Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1968, Qupperneq 9

Ægir - 01.11.1968, Qupperneq 9
ÆGIR 363 Jón Jómson, fúkifræKngur: ( Haf- og fiskirannsóknir') Vandamál fiskveiðanna á Norðvestur-Atlantshafi Hafsvæðið við norðausturströnd Norður- Ameríku og Vestur-Grænland einkennist af mjög’ sterkum andstæðum í straumakerf- inu. Svo sem kunnugt er, á Golfstraumur- inn upptök sín í Mexíkóflóa og þaðan streymir þessi mikla móða norður með austurströnd Norður-Ameríku og vermir hluti hennar austurhalla Stóra Fiskibanka, en aðalmagnið heldur áfram í norðaustur, nllt til stranda Evrópu. Þegar straumurinn kemur að hinum s.k. Norðaustur-Atlants- hafshrygg, greinist frá honum álma í norður til fslandsstranda. Úti af Vest- fjörðum skiptist straumurinn aftur; nokk- ur hluti hans rennur áfram til norðurs og síðan austur með norðurströnd íslands, en hinn hlutinn, hinn s.n. Irmingerstraumur, heldur áfram í vestur og þaðan með strönd- Um Austur-Grænlands allt suður að Hvarfi, un síðan heldur hann norður með vestur- ströndinni og er þá á nýjan leik kominn á það hafsvæði er við nefndum norðvestur Atlantshaf. Kaldir straumar norðan úr fshafinu koma á svæðið með ýmsu móti. Austur- Grænlandsstraumurinn fellur suður með uusturströnd Grænlands og rennur sam- hliða Irmingerstraumnum fyrir Horn og Uorður með vesturströndinni. Annar sterk- ur straumur að norðanerLabradorstraum- urinn er fellur milli Grænlands og Labra- dor. f honum er sjór af ýmsum uppruna, Ui-a. tekur hann til sín nokkuð af Irm- ingerstraumnum við Vestur-Grænland; í hann fellur einnig kaldur sjór úr Hudson- flóa í gegnum Hudson-sund og úr St. Law- i’enceflóanum í gegnum Belle Island-sund. Þegar Labradorstraumurinn kemur suð- uu á Stóra Fiskibanka skiptist hann í tvennt; önnur álman fellur meðfram austurhluta bankans, en hin fer nær landi. Ytri álman rennur því samhliða Golf- straumnum, en í öfuga átt. Með kalda straumnum kemur mikið af lagnaðarís úr norðri. fsinn berst með Austur-Grænlandsstraumnum norður und- ir Góðvon á vesturströnd Grænlands og Labradorstraumurinn ber með sér lagn- aðarís frá Baffinsflóa allt suður á Stóra Fiskibanka. Hinir miklu ísjakar, sem oft eru hættulegir siglingum á Nýfundna- landsmiðum, koma flestir frá svæðinu norðan við Holsteinsborg á Vestur-Græn- landi. Að því er snertir framleiðni sjávarins, þá er þetta ríkt hafsvæði. Mikil kólnun yfirborðs á vetrum hefur í för með sér lóð- rétta blöndun sjógerða niður á mikið dýpi og á þennan hátt berast upp að yfirborði sjávar þýðingarmikil næringarsölt frá hafsbotninum. Bráðnun íssins á vorin lækkar seltuna í yfirborðinu og hefur í för með sér aukið jafnvægi í yfirborðslögum sjávarins, en það er þýðingarmikið fyrir hina miklu framleiðslu plöntusvifsins. Á þessu hafsvæði eru mjög áberandi langæar sveiflur í lofti og legi. Yfirborðs- hiti sjávar við Vestur-Grænland hækkaði um 1.8 °C á þriðja tug aldarinnar og náði hámarki snemma á fjórða áratugnum, en lækkaði síðan um 0.8°C í byrjun fimmta áratugsins. Síðan hefur hitastigið farið hækkandi. Þessar sveiflur hafa mjög mikil áhrif á þorskstofninn við Grænland og einnig ráða þær miklu um göngur þorsks frá Grænlandi til Islands. Þorskurinn er þýðingarmesta tegundin í veiðunum í norðvestanverðu Atlantshafi. Meðalársveiðin var 1.4 milljón tonnátíma- bilinu 1960—’66 eða 100 þúsund tonnum

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.