Austfirðingur - 21.12.1931, Síða 3
AUSTFIRÐINQUR
Undir umræöum kom fram
svohlj. tillaga:
Jafnframt skorar fundurinn á
þing og stjórn að gjöra alt sem
hægt er, til þess, að styrkja mer.n
og hvetja, til allskonar framleiðslu
og iðnaðar, sem miði að því, að
gj$ra oss sjálfum oss nóga.“
Aðaltill. samþ. með 13 atkv.
gegn 8, og viðaukatill. með öll-
um atkv.
5. Sjálfstjórn Búnaðarfjelags ís-
lands.
Fundurinn lýsir megnri óánægju
yfir meðferð tveggja síðustu þinga
á hinni rjettlátu kröfu síðasta bún-
aöarþings, sem fellst í frv. Bjarna
Ásgeirssonar til breytingar á jarð-
ræktarlögunum, og skorar á næsta
Alþingi að svæfa nú málið ekki
lengur, heidur veita hinum skipu-
lagsbundnu og þýðingarmikla fje-
lagsskap bændanna í landinu þessa
sjálfsögðu rjettarbót, svo hann geti
notið sín til fulls."
Till. samþ. í einu hljóði.
6. Launamálið :
„Með tilliti til þeirra fjárhags-
öröugleika, sem yfirstanda, skorar
fundurinn á alþingi að lækka að
mun laun opinberra starfsmanna
ríkisins, sjerstaklega þeim hæsf-
launuðu. Ennfremur lækka laun
þeirra daglaunamanna sem ríkið
veitir atvinnu, hvorttveggja í sam-
ræmi við greiðslugetu atvinnuveg-
anna."
Samþ. í einu hljóði.
7. Innflutníngshöft:
„Fundurinn skorar á ríkisstjórn
og þingmeirihluta að halda iast
við innflutningshöft á ónauðsyn-
legum varningi, og vörum þeim
sem framleiða má í landinu og
veita þar um engar undanþágur.*
Till. samþ, með öllum gr. atkv.
8. Bankamál:
„Fundurinn skorar á þingmenn
Múlasýslna að vinna að því að
stofnsett verði útbú frá Búnaðar-
banka íslands fyrir Austurland á
Fljótsdalshjeraði hið allra fyrsta."
9. Viðtækjaverslun:
„Fundurinn skorar á þingm.
Austfj. og N.-þingeyjarsýslu að
beita sjer fyrir því á n. k. Alþ.
að menn á þessu svæði geti feng-
ið sökum óhagstæðrar aðstöðu
sinnar, útvarpstæki með 3—4 ára
afborgunum."
Samþ. með öllum greiddum
atkv. gegn einu.
10. Hjeraðsmál:
a. Fiskirccktarmál:
„Fundurinn felur þingm. Múla-
sýslna að útvega úr ríkissjóði við-
bótarfjárveitingu til Laxastigana í
Lagarfljóti, þannig að úr ríkissjóði
komi 2/s hlutar hins raunverulega
kosnaðar við byggingu stigans.
Einnig aö útvega væntanlegum
fiskiræktarfjelögum á Fljótsdals-
hjeraði alt aö helmingi kostnaðar
við byggingu klakhúss, eyöingu
sels og fleira."
Samþ. í einu hljóði.
b. Snjóbíll:
„Fundurinn lýsir óánægju sinni
yfir tilhögum þeim sem verið hef-
ir á rekstri snjóbílsins yfir Fagra-
dal, skorar fundurinn þvíáþingm.
Múlasýslna, að fá þeirri tilhögun
breytt þannig, að hann megi koma
að betri notum fyrir Hjeraðsbúa,
sem hann er sjerstaklega ætlaður
fyrir, svo sem með því að starf-
rækja hann uppi á Hjeraði, og fá
flutningsgjaidið lækkaö að mun.
Samþ. í einu hljóði.
c. Brú á Jökulsáx
„Fundurinn skorar á þingm.
Múlasýslna að beita sjerfyrir því
að veitt verði fje til að byggja
brú á Jökuisá í Fljótsdal svo fljótt
sem fjárhagur ríkissjóðs leyfir."
Samþ. í einu hljóði.
á. Vegamál:
„Fundurinn lýsir yfir því áliti
sínu, að hann telur að síst megi
fella niður fjárveitinpar til akfærra
sýsluvega af fjárveitingum þeim til
nýrra vegagerða, sem á fjárlögum
standa.
Samþ. í einu hljóði.
e. Fellavegur:
„Fundurinn skorar á þingm.
N.-Múlasýslu að beita sjer fyrir
því að á næsta þingi verði sýslu-
vegurinn frá Lagarfljótsbrú upp
norðan Lagarfljóts að Brekku
tekinn í tölu akfærra þjóðvega
og að lagningu hans verði hrað-
að sem mest.
Samþ. í einu hljóði.
Björn Hallsson.
Erlingur Þ. Sveinsson.
Til jölanna:
Krakmöndlur Rúsínur Kaffi
Vínþrúgur Konfekt Súkkulaði
Appelsínur Karamellur Cacao
Epli, mjög góð. Átsúkkulaði Sykur
Jarðarber Kex, margar teg. Hveiti
Ananas Tvíbökur Gerduft
Perur Laukur Dósamjólk
Syltutau Jólakort Kálhöfuð Nýárskort Ostur
Leikföng Vindlar Cigarettur
Spyrjið um verð.
