einu togi. Þar sem veiðarnar fara fram er strönd- in vogskorin og eyjar úti fyrir. Heldur síldin sig þar í sundunum og fara veið- arnar þar fram. Tilraunirnar voru gerðar á bát, sem er 62 fet að lengd með 170 ha vél. Bezt veiddist á kvöldin og nóttinni, þegar síld- in lyfti sér frá botni og svo undir dög- un, þegar hún færði sig að botninum aftur. Er hér vissulega um athyglisverðar til- raunir að ræða og hafa verið gerðar ráð- stafanir til að fá sem gleggstar upplýs- ingar um allt það, sem máli skiptir um veiðarfærið sjálft og allar aðstæður við veiðarnar. Fiskbitar Fyrirtækið „Birds Eye“ í Bandaríkj- unum, sem um langa hríð hefur verið brautryðjandi á sviði frystingar á mat- vörum, hefur hafið framleiðslu á nýrri vöru, sem nefnd er fiskbitar. Er þar um að ræða bita, sem í er fiskur og kartöfl- ur, kryddað. Eru bitar þessir soðnir og síðan frystir og geymdir og seldir þannig. I hverjum pakka eru 20 bitar, sem hús- móðirin þarf aðeins að hita upp, áður en þeir eru bornir fram. Ýmsar tegundir fisks eru notaðar í bitana. Sölutilraunir, sem gerðar hafa verið með þessa framleiðslu hafa leitt í Ijós, að neytendum líkar hin nýja framleiðsla vel. (,,Fishing Gazette“).

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.