Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.09.1955, Qupperneq 18

Ægir - 15.09.1955, Qupperneq 18
240 ÆGIR Afli brezkra togara 1954 Hámark Laun Afla- Lifrar- Fæðis- gamt hlutur hlutur pen. „The Fishing News“ birti fyrir skömmu yfirlit um aflabrögð og afkomu togara- flotans brezka á árinu 1954. Heildarlandanir í Grimsby, Hull og Fleetwood námu rúmlega 879 millj. punda (enskra) (mest þorskur), og er það um 7,1 millj. punda meira magn en á árinu 1953. Útgerðin fékk að meðaltali 4,96 „pence“ fyrir hvert pund (enskt) á móti 4,6 „pen- ce“ árið áður. Heildarverðmæti aflans nam því £ 19.033.281 á móti £ 16.936.322. Verðhækkunin er sögð stafa af aukinni eftirspurn og meiri gæðum (betri með- höndlun) fisksins. „Verð á þorskflökum til neytenda var 1 sh. 6 d. til 1 sh. 9 d. pr. pund, og er fiskur því — sem áður — ódýrasta fáanlega fæðutegundin, enda þótt ekki sé um niðurgreiðslur að ræða af hálfu hins opinbera". Hinn mikla mismun á verði því, er út- gerðin fær og neytandinn greiðir, kveður blaðið stafa af flökunar-, flutnings- og dreifingarkostnaði, og bætir því við, að þorskverð frá skipi hafi aðeins hækkað um 6% síðan 1951. Á árinu fórust þrír stórir togarar og samtals týndu lífinu 38 menn. Blaðið ræð- ir síðan afkomu togarasjómanna allýtar- lega og heldur fram þeirri skoðun, að erf- iðið, vosbúðin og áhættan, sem þessari at- vinnugrein eru samfara, réttlæti hlutfalls- lega hátt kaup og góð kjör. Einstaka skipstjórar komust upp í £ 6500 árstekjur á sl. ári og meðaltekjur háseta námu um £ 20 á viku. Eftirfarandi töflur gefa nánari sundur- liðun á kjörum togarasjómanna í Bret- landi: Skipstjóri £1.000 Stýrimaður - — Bátsmaður - 300 Háseti - 280 £5.500 £175 — £ 6.675 -4.000 -175 — -4.175 -1.200 -175 £75 -1.750 - 600 -175 -75 -1.130 Meðaltal: Skipstjóri - 700 Stýrimaður — Bátsmaður - 300 Háseti - 280 -3.500 -125 — - 4.325 -2.500 -125 — -2.625 - 840 -125 -75 -1.340 - 420 -125 -75 - 900 Greiðslur til skipverja nema um 30% heildarútgjalda útgerðarinnar (samanber grein í 8. tbl. Ægis). Kostnaðurinn við smíði og útbúnað ný- tízku togara er nú um £ 200 þús. saman- borið við £ 25—35 þúsund fyrir stríð. Stærðin er allt að 750 rúmlestum (stærri togarar eru sjaldgæfir) og búnir eru þeir öllum nýtízku veiði- og öryggistækjum. Meðalfjöldi veiðiferða er 14 á ári og meðalkostnaður við hverja ferð um £ 5500. Hinn hái stofn- og reksturskostnaður gerir það að verkum (segir „The Fishing News“), að fjöldi skipa er rekinn með tapi. Fiskverð hefur að vísu hækkað en ekki í hlutfalli við kostnaðarliðina. Veiðitilraunir með ..lAtrsenviirpti" Frctmh. af bls. 229. fyrstu fréttir af veiðitilraununum. Föstu- daginn 9. þ. m. lóðaði Ægir síld við botn rétt norður af Eldey. Samkvæmt tilvís- un Ægis komu Vestmannaeyjabátarnir Sjöfn og Gammur á vettvang. Toguðu þeir í klukkutíma með Larsenvörpu og höfðu þá fengið 50—60 tn. af síld. Þykir mönn- um þessi árangur spá góðu. ÆGIR rit Fiskifélags íslands. Kemur út hálfsmánaðarlega. Árgangurinn er rúmar 300 síður og kostar 35 kr. Gjalddagi er 1. júlí. Afgreiðslusími er 80500. Pósth. 81. Ritstjóri: Davíð Ólafsson. Prentað í ísafoldarprentsm.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.