Austfirðingur


Austfirðingur - 29.08.1931, Blaðsíða 2

Austfirðingur - 29.08.1931, Blaðsíða 2
2 AUSTFIRÐINGUR itemiNi i Olseini KAFFI-„CREDIN“. Fituefni 12!/*%. Mjólk með þessu heiti er fyrir skömmu farið að flytja. Er framleidd ór hreinni nýmjólk og bætt við „Fedtemulsion," og er ágæt í staðinn fyrir rjóma. Gefur kaffinu eng- an afkeim. Þeir, sem nota dósamjólk í kaffi, ættu að kaupa þessa mjólk, sem fæst hjá kaupmönnum. Nánari upplýsingar gefur um- boðsmaöur okkar, Gfsli Jdnsson, Seyðisfirði. Brjefkaflar frá íslendingi erlendis. —o— Brjefkaflar þeir, sem byrjuðu í síð- asta blaði, halda áfram í þessu blaði og hinu næsta. Hafa þeir þegar vakið mikla athygli og umtal meðal lesenda blaðsins. Hjer á landi er ekkert hlut- laust blað, sem ræði stjórnmál. Hjá ís- lenskum blaðlesendum hefir þá einnig skapast nokkur tortryggni um að myndirnar, sem upp eru dregnar af stjórnmálaástandinu, sjeu afskræmdar af spjespegli flokkshagsmunanna. Hjer er engu slíku til að dreifa. Brjefritarinn stendur utan við flokkana, heggur jafnt til beggja handa, og gerir hvorki að breiða yfir nje ýkja hverjir sem í hlut eiga. Hjer getur að líta álit manns, sem fylgist með öllu því, sem hjer ger- ist, en stendur nógu fjarri til þess að líta algerlega hlutlaust á málin. Mynd- in af ástandinu er hvorki afskræmd nje fegruð, heldur alveg eins og hún kem- ur brjefritaranum fyrir sjónir. — Fyrir- sagnir eru settar af ritstj. Lánsverslunin. Síðan elstu menn muna, hefir eitt mál verið óslitið umræðuefni á öllum mannfundum, á Alþingi og í öllum blöðum landsins. Það er lánsverslunin. Einokunin var ekki fyr afnumin, en lánsverslunin varð hin versta plága. Bestu menn landsins hafa barist gegn henni. Kaupfjelögin reyndu að stemma stigu. Löggjaf- arvaldið hefir tekið í taumana. Alt árangurslaust. Nú hvað gátan loks vera leyst. Það er aðeins eft- ir að ákveða hvorum stjórnmála- flokknum beri að launa lausnina. Eftir umræðum utan lands og innan eiga Reksturslán að brjóta skuldaklafann, leysa bændur úr ánauð og kaupmenn og kaupfje- lög. Reksturslánum er ætlað að borga allar gamlar skuldir og fyr- irframgreiðslur við ársreksturinn að auk. Nú er ekkert eftir nema að borga. Svo er nefnilega ákveð- ið, að reksturslán greiðist að fullu árlega. Þetta er fjármálaspeki, sem allir flokkar vilja hafa heiðurinn af að hafa fundið upp. Eins og framleiðslu flestra bænda er háttað, er lánsverslun milli haustkauptíða eðlileg, í flestum tilfellum óumflýjanleg. Fastar, áframhaldandi verslunarskuldir, svo nokkru nemi, ættu auðvitað ekki að eiga sjer stað. Lánsverslunin verður ekki af- numin með lagasetningum, þó vit- urleg lagaákvæði geti hjálpað. Verulegar umbætur í því efni fást aðeins með breyttu hugarfari hlut- aðeigenda, kaupenda og seljenda. Tekjurnar 1930 eins miklar og fyrstu 10 ár 20. aldarinnar samtals. Fyrir utan verslunarólagið, bar ekki á stórfeldum misbrestum í athafnalífi þjóðarinnar alt fram að fullveldisdögum. Meðferð opinbera sjóða og ríkissjóðs var yfirleitt góð. Á stríðsárunum opnaði ís- landsbanki gáttina, sem veitti hóf- lausri „inflation** í alt ’.'eiðmáeti, alt starfslíf þjóðarinnar. Af því leiddi svo eðlilega hrun krónunnar, og sem verra var, stjórnlaust ábyrgð- arleysi og siðleysi í öllum grein- um athafnalífsins, sem enn er ekki rönd'við reist. Fyrsta afborgun þeirrar glópsku var enska lánið 1921. Önnur gengishækkunin 1925. Þriðja enska !