Ægir - 01.11.1968, Blaðsíða 16
370
ÆGIR
Það sem umfram er úrgangssíldar er eign
bátsins og skal lagt inn á reikning hans hjá síld-
arverksmiðju.
Síld, sem afhent er utan hafna til söltunar
um borð í skipum á miðunum
hvert kg ................... kr. 1.90
eða
hver uppmæld tunna, 120 lítrar — 205.00
Verðið er miðað við kaup á síldinni upp til
hópa komna í umhleðslutæki.
Reykjavík, 27. september 1968.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
VeriV ú frnVsílil.
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur
ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á sild til fryst-
ingar veiddri á Norður- og Austurlandssvæði,
þ. e. frá Rit norður um að Hornafirði, frá 1.
október til 31. desember 1968.
A. Stórsíld (3 til 6 stk. í kg) með minnst
14% heilfitu og óflokkuð síld (beitu-
síld), hvert kg ..................... kr. 2.20
B. Önnur síld, nýtt til frystingar
hvert kg.............................. — 1.50
Verði stórsíld flutt til hafna á Suður-
og Vesturlandssvæði til frystingar í
beitu, skal auk framangreinds verðs
greiða pr. kg ........................ — 1.20
Verðið miðast við, að seljandi afhendi síldina
á flutningstæki við hlið veiðiskips.
Verðið miðast við það magn, sem fer til vinnslu.
Vinnslumagn telst innvegin síld að frádregnu
því .magni, er vinnslustöðvarnar skila í síldar-
verksmiðjur. Vinnslustöðvarnar skuiu skila úr-
gangssíld í síldarverksmiðjur seljendum að kostn-
aðarlausu.
Þar sem ekki verður við komið að halda afla
bátanna aðskildum í síldarmóttöku, skal sýnis-
horn gilda sem grundvöllur fyrir hlutfalli síldar
til framangreindrar vinnslu og síldar í bræðslu
milli báta innbyrðis.
Reykjavík, 3. október 1968.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
VerA' á ísaðri síld og síld
til iiiiViirsiiiVii.
Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur ákveðið eft-
irfarandi lágmarksverð á fersksíld veiddri -\-ið
Suður- og Vesturland, þ. e. frá Hornafirði vestur
um að Rit, frá 1. september til 31. desember 1968:
Síld í niðursuðuverksmiðjur, hvert kg. kr. 1.87
Verð þetta miðast við það magn, sem fer til
vinnslu.
Vinnslumagn telst innvegin síld, að frádregnu
því magni, er vinnslustöðvarnar skila í síldar-
verksmiðjur. Vinnslustöðvarnar skulu skila úr-
gangssíld í síldarverksmiðjur seljendum að
kostnaðarlausu, enda fái seljendur hið auglýsta
bræðslusíldarverð.
Þar sem ekki verður við komið að halda afla
bátanna aðskildum í síldarmóttöku, skal sýnishorn
gilda sem grundvöllur fyrir hlutfalli milli síldar
til framangreindrar vinnslu og síldar til bræðslu
milli báta innbyrðis.
Síld ísvarin til útflutnings í skip, hvert kg kr. 1.87
Verð þetta miðast við innvegið magn, þ- e-
síldina upp til hópa.
Verðin eru miðuð við, að seljandi skili síldinni
á flutningstæki við hlið veiðiskips.
Reykjavík, 9. október 1968.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
BrœAslusíIdarverA.
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur
ák ,-eðið eftirfarandi lágmarksverð á síld i
bræðslu, veiddri við Norður- og Austurland, þ-e-
frá Rit norður um að Hornafirði, frá og með 16-
október til og með 31. desember 1968:
Hvert kg ....................... kr. 1-28
Verðið er miðað við, að síldin sé komin í lönd"
unartæki verksmiðjanna, eða umhieðslutæki ser-
stakra síldarflutningaskipa, er flytji síldina til
fjarliggjandi innlendra verksmiðja.
Heimilt er að greiða kr. 0.22 lægra á kg fyrir
síld, sem tekin er úr veiðiskipi í flutningaskip
utan hafna. Sé síldin ekki vegin, gildir eftirfar-
andi regla þar til annað kann að verða ákveðið.
Hvað snertir afhendingu í síldarflutningaskip"
in Haförninn og Síldin, þá mælist síldin í tönk-
um skipsins, í hektólítrum eftir hinum staðfestu
töflum um rúmmál einstakra geyma þess, en
til þess að finna hlutfallið á milli rúmmáls og
vigtar, skal vigtað úr einum tanka skipsius.
Skal kílóatalið sem þannig fæst úr hektóltra la&f
til grundvallar fyrir mótteknu magni, sem greiðist
eftir kílóafjölda með því verði, sem ákveðið hefur
verið fyrir bræðslusíld í flutningaskip á því tíma-
bili, sem lestun fer fram.
Reykjavík, 11. október 1968.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.