Ægir - 01.12.1966, Blaðsíða 5
ÆGIR
355
1
Frá Verðlagsráði sjávarútvegsins j
----- —„-----------------------------------—!
Ves'ð á síld til sölSunsB' og byæðslu
norðan- og austanlands
Verðlag'sráð sjávarútvegsins og yfirnefnd þess
hefur ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á síld í
bræðslu og síld til söltunar, sem veiddi er á Norð-
ur- og Austurlandssvæði, þ. e. frá Rit norður um
að Hornafii’ði, eftirgreind tímabil.
Síld í bræ'öslu:
Frá og með 6. nóvember til og með
15. nóvember 1966, hvert kg .... kr. 1.37
Frá og með 16. nóvember til og með
31. desember 1966, hvert kg .... — 1.20
Verðbreytingin tekur gildi kl. 24.00 þann 15.
nóvember miðað við afhendingu.
Heimilt er að greiða kr. 0.22 lægra á kg fyrir
síld, sem tekin er úr veiðiskipi í flutningaskip
utan hafna, enda sé síldin vegin eða mæld eftir
nánari samkomulagi aðila við móttöku í flutn-
ingaskip.
Verðin eru miðuð við, að síldin sé komin í lönd-
unartæki verksmiðjanna eða umhleðslutæki sér-
stakra síldarflutningaskipa, er flytji síldina til
fjarliggjandi innlendra verksmiðja.
Inneign sú, sem verður í flutningasjóði síld-
veiðiskipa þann 5. nóvember 1966, skal yfirfærast
til hins nýja verðtímabils og vera til ráðstöfun-
ar, ef nauðsyn krefur, samkvæmt reglum sjóðs-
ins, sem birtar eru í tilkynningu Verðlagsráðs
sjávarútvegsins nr. 9/1966. Ekki er gert ráð fyrir
greiðslum í sjóðinn af bræðslusíldarverði þetta
verðtímabil.
Síld til söltunar:
Frá og með 6. nóvember til og með 31. desem-
ber 1966:
Hver uppmæld tunna (120 lítrar
eða 108 kg) ................... kr. 278.00
Hver uppsöltuð tunna (með 3 lög-
um í hring) ................... — 378.00
Verð þessi eru miðuð við, að seljendur skili
síldinni í söltunarkassa eins og venja hefur verið
á undanförnum árum.
Þegar gerður er upp síldarúrgangur frá sölt-
unarstöðvum, sem kaupa síld uppsaltaða af veiði-
skipi, skal viðhafa aðra hvora af eftirfarandi
reglum:
a. Sé síld ekki mæld frá skipi, skal síldarúr-
gangur og úrkastssíld hvers skips vegin sérstak-
lega að söltun lokinni.
b. Þegar úrgangssíld frá tveimur skipum eða
fleiri blandast saman í úrgangsþró söltunarstöðv-
ar, skal síldin mæld við móttöku til þess að fund-
ið verði síldarmagn það, sem hvert skip á-í úr-
gangssíldinni. Skal uppsaltaður tunnufjöldi marg-
faldast með 378 og í þá útkomu deilt með 278
(það er verð uppmældrar tunnu). Það, sem þá
kemur út, skal dregið frá uppmældum tunnufjölda
frá skipshlið, og kemur þá út mismunur, sem er
tunnufjöldi úrgangssíldar, sem bátunum ber að
fá greidda sem bræðslusíld. Þeim tunnufjölda
úrgangssíldar skal breytt í kiló með því að marg-
falda tunnufjöldann með 108 og kemur þá út
úrgangssíld bátsins talin í kílóum. Hluti sölt-
unarstöðvar miðað við uppsaltaða tunnu er eins
og áður 25 kg.
Reykjavík, 6. nóvember 1966.
Verö á bræðslusíld
við Suður- og Vesturland
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur
ákveðið eftirfarandi lágmai’ksverð á fersksíld í
bræðslu veiddri við Suður- og Vesturland, þ. e.
frá Hornafirði vestur um að Rit, tímabilið frá
og með 6. nóvember, til og með 31. desember 1966:
Hvert kg ....................... kr. 0.91
Verðið er miðað við, að seljandi skili síldinni
á flutningstæki við hlið veiðiskips.'
Seljandi skal skila síld til bræðslu í verksmiðju-
þró og greiði kaupandi kr. 0.05 pr. kg í flutn-
ingsgjald frá skipshlið.
Heimilt er að greiða kr. 0:22 iægra • pr. kg á
síld til bræðslu, sem tekin er úr veiðiskipi i flutn-
ingaskip.
Reykjavík, 8. nóvember 1966.
Allir siómenn, eldri og yngri, þurfa að eignast bókina
ENSK LESTRARBÓK handa siómönnum
Þar er að finna ensk heiti ó öllum hlutum ó skipi og í dokk.
Auk þess er bókin góður leiðarvísir fyrir sjómenn
í erlendum höfnum. — Kostar 40 kr. í sterku bandi.
Bókaverzlun ísafoldar.