án Jónasar 1930. Fleiri munu á eftir koma í þinni tíð og hinna afkomenda. Undanfarin ár hefir árferði ver- ið ágætt. Framleiðslan mikil og verðlag hátt. Atvinnurekendur og einstaklingar dregið óvenjustóran hlut frá borði, þrátt fyrir þungar opinberar álögur. Tekjur ríkissjóðs síðastliðið ár 17—18 miljónir kr., eins mikið og allar tekjur landssjóðs fyrstu 10 ár tuttugustu aldar. Alþingi verður aldrei brugðið um varfærni í fjárveitingum síð- ustu árin. 10—12 milj. kr. virðist vera vel til Iagt og full álagt 100 þúsund hræður. Tekjur ríkissjóðs umfram áætl- uð útgjöld hafa síðastliðin 3 ár numið meir en allar skuldir ríkis- ins fyrir 4 árum síðan. Skuldasöfnun göðæranna. Tekjur ríkissjóðs síðastliðið ár voru nægar til að sjá sæmilega fyrir þörfum ríkisins og borga eftirstöðvar enska lánsins að fullu. Á 1000 ára afmæli Alþingis gat ríkið verið skuldlaust, án þess að hafa skorið nokkur útgjöld við nögl. Það hefði verið saga fyrir fulltrúa erlendra ríkja og erlendra blaða að flytja heim. Þannig gat það verið. Þannig hefði það átt að vera. En hvernig er það ? Á þremur árum haiið þið eytt nær 30 miljónum kr. fram yfir útgjaldaáætlun Alþingis. Það er ótrúlegt, svo ótrúlegt, að það er ekki hafandi eftir. En samt er það satt. Tekjur ríkisins hafa farið á annan tug miljóna fram úr áætl- un. Öllu eytt. Skuldir ríkisins aukist hátt á annan tug miljóna. Öllu eytt. Þessa ráðsmensku er ykkur ætlað að samþykkja og ekkert lík- legra en að þið verðið nógu vit- grannir til að samþykkja við næstu kosningar !* Nú er ykkar fjármálastatus það sem Englendingar kalla assigned, þ. e. fjárforráð ykkar falin einni stofnun, sem hefir trygging í og umráð yfir öllum tekjulindum rík- isins. Það hefir sama gildi og veðsetning, þó ekki sje nefnt því nafni. Óvissar, breytanlegar tekjur verða ekki á annan hátt notaðar sem trygging, nema lánardrottinn hafi innheimtuna í sínum höndum, og þá er það afsal. Eftir mörg veltuár og afar háar tekjur ríkissjóðs, er ríkið í botn- lausum skuldum og tekjur þess veðsettar. Atvinnuvegirnir að heikj- ast undir skattaálögum og láns- traustið lamað. Þetta er ykkar fjármálaframmi- staða fyrstu 12 fullveldisárin. Árásirnar á Hæstarjett. Það má máske segja, að enn * Hjer er átt við kosningarnar 12. júr.í síðastl. Ritstj. sje ekki öllu glatað, að enn standi eitt sjálfstæðisvígi óhaggað, — dóinsvaldið. En hve lengi? Á það hefir verið ráðist af sjálfum dóms- málaráðherra ríkisins, með meiri ósvífni en dæmi eru til. — Þeim árásum linnir ekki fyr en annaðhvort fellur, stjórnin eða Hæstirjettur. Stjórnin verður að heyja látlaust stríð á Hæstarjett, annars er hún ekki sinni stefnu, sínum yiirboðurum trú. Þegar dómsvaldið er fallið og Hæsti- rjettur orðinn aö pólitískri bitl- ingastofnun, verkfæri valdhafanna, eins og allar aðrar opinberar stofnanir, þá fyrst getur Jónas sagt: Jeg kom, jeg sá, jeg sigr- aði. Jónas er stjórnin. Þú telur víst að Jónas múni falla við næstu kosningar. Getur verið og ekki. Jónas er herkænn og vígur vel. Undir hans veldis- stól standa sterkar stoðir: Afglöp andstæðinganna, samvinnufjelögin og sósar, ríkissjóður, andlegir yf- irburðir Jónasar sjálfs, fyrirlitning- in og loddaralistin. Stofnun Framsóknarflokksins. Árásir þær, sem gerðar voru á kaupfjelögfn hjer fyrrum, eiga drjúgan þátt í stofnun Framsókn- arfiokksins. Kaupfjelögin gerðu ít- arlegar tilraunir til að draga úr lánsversluninni. Tilraunirnar