Austfirðingur - 26.03.1932, Blaðsíða 2

Austfirðingur - 26.03.1932, Blaðsíða 2
2 AUSTFIR&lNGUR Útgerðarmenn og kaupmenn! Eftirspurn eftir fiskilínum ©g línutaumum frá JAMES ROSS & Co. Ltd. fer árlega í vöxt. Þeir, sem notað hafa línur frá þessu firma, viðurkenna aö þær sjeu hinar sterkustu og endingarbestu, sem flust hafa til landsins. Leitið yður upplýsinga um verð og gæði áður en þjer festið kaup annarsstaðar. Gísli Jónsson. tekinn flokk, og þá verða atkvæði hans og þingsæti hans sjálfs talið þeim flokki við útreikning kosn- ingarinnar, eða þá í þriðja lagi, að hann verður að gefa yfirlýs- ingu um, að hann sje utanflokka og styðji engan tiltekinn flokk. Frambjóðandi, sem í raun og veru væri ákveðinn flokksmaður, myndi naumast gefa slíka yfirlýsingu; en ef vitanlegt yrði um, að þingmað- ur tæki aðra afstöðu heldur en þá, sem framboðsyfirlýsing hans segir, gæti löggjöfin, ef þurfa þætti, sett viðurlög og komið fram refs- ingum, þar á meðal fyrst og fremst missi þingmensku, aö undangengn- um dómi. Eru í mörgum löndum sjerstakir dómstólar, sem úrskurða öll vafaatriði viðvíkjandi kosning- um til löggjafarsamkomunnar, og gætu menn hugsað sjer, að slík brot heyrðu undir þess konar dóm- stól, ef þörf þætti að gera ráð fyrir þeim. b. Myndun yfirskinsflokka. Sumum hefir komið til hugar, að það gæti valdið óeðlilegri þingmannafjölgun, ef meirihluta- frambjóðandi í einu fámennu kjör- dæmi tæki sjer og kjósendum sínum sjerstakt flokksheiti. Mundi þá kjósendataia þessa þingmanns verða hlutfallstala kosningarinnar, og gæti hún orðið svo lág, að tala þingmanna færi fram úr öliu valdi. það er alveg sjálfsagt, að þegar hugtakið þingflokkur er komið inn í stjórnarskrána sem grund- vallandi hugtak um skipun Alþing- is og Alþingiskosningar, þá verð- ur löggjöfin að gera skil á því, hvað í hugtakinu felist, eða hvaða skilyrðum þeir flokkar þurfi að fullnægja, sem geti notið þess rjettar, sem stjórnarskráin veitir þingflokkum. Aðaleinkenni hvers þingflokks í venjulegum skilningi er það, að á bak við hann standi sjerstakur landsmálaflokkur eða skoðanaflokkur meðal kjósend- anna. I kosningalögum þarf því að setja skilyrði um það, hvað þurfi til þess að flokkur geti kom- ið þar fram sem sjerstakur lands- málaflokkur. Til fyrirmyndar um ákvæði þessu viðvíkjandi má að nokkru leyti hafa ákvæði úr kosn- ingalögum Dana. Þar er að vísu ekki hlutfallskosning í sambandi við einmenningskjördæmi, heldur hlutfallskosning í fleirmennings- kjördæmum, en þar eru einnig uppbótarsæti, sem eiga að koma til úthlutunar á milli þingflokkanna eftir svipuðum reglum og hjer er farið fram á, og þessvegna hefir ekki orðið komist hjá því að á- kveða f kosningalögum þeirra. hvaða skilyrði þeir flokkar eigi að uppfylla, sem geta komið til greina við úthlutun uppbótarsæta. þessi skilyrði eru tvennskonar. Annarsvegar eru skilyrði, sem þarf að fullnægja áður en fram- boð eru fullgerð og kjörseðlar bún- ir til. Engir flokkar eru teknir undir flokksmerki á kjörseðla, nema þeir fullnægi þessum skil- yrðum. — Hinsvegar eru skilyrði um atkvæðamagn viö kosninguna sem koma ekki til greina fyrr en eftir á, þ. e. við útreikning á hlut- fallstölu og úthlutun uppbótarsæta. Til þess að átta sig á því, hvaða skilyrði er eðlliegt að setja um þetta, má t. d. líta á Kommunista- flokkinn hjer við kosningarnar 1931. það