Ægir - 01.04.1956, Síða 4
86
ÆGIR
afli í róðri varð 16 lestir 6. marz. Á sama
tímabili í fyrra varð afli 4 báta 101 smál.
í 17 róðrum.
Eyrarbakki. Frá Eyrarbakka reru 4 bát-
ar með línu. Gæftir voru slæmar; flest
farnir 3 róðrar. Mestur afli í róðri varð 6.
marz 12.3 lestir. Afli bátanna á þessu
tímabili var 65 lestir í 10 róðrum. Á sama
tímabili í fyrra var afli 5 báta 68 lestir í 14
róðrum.
Þorlákshöfn. Frá Þorlákshöfn reru 7
bátar; þar af voru 6 með línu en 1 með net.
Gæftir voru fremur slæmar; flest hafa
verið farnir 6 róðrar. Aflahæstu bátar á
þessu tímabili voru: Þorlákur með 61 lest
í 6 róðrum og Gissur Isleifsson með 60
lestir í 6 róðrum, báðir með línu. Heildar-
afli bátanna á þessu tímabili var 312 lestir
í 40 róðrum (óslægt). Á sama tímabili í
fyrra var heildarafli 6 báta 650 lestir í 70
róðrum.
Grindavík. Frá Grindavík reru 20 bátar
með línu. Gæftir voru fremur stirðar; flest
voru farnir 9 róðrar. Afli bátanna á þessu
tímabili var 980 lestir (slægt) í 110 róðr-
um. Aflahæstu bátar á þessu tímabili voru
Hafrenningur með 76 lestir í 8 róðrum og
Þorgeir með 64 lestir í 9 róðrum. Á sama
tímabili í fyrra var heildarafli 18 báta
1554 lestir í 159 róðrum.
Sandgerði. Frá Sandgerði reru 17 bátar
með línu. Gæftir voru sæmilegar; flest
farnir 9—10 róðrar. Mestur afli í róðri
varð 6. marz, 17 lestir. Aflahæstu bátar á
þessu tímabili voru:
Guðbjörg . .. með 97 lestir í 10 róðrum
Víðir ....... — 96 — í 10 —
Muninn .... — 95 — í 10 —
Heildarafli bátanna á þessu tímabili var
1098 lestir í 143 róðrum. Á sama tímabili
í fyrra var afli 17 báta 1456 lestir í 145
róðrum.
Keflavík. Frá Keflavík reru 49 bátar,
þar af voru 40 með línu, en 9 með net.
Gæftir voru sæmilegar; voru almennt
farnir 9 róðrar, en flest 10. Mestur afli í
róðri varð 15. marz, 17 lestir. Aflahæstu
bátar á þessu tímabili voru:
Kópur ........... með 90 lestir í 10 róðrum
Bjarni ........... — 80 — -9 —
Hilmar ........... — 67 — -10 —
Steinunn gamla — 64 — - 9 —
Heildarafli bátanna á þessu tímabili var
2.385 iestir í 434 róðrum; þar af er afli
netjabátanna 356 lestir í 86 róðrum. Á
sama tímabili í fyrra var afli 43 báta 2715
lestir í 372 róðrum.
Hafnarfjöröur. Frá Hafnarfirði reru 23
bátar, þar af voru 18 bátar með línu en 5
með net. Flest voru farnir 9 róðrar en al-
mennt 8. Afli bátanna á þessu tímabili var
723 lestir í 167 róðrum og lögnum, þar af
var afli netjabátanna 173 lestir í 33 lögn-
um. Aflahæsti bátur á þessu tímabili var
Hafbjörg (lína) með 50 lestir í 9 róðrum.
Á sama tímabili í fyrra var afli 21 báts
963 lestir í 137 róðrum.
Reykjavík. Frá Reykjavík reru 23 bát-
ar, þar af voru 8 bátar með línu, 12 með
net og 3 voru á útilegu með línu. Gæftir
voru stirðar og afli misjafn. Flest voru
farnir 8 róðrar. Afli línubátanna var um
300 lestir í 56 róðrum, afli útilegubátanna
var um 110 lestir en afli netjabátanna um
350 lestir. Þar af hafa tveir bátanna aflað
um 240 lestir. Aflahæstu bátarnir voru
Arnfirðingur og Helga með 120 lestir hvor
í net. Heildaraflinn á þessu tímabili var
um 760 lestir. Á sama tíma í fyrra nam
afli 25 báta 1200 lestum í 180 róðrum.
Akranes. Frá Akranesi reru 21 bátur
með línu; voru flest farnir 11 róðrar, en
almennt 10. Mestur afli í róðri var 6. marz
13 lestir. Aflahæstu bátar á þessu tímabili
voi-u: Höfrungur með 81 lest í 11 róðrum
og Guðmundur Þorlákur með 80 lestir í 11
róðrum. Afli bátanna á þessu tímabili var
1316 lestir í 213 róðrum. Á sama tíma í
fyrra var afli 19 báta 1640 lestir í 156
róðrum.
Sandur. Frá Sandi reru 5 trillubátar,
afli þeirra nam á þessu tímabili 28 lestum
í 23 róðrum.
Rif. Frá Rifi reru 6 bátar með línu.
Gæftir voru fremur stirðar en afli sæmi-
legur. Afli bátanna á þessu tímabili var