voru lofsverðar, þótt árangurinn yrði lítill. Hefði orðið meiri, ef kaup- menn hefðu einmitt ekki notað lán og óheilbrigt verðlag til ein- stakra manna sem vopn gegn kaupfjelögunum. Vanskil eru meiri en skyldi hjá kaupfjelagsmönnum. En vissulega eru vanskil kaupfje- lagsmanna ekki nema lítill hluti af heildartapi athafna og viðskifta- lffsins. Stefna og starfsemi sam- vinnufjelaga er nú orðið allsstað- ar viðurkent og víða styrkt all- ríflega af opinberu fje. Þá má segja að gengishækkun- in 1925, sem kend er við Jón Þorláksson, hafi orðið mjög til þess, að hlaða undir Jónas. Sú ráðstöfun gaf kjósendum að mínu áliti rjettmæta ástæðu til að fella stjórn Jóns Þorlákssonar, sem annars er þó stjórnarfarslega það langbesta, sem þið hafið sýnt síð- an þið fenguð fullveldi. Framleið- endur eru enn að borga þann skell, sem af þeim ráðstöfunum leiddi, þótt eftirfarandi góðæri hafi bjargað frá hinum bráðasta voða. Það var því eðlilegt að kjósendur hrintu stjórninni. Þeir gátu ekki sjeð fyrir, að Framsókn sviki öll sín loforð, svo sem að festa krón- una, spara fje o. fl. Samvinuufjelögin gerð pólitfsk. Samvfnnufjelögin voru aðal- styrkur Frainsóknar við síðustu kosninuar (1927). Tryggva og Jónasi hafði tekist að smeygja sjer þar inn. Gerðust þeir þar brátt umsvifamiklir og málóða mjög. Dáðust bændur mjög að áhuga þeirra, einlægni og ósjerplægni. En það kom brátt í ljós, til hvers barist var. Þaö var aó sameina bændur í pólitískan flokk, þar sem þeir fjelagar hefðu öll yfirráð. Tilgangurinn var að nota sam- vinnufjelögin sem pólitíska lyfti- stöng, sjálfum sjer til upphefðar, lofs og dýrðar, en alls ekki að efla samvinnu. Það sannar ótví- rætt hin hatursfulla framkoma þeirra gagnvart samvinnufjelögum og samvinnutilraunum utan þeirra umráða, og hvernig þeir hafa of- sótt einstaka samvinnumenn fyrir þá sök eina, að þeir hafa neitað að afsala pólitískum rjetti og sjálfstæði. Það ætti að vera ófrávíkjanleg stefna allra samvinnufjelaga, að halda sinni starfsemi utan við stjórnmáladeilur og afskifti. Stjórn- málaskoðun einstakra meðlima sje heildinni óviðkomandi. Þannig geta allir unnið saman að einu marki. Þannig verður þroski fje- laganna heilbrigðastur, þeirra starf- semi þjóðlegust og til mestra nyt- semda. Allir bændur í einni sveit geta unniö saman í kaupfjelagi eða mjólkursamlági. En það er Iftt hugsanlegt, næsta óeðlilegt, að þeir hafi allir sömu stjórnmála- skoðun. Áreitni við samvinnumenn utan Framsóknarflokksins hlýtur að spilla innbyrðis samvinnu og halda mörgum nýtum dreng frá fjelagsskapnum. Pólítisk samvinna bættuleg. Það er ekki mikið, sem sam- vinnufjelögin þurfa að sækja til löggjafarvaldsins. En komi það fyrir, þá munu þeirra mál fáskjót- ari og betri afgreiðslu ef fjelögin eru óháð öllum þingflokkum, en eiga hauk í hverju horni. Það kom glögt í Ijós við samþykt sam- vinnufjelagslaganna á Alþingi 1921, að pólitísk samtök samvinnumanna voru óþörf. Það er ekki einsdæmi hjá ykk- ur, að samviunufjelagi hafi verið steypt í stjórnmálastríðið. Enda oft til þess vísað. Samvinnufjelög vegna mannfjölda—atkvæðafjölda — hafa helst hvergi frið fyrir áleitni óhlutvandra, valdasjúkra stjórnmálaskúma, sem með flátt- skap og fagurmælum leitast við

x

Austfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austfirðingur
https://timarit.is/publication/594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.