er engum efa bundið, að hann er landsmálaflokkur í þeim skilningi, að hann hefirsjer- stakar landsmálaskoðanir. Hann hafði frambjóðendar í kjöri í 5 kjördæmum, og þessi 5 kjördæmi dreifðust á 3 af þeim 6 hlutfalls- kjördæmum, sem Iandið alt skift- ist í. í þessu lýsir sjer einmitt mis- munurinn á skoðanaflokki og t. d. hagsmunasamtökum einhvers Iandshluta, sem menn líka gætu hugsað sjer, að stofnað yrði til í þeim tilgangi að ná viðurkenningu sem þingflokkur. Það er auðsjá- anlega eðlilegt að krefjast þess af landsmálaflokki, að hann hafi fram- bjóðendur í tilteknum lágmarks- fjölda kjördæma, og að þau kjör- dæmi dreifist á hæfilega marga landshluta. Ef við t. d. gerðum þá kröfu, að frambjóðendur yrðu í 6 kjördæmum hið fæsta, og að þau dreifðust á 3 hlutfallskjördæmi a. m. k., þá er þar með algerlega útilokað, að fámennur kjósenda- hópur í einu eða tveimur kjör- dæmum geti með samtökum mynd- að svo lága hlutfallstölu, að af því leiðl óeðlilega þingmannafjölg- un. í Danmörku eru ennfremur á- kvæði um það, að fyrir kosning- una verður hver landsmálaflokkur sem ekki hefir áður verið viður- kendur, að Ieggia fram meðmæli frá 10 þús. kjósendum, en það samsvarar nálega venjulegum at- kvæðafjölda fyrir l1/* þingmann. Eitthvaö slíkt mætti auðvitað orða hjer, en hitt væri þó brota- minna og tryggilegra, aö áskilja auk framboðanna, að flokkur, sem hefði ekki fengið fleiri en einn eða tvo þingmenn kosna, gæti ekki komið til greina við útreikning á hlutfallstölu eða úthlutun uppbót- arsæta, ef hann hefir færri en allra greiddra atkvæða á kosinn þingmann sinn, eða hvorn þeirra, ef tveir eru kosnir. Slíkt ákvæði mundi í framtíðinni þýða það, að einn eða fleiri þingmenn kosnir af flokki með svo litlu atkvæðafylgi yrðu skoðaðir sem utanflokka- menn við útreikning kosningar- innar. c. Samtök fámennra kjördæma. Þá hafa menn ennfremur gert sjer í hugarlund, að nokkur fá- menn kjördæmi víðsvegar um land gætu haft samtök sin á milli um það, að meirihluti kjósenda í þeim myndi sjerstakan lands- málaflokk, og ef þau fengju fram- bjóðendur sína kosna í flestum eða öllum þessara kjördæma, án þess að hafa frambjóöendur í kjöri jafnframt í öðrum kjördæm- um, þá gæti þarna komið fram flokkur með fáa þingmenn og svo lága hlutfallstölu, að leiddi til óhóflegrar þingmannafjölgunar. Þegar litið er á fólksfjölda nú- verandi kjördæma, er það alveg ljóst, að í slíkum samtökum yrðu fámenn sveitakjördæmi að vera eingöngu, eða a. m. k. öll uppi- staðan. Sú afleiðingin, sem næst lægi, yrði auðvitaö, að þessi fá- mennu kjördæmi yrðu svift sjálf- stæði sínu og lögð saman við önnur kjördæmi. En nú er þaö vitanlega einkum vegna hagsmuna hinna fámennu kjördæma, sem stungið er upp á að halda skift- ingunni í einmenningskjördæmi, og það er þess vegna afarósenni- legt, að einmitt þau kjördæmi, sem talið er, að eigi hagsmuni sína undir þessu, færu að gera samtök, sem hlytu að leiða af sjer annaðhvort niðurlagningu þeirra sjálfra sem sjálfstæðra kjör- dæma, eða þá sterka óánægju með tilhögunina í heild, sem leiddi til þess, að horfið yrði að hlut- fallskosningum í fleirmenningskjör- dæmum. En þó þannig megi telja afarólíklegt, að slíkt komi fyrir, þá þykir rjett að benda á, aö til er leiö til þess að hindra þetta, sem mundi beinlínis leggja nokk- urskonar refsingu á þá kjósendur sjálfa, sem