Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 30.04.1928, Page 2
2
VIKUOTGÁFA ALÞVÐUBLAÐSINS
veg, sem „frjáls samkeppni" hef-
ir komiö í hið versta öngþveiti,
sbr. síldareinkasöluna og síldar-
bræðslustöðina, er ríkið lætur
byggja og rekur fyrir sinn reikn-
ing.
4. Smábátaútvegur og jarðrækt
eru studd með ráðum og dáð,
sbr. ábyrgð ríkisstjórnarinnar fyr-
ir láni til samvinnufélags fsfirð-
inga til bátakaupa og útgerðar,
og lög um byggingar og land-
námssjóð.
5. Samgöngum á sjó komið í
sæmilegt horf og stórfé lagt til
vega, brúa og síma, sbr. bygg-
ing nýs strandferðaskips og út-
gjöld til vega og brúa, sem nema
800—900 þúsund krónum.
6. Menningarstofnunum komið
á fót og aðrar bættar, sbr. gagn-
fræðaskóla hér í höfuðstaðnum
og rikisrekistur Yíðvárps.
7. Umbætur á hegningarlöggjöf-
inni, bygging nýs fangahúss og
vinnuhælis.
8. Tilraun til að koma stjórn
peningamálanna í pað horf, að
trygt geti talist, fyrir hag heild-
arinnar, sbr. Landsbankalögin
nýju.
Þessar umbætur, sem hér hafa
verið tal'dar, hafa að eins verið
gerðar með það fyrir augum, að
draga úr sárasta sviðanum af
svipuhöggum ihalds og stórút-
gerðarmanna.
Þó þetta þing, sem nú er að
enda, hafi ekki náð að rétta að
fullu við þjóðarhaginn, sem í-
haldið kom í öngþveiti, þá má
vona, að á komandi þingumverði
enn nokkuð unnið til bóta.
En eitt verður þó alþýða
manna að‘ hafa hugfast og það
er: að fullar bætur á þjóðfélags-
ástandi voru er ekki hægt að fá,
fyrr en alþingi er hreinsað af í-
haldsdótinu og frjálshuga og
framadjarfir menn, þ. e. jafnað-
armenn, eru komnir í hreinan
meiri hluta, og tekið hefir verið
upp það ráð að ,Iáta ríkið sjálft
reka atvinnufyrirtæki, s. s. útgerð,
verziun, banka o. fl. og taka það-
an þau útgjöld, er þarf til að
standast kostnaðinn af öllum
rekstri þjóðarbúsins.
Vegavínnukaupið.
Á vegamálastjöri að verða ein-
ráður i kaupgjaldsmálunum?
Hvað gerir bændastjórnin?
Verklýðsfélög eru nú komin í
hvert kauptún um iand (alt.
Eftir margra ára harða baráttu
er nú loks komið svo, að at-
vinnurekendur yfirleitt viður-
kenna þau sem ráttan samnings-
aðila um kaupgjald verkamanna
hvert í sínu umdæmi, ef þeir
gera það ekki í orði, þá haía þeir
gert það á borði.'Með þessari við-
mrkenningu atvinnurekenda má
segja, að verklýðsfélögin séu að
fullu og öllu viðurkend. Hefir og
slík viðurkenning oft kostað
harðari baráttu í öðrum löndum
en við höfum háð hér, — og lengi
var svo, að hún var aðalkrafan.
Félögin eru mismunandi sterk,
og vinnuhættir og dýrtíð er
mjög mismunandi í hinum ýmsu
stöðum á landinu. Hefir þvi kaup-
gjald verið mjög mishátt bæði
fyrir karla og konur. Vantar enn
mikið á um, að það samræmi
sé á komið um kaupgjald víðs
vegar á landinu, sem sanngirni
og réttlæti heimta. Er þar mikið
verk óunnið fyrir alþýðusamtök-
in.
Einn er þó sá atvinnurekandi,
sem eigi hefir enn viðurkent í
verki, að félög verkamanna séu
Jón Þorláksson kvaðst hafa rétt
vdð fjárhaginn.
Skuldiirnar við útlönd höfðu þó
aukist í gullkrónum — þ. e. eftir
réttu peningampti.
Þannig vjax „viðreisn fjárhags-
ins“.
