Réttur


Réttur - 01.10.1974, Side 8

Réttur - 01.10.1974, Side 8
Nokkur atriði um íslenzku kaupfélögin Kaupfélögin eiga sér rœtur í frelsisbaráttu 19. aldar. Þau eru alíslenzk að uppruna, því að ljóst er, að forvígismenn þeirra þekktu ekki í upphafi erlendar fyrirmynd- ir, sem um var að ræða (félag vefaranna í Rochdale). Þeir voru fátækir menn en ókúgaðir, framsýnir og djarfir. Þeir leystu vandamál viðskiptanna af eigin ramleik samkvæmt eigin hugmyndum. Þessir brautryðjendur skildu, aö viðskiptalegt og fjárhagslegt sjálfstæði var undirstaða þjóðfrelsisins. Saga samvinnufélaganna er snar þáttur í heillandi endurreisnarsögu þjóðarinnar í nærfellt heila öld. Kaupfélögin eru í dag kjarni íslenzkra byggða, hvarvetna um landið. Það er eðlileg afleiðing af lýðræðis- legu skipulagi þeirra. Þau eru sameign fólksins á hverjum stað, tæki þess til að tryggja sér hagkvæm og réttlát viðskipti. Afrakstur samvinnuverzlunar rennur til fólksins sjálfs, ýmist sem endurgreiddur arður eða afl þeirra hluta, sem gera skal á hverjum stað: atvinnu, samgangna, fé- lagsmála, menningarmála. Kaupfélögin skapa tryggingu fyrir því, að þeir fjármunir, sem fólk vinnur fyrir hörð- um höndum, komi því sjálfu að fullum og beinum notum. Fjármagn verður ekki flutt burt af heimastöðvum, né eignir þeirra seldar, nema með vilja hins al- menna félagsmanns: bóndans, verka- mannsins, sjómannsins, skrifstofumanns- ins, sem á kaupfélagið og hefur ávallt end- anlegt vald um rekstur þess gegnum kjörna fulltrúa sína á fundum félagsins og í stjórn þess. í samvinnufélagi hafa all- ir jafnan atkvæðisrétt og allir sömu skil- yrði til áhrifa. Þau starfa fyrir opnum tjöldum. Umræður á fundum þeirra eru frjálsar og öllum heimil gagnrýni. Grund- völlur þessara miklu samtaka, sem fólkið hefur myndað sér til þess að leysa vanda- mál daglegs lífs, er lýðræði og jafnrétti. Samvinnufélögin eru íslenzk að uppruna og alinnlent fyrirtæki. Fjármagn þeirra er eign fólksins sjálfs, rekstur þeirra und- ir eftirliti og úrskurðarvaldi hins al- menna félagsmanns. Þau eru í heild stærsta fyrirtæki landsins og hafa þess vegna öðrum fremur bolmagn til að efla innlent framtak, óháð hvers konar er- lendri hlutdeild. Lýðræðisskipulag þeirra tryggir, að þau geta aldrei orðið öðrum háð, meðan sá mikli fjöldi landsmanna, sem skipar þau, vill eigið framtak í eigin landi. Vegna sögu sinnar, skipulags og fjölda félagsmanna eru þau einn af traustustu hornsteinum íslenzks lýðræðis. íslendingar. Njótið arðs af eigin viðskipt- um í eigin fyrirtækjum. Eflið hlutdeild yðar í þjóðfélaginu með því að ganga í kaupfélag. Með vakaiidi þátttöku í sam- vinnufélagi eigiö þér kost á að tryggja yður réttlát viðskipti. SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.