vildu ráðast í slík sam- tök, sem hjer var lýst. Þess hefir áður veriö getið, að takmörkun á tölu uppbótarsst- anna er ósamrímanleg þeirri til- högun, sem við höfum stungið upp á. Þetta þýðir þó ekki annaö eða meira en þaö, aö ef menn vilja setja takmörk fyrir tölu upp- /(iönd vividit tfiiwvi. Undarlegt er ípland. — Haustkvöldin í fyrra veröa öllum ógleymanleg. Um miðjan sept- ember var molluhiti dag eftir dag, stundum 20 stigogmeira. Loftið var hlýtt og mjúkt eins og dúnsvæflar. Fjörðurlnn lá spegilsljettur, djúpur og þögull. Menn drógu andann varlega, til að raska ekki hinni voldugu kyrð. Náttúran hafði tekið á sig værðir og brosti í svefninum eins og lítið barn, sem dottið hefir útaf frá leik sínum. Miðaldra hjón urðu hljóð og angurblíð, gleymdu dagsins striti og hugsuðu um fornar ástir. Svona var haustið í fyrra. Nú er missiri liðið. Fjörðurinn er spegilsljettur, fjöllin snjólaus að kalla, loftið hlýtt og góðviðrisslikja yfir landinu. Þá var haustið í nánd. Nú á vorið að koma. Þetta land heitir /sland. Við vitum að það ber nafn með rjettu. „Landsins forni fjandi“ hefir verið að ávarpa okkur. Hann ryðst ekki óvörum inn á okkur eins og f gamla daga. Hann hefir tamið sjer nú- tímakurteisi eins og aðrir góðir íslendingar og sendir bara nafnspjaldið sitt til að minna á sig. En það fer hrollur um okkur, þó við sjáum ekki meira en nafnspjaldið. Svona erum við — hinir sjálfstæðu, þóttafullu nú- tíðarmenn — háðir náttúrunni,' þrátt fyrir rafmagn, miðstöðvarhitun og útvarp. Og hvernig á annað að vera, en að geigur sje í okkur? Það er ekki nema rúmur mannsaldur síðan fólkið þusti úr landi fyrir óáran og hallæri. Jeg hefi stundum verið ab velta fyrir mjer einni spurningu: Efsvo hefði staðið á, þegar Haraldur hárfagri ruddist til valda í Noregi, að menn hefðu haft sömu þekkingu og nú á „jarðarkringlunni", að samgöngurn- ar hefðu verið komnar til nútímahorfs — hefðu forfeður okkar þá leitað til íslands? Hefðu þeir ekki farið til Nýja Sjálands eða Kanada eða Argentínu? En hefðu eftirkomendur þeirra eftir þessi þúsund ár verið nokkru bættari ? Ef ísland hefði verið hlutafjelag, hefðu axíurnar stigið um mörg hundruð prócent síðustu 40 árin. Við vitum nú, að fsland á ekki ein- ungis náttúrufegurð, heldur einnig náttúruauð. Qæfa landsins faldi með- vitundina um auðlegð þess, meðan við lutum erlendu valdi. Það var ekki fyr en þjóðarvitund íslendinga var að fullu vöknuð, að lykillinn fanst að járhirslunum. Dutlungaland —og dutlungaþjóðl Hundrað þúsund mennáhundr- að þúsund ferkílómetrum. Þarf að ryðjast og stjaka, ýtast og hatast? Er ekki nægilegt verkefni handa hverjum og einum? Er ekki moldin gljúp og gróðursæl? Bjóða ekki fiskimiðin ómetanlega auðlegð? Við erum háðir náttúrunni umfram flestar þjóðir. Og við erum tengdir náttúrunni. — Náttúran hefir verið „gjöful og góð“ á undanförnum árum. Það er eins og hún hafi viljað ganga á undan landsins börnum með góðu eftirdæmi. Er ekki tími til kominn að hætta illindunum, uppræta tor- trygnina, taka höndum saman og njóta í bróðerni þeirra gjafa, sem náttúran býður? — Já, undarlegt er ísland. En er ekki þjóðin, sem byggir það, ennþá undarlegri? (19.—3.) Huginn.

x

Austfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austfirðingur
https://timarit.is/publication/594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.