Vikuútgáfa Alþýðublaðsins


Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 19.12.1928, Blaðsíða 3

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 19.12.1928, Blaðsíða 3
V’KUÚTGAFA ALÞYÐUBLAÐSINS 3 til þess, að húseigendur yrðu að bæta húsnæðið og lækka leiguna. w w \ Er þetta bænnm kleift f jár- hat;slega? Nú munu margir spyrja: Er þetta kleift fjárhagsle^a ? Getnr bærinn sér að skaðlausu veitt þessi kjör? Árlegar tekjur bæjaiins, afborg- anir og vextir af veðskuldum smábýlaeigenda og leiga eftir landsspildurnar, yrðu þessar: Frá 50 búendum kr. 773,00 kr. 38,650,00 Frá 50 búendum kr. 723,00 — 36,150,00 Samtals kr. 74,800,00 Þar frá dragast vextir af 1 milljón, 6°/o, — 60,000,00 Eftir er þá til afborg- unar á fyrsta ári kr. 14,800,00 Afborganirnar færu vaxandi eftir því, sem vaxtagreiðslur- lækkuðu. Með 74,800 króna árlegri greiðslu i vexti og afborgun greiðist 1 milljónar króna lán upp á 28 til 30 árum, ef vextir eru 60/0.4 Þau 10—12 ár, sem kaupendur þál ættu eftir að greiða afborganir og vexti af lánum sinum, fengi bærinn sjálfur féð, og ætti hann þá auðvitað að verja þeim gröða til gagnlegra framkvæmda. Hér hefir nú verið sýnt fram á, að bærinn getur, með því að taka 11/2 milljón króna að láni, hjálpað 200 verkamönnum og sjó- mönnum, sem nú greiða okur- leigu fyrir vistarverur, sem eru stórhættulegar lífi þeirra og heil- brigði, til að eignast sína eigin ibúð | sambyggðum húsum inni í bænum eða smábýli rétt utan við bæinn á ræktuðu landL Lánstraust bæjarins. Arðberandi fyrirtæki og ónrðberandi. Bærinn hefir nóg lánstraust. Honum verður auðvelt að fá lán til þessa fyrirtækis. Og einmitt til svona framkvæmda á að taka fé að láni. Það fé kemur aftur með vöxtum 0 g vaxtavöxtum, bæði beint og óbeint. Nú hefir bærinn ákveðið að taka einnar milljónar króna lán til alveg óarðberandi fyrirtækja að mestu, fyrirtækja, sem borg- ararnir að réttu lagi ættu að leggja fram nægilegt fé til með árlegum útsvarsgreiðslum sínum. Sjúkdómar og fátækt eru afleiðing éhollra íbúða og okurleigu. Fáíækraframfærsla bæjarins þyngist með ári hverju, sjúkra- styrkir og heilbrigðisráðstafanir einnig. Enginn efi er á því, að húsaleiguokrið og öhiollar íbúðir valda miklu um þetta hvort tveggja. Mjólkurskortur og græn- metis dregur og úr þroska barn- anna, gerir þau óhraust og kyrk- ingsleg í æsku og viðkvæm og veik fyrjr plla æfi. Bezta heilbrigðisráðstöfuniin, sem bærinn getur gert, er að hrinda þessu í framkvæmd skjöt- Iega, byggja 100 íbúðir inn í bæn- um og aðrar 100 fyrir utan hann á ræktuðu landi. Það er jafn- framt bezta fjárhagsráðstöfunin, sem hann getur gert nú. Síldareinkasala Islands. Tekið eftlr „Nordisk Hvfisk eri Tidskrift.“ „ÖII íslenzk síld framleidd á árinu 1928 er seld.‘‘ Þessi orð heyrir maður oft sögð um þessar mundir, en venjulega er bætt við. að eftir atvikum hafi gengið vel með söluna, en það sé ekki að þakka hinu lögskipaða fyrirkomu- lagi með veiði, söltun eða sölu, heldur heppni og tilviljun, og beri því ekki að leggja neinn dóm á fyrirkomulagið af reynslu þeirt»i, sem fengin er í ár. Menn. hafa mikið til síns rnáls um það ,að engan döm er hægt að fella um ágæti einkasölunnar að eins af þeirri reynslu, sem fengin er á þessum 6 mánuðum, sem liðnir eru síðan lögin komu i gildi, en í ummælum þeim, sem að ofan greinir, felst að eins hálf- ur sannleikur, því að það er tím- inn einn, — við samanburð á reynslu undan farinna ára —, sem geiur felt endanlegan úrskurð um málið. Fyrr verður féttlátur dóm- ur ekki upp kveðinn. En það má fullyrða, að með sameiningu íslenzkra síldarfram- leiðanda var stigið þýðingarmikið apor fyrir rekstur útvegsins í framtíð/nni. Við það voru fiinir sundurdreifðu kraftar sameinaðir og þeim beitt í rétta ált. Með nægilegum undirbúnings- tíma er ekki ölíklegt, að stjórn einkasölunnar hefði gert fleiri mikils verðar ráðstafanir viðvíkj- andi verkun og sölu en gerðar voru, en það ber vé»tt um ráðdeild og mikla vinnu, að taka við þessu þýðingarmikla máli undirbíM'ngs- laust með nokkurra vikna fyrir- vara og ljúka því þann veg, sem raun er á orðin. Hér er að eins um byrjun að ræða, en það hefir oftast mikla þýðingu, að byrjunin misheppnist ekki. Þegar því litið er til alls, má fullyrða, að á þess- um stutta tíina hefir fyrirkomu- lagið sýnt kosti sína og árangur- inn orðið hinn æskiiegasti. Rockefeller, steinolíueigandinn mikli, segir frá