Vikuútgáfa Alþýðublaðsins


Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 24.12.1928, Síða 3

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 24.12.1928, Síða 3
Aðfangadag jöln 1928. V’KUÚTGÁFA ALPVÐUBLAÐSINS 3 maður ekki sér, inn í ærið nær- skornar flíkur þeinrar fræðigrJn- ar, sem einn íslenzkur, heiðar- legur prestmann hefir kallað hugsunarfræði í þröngri merk- ingu. Petta kom flatt upp á Au- gústínus og illa. Homum fanst nú trúin vera falleg stúlka, sem hann hefði verið skotinn í, en sem guð- fræðipröfessorarnir hefðu tínt af 'gervihár, gervitennur, gerviauga og gervibrjöst og rúið, unz hann sá, að í raun réttri voru petta rústir af gamalli, skorpinní kerl- igu, cg þar með mis'á hannn trúna og áhugann. Beinast hefði nú legið við að hætta guðfræðinámi, en gamla mannleysan var risin afiur upp í honum, og hann hafði fengið heiðarlegt oddtorgarauppeldi, en peir hætta ekki við neiitt í miðj- um klíðum. Pað er á þeirra máli kallað ræflaskapur. Og Augúst- inus sótti upp frá þessu danz- leáki og annan gleðskap samhiiða kenslunnj, en lauk þö náminu á tilsettum tíma. — Við prófið er nefnilega engin einkunin gefín fyr- ar trú og trúarstyrk. Jön Þorvaldsson hafði, meðan á náminu stóð hugsað ráð Aug- ústínusar eins og því var komið, honum þvert um geð. Séra Þör- ölfur dómkirkjuprestur i Reýkja- vik var kominn fast að sjötugu og allhrör, svo Jön þóttist sjá Bð hann myndi gefast upp þá og þegar, og þá 6töðu ætlaði hann Augústínusi. Jón sagði að sér „þætti helviti hart“ að geta ekki komið drengnum að, ef hann á kjördaginn legði tii nægar bif- Teiðir og önnur kjörgögn. Og svo var Augústínus sendur til útlanda til framhaldsnáms að kallað var. Það er sat.t, sem sagt er, að það sé mentandi að ferðast víða, en hitt er jafnvíst, að æigi að nýtast að ferðalagi í þeim efnum,' þarf Bnnað og meira til en að hend- Bst úr einum stað í annan; þ’að þarf elju og vilja til þess að sjá, heyra og skilja. Ferð og ferð er því sitt hvað. Augústínusi var það ljóst að hann ferðaðist til mála- mynda, og .hann var reyndar smám saman kominn að þeirri niðuxstöðu, að alt lífið væri til málmynda og hann var orðinn svo ónæmur, að hann veitti því ekki eftirtekt þó hann yrði fyriir áhrifum og því síður að þau jsætu í honum. Hann sá því hvar sem hann kom það, sem helzt er tnanað framan í útlendinga, en það eru veitingahúsin, fjölleiika- húsin og danzkrámar. Slítoar stofnanir eru þó svo sviplíkar ails staðar, að við lá að Augústínus væri orðinn sannfærður um það með sjálfum sér, þegar hann kom heim, að jörðin væri flöt, en etoki hnöttur. Auðkýíingar eru fjarska oft, og Jafnoft og aðrir menn, gæðamenn; gæði þeirra koma oft í ríkum mæfi fram við einistaklinga. En það er eins og brjóstgæðin nægi ekki til þess að höggva að rötum bölsins, sem bitur marga, þó að þdr ei>gi ráð á því. Þau hjór.in Jón Porvaldsson og kona hans höfðu tekið að sér stúlkubarn, sem hét Hildur, og voru henni vel. Augústínus hafði alt af verið vingjarnlegur við hana, en aldrei veitt hsnni neilna eftirtekt, þvi að hún var á gelgju- skeiði, er liann för utan. Pegar Augústínus kom heim för þó á annan veg. Hildu'r var nú orðin gjafvaxta og ljómaði i fegurð æskunnar, bláeyg, bjarthærð, lítil, blíðleg og dul. Augústínus, sem var sérfræðingur að því, er til kvenfólks kom, var einmitt ný- kominn frá helztu fræðabrumnum i þeim efnurn og kuniii að meta fegurð hennar. Síðan guðfræði- námið sæia hafði hann foxðast að athuga innra byrðið á nokkrum hlut, hann vildi ekki verða fyrir slíkum vonbrigðum aftur, hanu sá því limalagið eitt, en ekki auðinn, sem undir bjó. En Hiidur dáðist að hinum glæsilega, giaðlega unga manni, og hinum ófeimna veraldarmannsbrag, sem á honum var, en sá ekki að bak við gerði glæsimenskunnar var óræktað flag. Hún írúði skilmálalaust edns og óspiltar stúlkur gera, sem elska, og gaf alt, sem hún átti, af heilum hug, en hann þáði og sagði til málamynda fögru orð- in, sem lesa má í