Jón Þorláksson varð því að
háði og spotti, var manna á með-
al nefndur stjórnmála-Sólimann
og ioddari.
Viið fyrsta tækifæri velti svo
þjóðin af sér óstjórninni.
Önnur stjórn tók við þjóðarbú-
inu. Þegar hún fór að litast um
á heiimilinu, gaf á að líta.
Það, sem áður var hulið í
myrkrunum, kom nú framí dags-
ins ljós.
Daglegt viðurværi þegnanna
hafði verið slæmt undir stjórn
íhaidshúsbændanna. En þó þjóðin
væri vondu vön, þá blöskraði
benni, þegar ráðlagið alt varð
kunnugt. Hún fékk að heyra um
stórkostlegar sjóðþurðir undir
han darjaðri íhaldsst jómaTinnar,
um handónýta embættismenn, er
veltu sér í óreglunni, er þreifst
undir „stjórn“ Jóns Þorlákssonar:,
um gifurleg kosningasvik, framin
til góðs fyrir stjórnaTflokkinn,
um samningaívilnanir til erlendra
gróðabrallsfélaga, um gjafir til
þægra íhaidssmala, sbr. Kaldár-
holtssímann, um ívilnanir til borg-
aralegra leynifélaga, um yfirráð
yfir sjóðum, stofnuðum í mann-
úðarskyni, sbr. Thorkilliisjóðinn,
um að „Fiskiveiðasjóöur" hafði
verið rýrður fyrir tilverknað
Magnúsar Guðmundssonar, sbr.
„Stefnis“-hneykslið, um Kroissa-
ness-reið Magnúsar og hin gengd-
arlausp leyfi til erlendra skipa
um að leggja hér á land síldar-
feng sinn, um laun til þingmainma
fyrir trygt fylgi við auðvaldið,
sbr. forstjóratitil Árna frá Múla
og 25 000 króna bæturnar til
Islenzkur helmilisiðnaður.
Sýning Heimilisiðnaðarfélags
íslands.
I.
Heimilisiðnaðarfélag íslands
starfar að því að bæta og auka
íslenzkan heimilisiðnað. Öðru
hvoru hefir það haft námsskeið,
I bæði hér í Reykjavík og út um
sveitir.
Hinn 5. janúar s. 1. hófst hér
í borginni vefnaðarnámsskeið, er
félag þetta stofnaði til. Stóð það
í 3 mánuði — og var kenslu-
gjald 75,00 kr. Sex — og stund-
um sjö — stúlkur tóku þátt í
námsskeiðinu. Húsrúm leyfði
ekki meiri þátttöku. Ungfrú Bryn-
hildur Ingvarsdóttir kendi. Hún
er frá Akureyri.
Fyrir skömmu var haldin sýn-
ing á því, er ofið var á náms-
skeiðinu. Á sýningunmi gafst
mönnum kostur á að sjá margs
konar vefnað, t. d. króssvefnað, I
kjósenda Jóhanns úr Eyjum og
hans sjálfs.
Vitneskjan um þesisi hneyksli
dundi yfir þjóðina á fáum dög-
um eftir a.ð nýja stjórnin hafði
tekið við.
IV.
Ihaldsstjórnin hafði að eins ver-
ið stéttarstjórn auðvaildsins, þægt
verkfæri þess.
Burgeisunum var ekki þyngt
með 'drápskiyfjum. Þær voru
öðrum ætlaðar, alpýdimni.
Bændur og verkamenn fengu
að berá drápsklyfjarnar.
Drápsklyfjar ranglátra tolla.
Drápsklyfjar sukks og óreiðu.
Drápsklyfjar hlutdrægni og sér-
gæðingsskapar.
Drápsklyfjar ómensku og und-
irlægjuháttar við erlent oig inn-
lent auðvald.
Drápsklyfjar atvinnuleysis og ó-
hagstæðrar verzlunar.
Drápsklyfjar skipulagsleysis og
taumiausrar, heimskulegrar sam-
keppni í framleiðslu og viðskift-
um.
Þjóðin hefir losað sig við í-
haldsstjórnina.
