Ægir - 15.09.1955, Síða 16
238
ÆGIR
Enda þótt ekki séu til fullnægjandi upp-
lýsingar um fiskneyzlu okkar íslendinga
mun mega telja víst, að við séum þar í
allra fremsta flokki meðal þjóðanna. Fisk-
ur er tvímælalaust aðalfæða meginhluta
þjóðarinnar, og er því ekki lítils um vert-,
að hann sé matreiddur á sem fjölbreyti-
legastan hátt.
Ægir vill fyrir sitt leyti stuðla að auk-
inni fjölbreytni í matreiðslu fisks og mun
framvegis birta leiðbeiningar um tilreiðslu
fiskrétta í trausti þess, að karlmennirnir,
sem efni ritsins er fyrst og fremst miðað
við, gefi húsmæðrunum tækifæri til að
færa sér í nyt þessar leiðbeiningar.
Eitt er sérkennilegt í fiskneyzlu manna
hér á landi en það er, að ein fisktegund
virðist hafa orðið útundan og ekki
fallið í smekk neytendanna. Er þó hér
um að ræða fisktegund, sem veidd er
meira en flestar aðrar og talin einn hyrn-
ingarsteinninn undir efnahagsafkomu
þjóðarinnar. Er hér átt við síldina. Lands-
menn virðast aldrei hafa komizt upp á
að neyta hennar almennt og er hún þó
af þeim, sem lært hafa að meta hana,
talin einn hinn ljúffengasti fiskur, sem
völ er á. Enda þótt síldarvertíðinni sé lok-
ið fyrir Norður- og Austurlandi er enn
víða um landið unnt að fá nýja síld til
matar. Hefur því verið valinn sá kostur
að hefja þessa leiðbeiningarstarfsemi á
nýrri síld. Rétt þann, sem hér verður
lýst, er mjög auðvelt að matreiða ef hrá-
efnið er gott, en nauðsynlegt er að síld-
in sé ný og óskemmd. Enda þótt smekk-
ur manna á mat sé eins margbreytilegur
og mennirnir eru margir er það von Ægis,
að réttur þessi sem og þeir, sem á eftir
kunna að koma, falli mörgum í geð.
Soöin ný síld.
4 síldar 1 laukur, meðalstór
3 dl. vatn 2 lárberjablöð
V2 dl. edik 1 tsk. salt
V2 tsk. pipar
Síldin er flökuð og piparnum stráð á
flökin. Flökin eru lögð saman tvö og tvö
og þunnar lauksneiðar lagðar á milli. Festa
má flökin saman með trépinnum. Bezt er
að sjóða síldina í pönnu eða djúpum bakka.
Vatnið ásamt edikinu, því sem eftir er
af lauknum og hinu kryddinu er soðið
í 10—15 mín. áður en síldin er sett út í.
Síðan er síldin soðin í um 10 mín. Gæta
skal þess þó, að síldin ofsjóði ekki. Brætt
smjör er borið með síldinni.
Leifarnar má geyma í soðinu á köld-
um stað og bera fram á kvöldborðið.
Fishstcngur í Bretlandi
Svo sem skýrt hefur verið frá áður í
Ægi hefur framleiðsla fiskstanga („fish
sticks“) farið mjög í vöxt í Bandaríkj-
unum undanfarin tvö ár og má gera ráð
fyrir, að áframhald geti orðið á því.
Nú berast fréttir af því, að í Bretlandi
hafi menn einnig hafið framleiðslu þess-
arar vöru með góðum árangri.
Tvö fyrirtæki í Grimsby hafa nýlega
hafið þessa framleiðslu, en áður höfðu
önnur tvö stór fyrirtæki gert tilraunir með
framleiðsluna og náð góðum árangri.
Telja fyrirtæki þessi, að eftirspurnin
sé nú orðin svo mikil, að þau eigi fullt
í fangi með að fullnægja henni.
Annað fyrirtækið í Grimsby, sem áður
getur, selur stengurnar ósoðnar. Hingað
til hefur eingöngu verið notaður þorskur
til framleiðslunnar en gert er ráð fyrir,
að bráðlega verði einnig farið að nota
aðrar fisktegundir.
(Fishing News).