Sölutuminn, Seyðisfirði.
ið „Braai“.
Frjettir.
(Frá frjettaritara Austf. í Rvík)
—o—
Mannalát.
Björn Líndal er dáinn. Verður
lík hans flutt norður á morgun.
— Jón Snædal dó á Landakoti
á sunnudag af afleiðingum upp-
skurðar.
Eyfirðingar og Einkasalan.
Hyfirðingar höfðu nýlega afhent
Einkasölunni smásíld fyrir 25 þús-
und krónur áður en hún var lögð
niður. Tvísýnt um að þeir fái
nokknð fyrir síldina, sem mun
fara í skuldasúpu Einkasölunnar.
Eru Eyfirðingar æfareiðir.
Hæstarjettarddmur.
Alþýðublaðið skrifar um dóm
Hæstarjettar í launamáli Kristjáns
Karlssonar, þar sem Kristjáni eru
engin laun dæmd, en í forsendum
viðurkent að Útvegsbankinn sje
framhald íslendsbanka, og þess-
vegna hefði átt iaun, en sakir
vítaverðrar bankastjórnar hans hafi
brottrekstur verið rjettmætur, og
eru tilfærðar sem víti lánveitingar
tilstórskuldugra mannaogað reikn-
ingsfærsla bankans hafi ekki verið
rjett. þykir sem Alþýðublaðið og
Tíminn tefli hjer á tæpt vað, ef
bankastjórar eiga að þurfa aö
bera lánveitingar og aðrar aðgerð-
ir undir Hæstarjett.
Fundur f Keflavík.
Jónas ráðheria fjekk nokkra
Keflvíkinga til að boða til fundar
í Keflavík á miðvikudag um fisk-
sölu og dragnótaveiðar, og ljet þá
bjóða sjer og Ólafi Thors. Varö
Annan í jólum:
KI. 5 Samsöngur í kirkjunni á Fjaröaröldu. Aðgangur kr. 1,50
Kl. 872 Dansskemtun í Barnaskólanum. Aðgangur 1 króna.
Aögöngumiðar að söngskemtuninni fást
í Lyfjabúðinni frá því á aðfangadag. —
fundurinn langur og lauk þannig:
Oddviti staðarins mæltist til við
Jónas að hann sýndi sig þar ekki
framar og kom til oröa að fleygja
honum út af fundinum. Qætnustu
mönnum tókst þó að afstýra því.
Fundahöld um afnám bannlag-
anna.
Stúdentafjelag Rvíkur byrjaði
fundi í gærkvöldi um afnám bann-
laganna. Quðm. Hannesson var
frummælandi. Fundinum var frest-
að um miönætti. þar verðursam-
þykt harðorð tillaga um afnám
bannlaganna. Fjörugar úmræður.
Stjórnarliðið og fleiri tala um að
skjóta ábyrgðinni af þingmönnum
og láta bera bannið undir þjóðar-
alkvæði.
Kjördæmanefndin.
er óklofin enn, hvað sem veldur.
Þýskalandsmarkaðurinn.
Jóhann Jósefsson, þingmaður
Vestmanneyinga er vongóður um
að geta iiðkað fiskmarkaðinn í
Þýskalandi.
Vínbruggun.
Norðmaður, Jóhansen að nafni,
hefir verið tekinn fyrir vínbruggun
sem innrjettuð var um borð í
línuveiðaranúm Fjölnir hjer á höfn-
inni. Var hann dæmdur í 9 daga
fangelsi og 1000 kr. sekt. —Bæj-
arfógetinn í Hafnarfirði gerði út
leiðangur í gær til að snuðra upp
heimabruggara. Sagði að fyrirætl-
uð væri rannsókn á 6 stöðum.
Fannst svo mikið á fyrsta staðn-
um, á Laugabóli í Mosfellssveit,
aö sendinefndin komst ekki lengra.
Innbrot
allmörg hjer undanfariö uppvís.
Fjórir unglingar höfðu myndað
með sjer fjelag og er foringinn
elstur, 16 ára.
0<32>00<æ>0®0<32>00c
AUSTFIRÐINQUR
V ikublað
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Árni Jónsson frá Múia.
Sími nr. 70.
Verö árgangsins 5 kr.
Kaf f i.
Tvær tegundir af brendu og
möluðu kaffi fást nú í Söluturnin-
um.
0nnur tegundin er hin gamla
og góða, sem áður hefir tengist
þar, nú innkeypt á besta tíma og
verðið því mikið niðursett.
Hin tegundin enn ódýrari, Óþekt
hjer áður. — Einnig fæst óbrent
kaffi, góð og ódýr tegund. Tvenns-
konar kaffibætir.
Malmberg,
sem veriö hefir forstjóri h.f.
Hamar, er fluttur burtu, eftir 17
ára hjervist.
Góð ísfisksala 1 Englandi
undanfarna viku.
Landsreikningurinn
er ekki kominn út. 'Jörundur
neitar að segja hvað landbúnaðar-
nefndin hefir kostað.
Stimpillögin.
Varasamt er aö menn gleymi
stimpillagaákvæðinu frá 1921, er
ráöuneytið má ekki gefa undan-
þágu frá eftir áramót.