því í broti af æfi- sögu sinni, er hann hefir skrifað, Skélamál eftir Hallgrím Jónsson, kennara við barnaskóla Reykjavíkur. (NI.) Viðkomustaöir, borgir og skólar. Þessir voru skólar þeir, er ég heimsótti í Englandsferð miwni: Hull: Trinity-skóli, skólast frú Hall- Bolevard-skóli, skólastj. C. H. Adamson. Kei/ingh'íin: Yorkshine-skóli, Skólastj. R. Jefferson. Conlsborough: Morley-íelpnaskóli, skólast. A. Blackburn. Morley-dnengjaskóli, skólastj. Herbert Crowtheír. Shefjwld: Marlclif.e-dnengjaskóli, skólastj. W. E. Smith. Marlcliffe-telpnaskóli, skólast. Englest. Marlcliffe-smábarnaskóli, skólast. L. E. Lowes. Princ Edward-skóli, skólastj. M. V. Jolly. Sharnow Lane-dnengjaskóli, skólastj. S. A. Howe. Sharrow Lane-íelpnaskóli, skólast. ungfr. Morgan. London: Buckingham-skóli, skólastj. W. Hunter. Ramlagh Road-skóli, skólastj. D. Ayers. Kingwood Road-drengjasköli, skólastj. Tomas Lea. Kingwood Road-telpnaskóli. Kingwood Road-smábamasköli. Saundemes;Road-skóli, skólastj. Austin Brewer. Oxford: St. Tomas-skóli, skólastj. Chas W. Flosiday. Miðskóli drengja, skólastj. J. H. HiII. Birminghcim: Bristol-skóii, skólastj. H. Mason. Bristol-smábarnasköli, skólast. Lena Garden. Bristol-telpnaskóli, skólast. M. D. Brookes. Ungmennaskóli, skólastj. E. Calverley. Manchester: Georg Leit-smábama- skóli, Georg Leit-miðskóli, Georg Leit-yfirskóli, skólastj. Walter Showgross. Ardwick-skóli, skólastj. P. Kinsey. Leeds: St. Andrews-skóli, skólastj. W. H. Varley. Cross-gaíessmábarnaskóli. Cross-gates-telpnaskóli, skólast. E. Fleming. Cross-gates-drergjaskóli, skölastj. H. Exley. AIls staðar í skólunum sagði ég eitthvað frá íslandi, sýndi myndir og svaraði spurniingum barna og kennara. Auk þessara skóla, sem allir voru slarfandi, kom ég í nokkra jaðra 0g í skölahús, sem verið var að byggja. Voru þau vegleg mjög og með nýrri gerð. Smiði sumra þeirra var nærri lokið. Ástúð og vinaþeli mættum við í hverjum skóla. Eru Englending- ar hinir beztu menn heim að sækja. Vikuútgáfa AlMðublaðsins kemur út á hverjum miðvikudegi, kostar að eins 5 krónur á ári. Gjalddagi fyrir 1. okt. Úrsögn sé skiifleg, bundin við áramót, enda sé viðkomandí skuidlaus. Ritstjóri: Haraldur Guðmundsson, simi 2394. Afgreiðsla í Alþýðuhúsinu, Hverf- isgötu 8, símar 988 og 2350. að þegar hann var ungur og fór að fást við steinolíu, hafi verið fjöldi af námum í Bandaríkjunum yfirgefnar og ekki starfræktar. Fjöldi manna hafði orðið gjald- þrota og hætt við námumar, aðrir gátu ekki rekið námur sínar af peningaleysi, en þær, sem voru starfræktar, undirseldu hver aðra og höfðu á boðstólum óhreinsaða og illa meðhöndlaða vöru. Alt var þannig i mesta ólestri. Hon- um tókst að sameina námurekstt- urinn og mynda „einkasölu'*. I Námueigendur urðu hlu'.hafar, og námur, sem ekki voru reknar, keyptar upp af félaginu. Hneins- unarstöðvar voru bygðar og leiðslur lagðar. Verzlunarhús 0g umboðsmenn voru sett hingað og þangað, þar sem líkindi voru til að olía yrði notuð, 0. s. frv. Það, sem síðar varð, er öllum kunnugt. Þessi nauðstaddi af- vinnuvegur varð eftir sameiniing- una hið voldugasta fjáigróða- fyrirtæki ,sem stofnað hefir verið í heiminum. ' Þegar ég las lýsingu Rockefei- lers á námurekstrinum, er hann tök við stjórninni, fjárhagsástandi eigandanna og öllu fyrirkomulag- inu, datt mér í hug: „Þetta er. orcrétt lýsing á síldarútveginum íslenzka, eins og hami hefir verið rekinn hingaið til.“ Það er sjaldan hægt að spá miklu um pkominn tima, en ekki er ólíklegt, að samtök síldarút- ísland í erlendum blöðum. 1 „Oslo Illustrerte'1, norsku vikuriti með myndum, hefir Per B. Soot blaðamaður skrifað grein, sem byggist á viðtali við húsa- meistara íslenzka ríkisins, Guðjön Samúelsson. Greinin hei/ir „Is- lands bygningskunst för, nu og i frem!iden“. Greininni fylgja myndir af Eimskipafélagshúsiinu, LandakotskirkjUj Landsspítalnaum og Guðjóni Samúelssyni húsa- meisíara. Eru það allmargar greinar um ísland, sem Soot blaðamaður hefir skrifað í norsk blöð og tímarit undanfarna mán- uði, og er það göðra gjalda vert, því að höfundiurinn skrifar af vinarþeli í garð íslands og ts- lendinga og leitar sér upplýsinga hjá sérfróðum mönnum um það efni, sem hann tekur til meðferð- ar. (FB.).

x

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikuútgáfa Alþýðublaðsins
https://timarit.is/publication/596

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.