Enn þá hvila á henni margar
þeirra drápsklyf ja, • er íhaldið
hafði á hana lagt, en nokkuð
hafa þær þó þegar verið léttarj
1. Skattarnir hafa verið Særðir í
réttlátara horf, sbr. hækkun skatt-
stigans, svo skatturinn kemur
á herðar þeim, sem geta greitt
hann.
2. Nokkur gangskör hefir verið
gerð að því að stöðva óreiðu
embættismanna, rannsaka glæpa-
mál frá stjórnartið íhaldsins, sbr.
rannsóknimar á embættisfærslu
Einars M. Jónassonar, sjóðþurð-
ínni í Brunabótafélagi fslands og
Hnífsdalssvikunum.
3. Tilraunir hafa verið gerðar
til að skipuleggja þann atvinnu-
glitvefnað, salonsvefnað og
spjaldvefnað. Alt var, íslenzkt ad
gerd — og flest úr íslenzku efni.
Þarna voru níu tegundir af
gluggatjöldum, dyratjöld úr ísl.
ull, borðdúkar, veggdúkar, gólf-
dúkar, sessur og kjólaefni úr ísl.
ull, svo falleg, að hver hispursmey
myndi þykjast af þeim fullsæmd,
hvað þá þær, er sníða sér frekar
stakk eftir efnum og ástæðum.
Enn fremur rúmábreiður, ábreið-
ur á legubekki, upphlutssvuntur,
handklæði, diskaþurkur og sokka-
bandaborðar svo prýðilegir, að
þykja myndu hinar fegurstu legg-
ingar á skartmeyjarkjóla. Hagai
hendur og ágætur listasmekkur
höfðu þarna að verki verið, og
víst er um það, að þessi sýninig
sannaði það fyllilega, sem margir
hafa haldið fram, að fært er ís-
lenzkum húsmæðrum að vefa
heima hjá sér tjöld, dúka, á-
breiður og fataefni, sem eru ó-
dýrari, haldbetri og fegurri en
flest það, er allur almenningur
getur veitt sér úr búðunum.
Sýnihgin var Heimilisiðnaðarfé-
lagi fslands, kenslukonunni og
nemendunum til hins mesta sóma.
Stjórn Heimilisiðnaðarfélagsins
skipa frú Guðrún Pétursdóttir,
Halldóra Bjarnadóttir kenslu-
kona, listamennimir Ríkarður
Jónsson og Björn Björnsson,
Maggi Magnús læknir, Matthías
Þórðarson þjóðmenjavörður og
Sigurjón Pétursson verksmiðju-
stjóri.
II.
Ekki þarf lengi um að litast á
Þjóðmenjasafninu til þess að sjá,
að íslendingar hafa verið lista-
menn á vefnað, smíði og fl„ sem
til heimilisiðnaðar getur talist.
Enda þekkja það flestir, sem í
sveit eru uppaldir, að margt,
bæði karla og kvenna, var alt í
•senn, iðjusamt, handlagið og
smekkvlist. 'En því miður hefir
heimilisiðnaði mjög hrakað á
seinni árum, einkum þó heimilis-
iðnaði karla, og smekkvísin virð-
íst fara þverrandi víða í sveitum,
í stað þess, sem hún ætti að
aukast með aukinni fræðslu og
aukinni víðsýni. Raunar var f jöldi
heimila áður fyrr, sem mesti ó-
menningarbragur var á, en mynd-
arheimiljn höfðu við að búa stað-
betri og heilsteyptari menningu
en nú er til að dreifa í flestum
sveitum. En það ætti oss að vera
bæði mentunarmál og metnaðar,
að sem flest heimili á landinu
bæru vott iðjusemi og smekkvísi.
Nú er það svo, að vart sést
nokkur hlutur eða nokkurt fat á
Islenzku sveitaheimili, sem ekki
sé eins og dottinn ofan úr ein-
hverri upphæða-ruslaskrínu. Vist-
arverur fólksins eru vanalega svo
snauðar að allri sannri prýði, að
vænta mætti, að þar byiggju Ástr-
alíublámenn. f svefnherbergjum
hjóna eða gesta eru kannske
handklæðahengi, hvit með rauð-
litaðri danskri setningu. Á kodd-
anum stendur „Sov södt“, „God
Nat“, „God Morgen" eða eitthvað
álíka frumlegt, áhrifaríkt og ís-
lenzkt. f eldhúsinu hjá „fínna“