annari hvorri neðanmálssögu. Svo kom hveilurinn. Afleiðing- unum af samförum þeirra varð ekki leynt lengur. Fríiin, móðir Augústínusar, sem fyrst veitti því eftirtekt, umhverfðist alveg og nú var göðmenskunni lokið. Hún dásamaði vanþakklæti og spill- ingu Hildar, að hún, eftir að þau hjónin hefðu farið með haaa ems og beztu dóttur, skyldi dirfast ' að tæla son hennar; sér væri hver slægvizkan, hún héldi víst að Augústínus myndi gangá að eiga hana úr því svona væri, hana, sem hefði verið tínd upp af göt- unni, — aidrei. Jón Þorvaldsson tók að vísu í fyrstu notokuð öðru vísi á málinu. Hann leit yfir æfi Augústínusar og virtist sem hefði hann aldrei getað neitt, og þegar hann sá Augústínus í fyrsta sinni eftir að hann fékk fréttina, sleit hann út úr sér: „Þetta gaztu.“ Brátt leit hann þö sömu augum á það og kona hans, og sagðist eins og hann kallaði þ*ð skyldu „femjsera helvítis stelpuna“. Svo vék hann að Hildi nokkrum pen- ingum og rak hana burt, og vissi enginn hvert hún för. En hinn tældi og afvegaleiddi cand. theoh Augúsíinus Þorvaldz sat eftir á- hyggjulaus með óspilt mannorð. Dómkirkjupresturinn, séra Þór- ólfur, var lítið hugulsamur við þá feðga, hann gerði hvorki að segja af sér eða hrökkva upp af, karl- skrattinn; hann var óiseigur eins og margir prestax. Þá losnaði Skollafjarðareyrin, eitt bezta brauð landsins, og skipaði Jón Augústínusi að sækja. Sjálfur skrifaði hann helzta útgerðar- manni kaupsíaðarins, sem alt af hafði verið á kúpunni, en lafað á víxlauppáskriftum Jóns, og lét hann vita, að frámvegis fraim- lengdi hann engar ábyrgðir fyxár hann, nema Augústínus yrði kos- inn. Maðurinn lét sér þetta að kenningu verða og linti ekki lát- um fyrri en Augústínus náði kosningu. Svo lét Augústínus vígja sig til málamynda, en fann við það tækifæri enga strauma heilags anda fara um sig undan höndum hins háæruverðuga og hávelborna herra biskups, ssm ekki var von. Fjórum dögum fyrir jól kom séra Augústinuis til hjarðar sinn- ar, sem beið hans með óþreyju, ekki hvað sízt þær heldri frúr, sem áttu gjafvaxta dætur. 1 hjarta tilvonandi tengdamæðra fellur sæði giftingarvonanna sjaldan. í ófrjóan akur. Og þegar hin dýr- mætu húsgögn, sem hann kom með, voru flutt í bústað hans, fá margt tengdamömmuefnið bak við gluggatjöldin og gægðist út, og byggði loftkastala, þar sem þessum húsgögnum var haglega 'komið fyrir. Séra Augústínus flýtti sér dag- ana fyrir jól að heimsækja heldri menn kaupstaðarins, — kynnast söfnuðinum kallaði hann það. Honum var alls slaöar tekið með kostum og kynjum, með aug- um og eyrum á öllum skráargöt- um og var öspart sýnt framan í heimasæturnar. Hjá Geir Iækni, einum gömlum skölabróður hans, voru viðtökurnar fálegar. Geir svaraði einsatkvæðisorðum og mældi Augústínus hæls og hnakka milli með starandi augum. En Augústínus kipti sér ekki upp við það, hann þekti á Geir, hann hafði alla daga verið sérvitur. Á jólanóttina söng séra Augúst- ínus fyrstu messu. Kirkja kaupstaðar/'ns var ný og snotur. 0g nú í allri jóladýrð sinni, þegar hún var skreytt groni- viði og ljösum, lagði hlýja, vin- gjarnlega birtu út um gluggana og skóp þenncm einkennilega, þægilega kyrðarblæ og friðar, sem ómögulegt er að lýsa, en æ fylgir jóiunum. Kirkjan var troðfull og allir biðu þess með óþreyju að fá að heyra nýja prestinn messa nema 'krakkarnir, sem biðu efíiir því að 'guðsþjönustunni væri lokið, svo að jólatréð gæti komið til skjal- anna. Séra Augústínus stóð fyrir ajt- arinu í fullum skrúða, honum hundleiddist. Honum varð það i þessum sporum að spyrja forsjón- ina, hvað hann hefði gert henni að hún skyldi reka upp á hann þennan skratta. „Barn er oss fætt, sonur er oss gefinn," tónaði prestur. Hann hafði laglega rödd, en hún varð loðin á seinustu orðunum. Eitt andartak, eitt örskot, — hvemig á því stóð vissi hann ekki, — fiaug honum Hildur í hug er hann tónaði þessi orð. Svo leit hann upp á altaristöfluna, mynd af Kristi að reka út úr musterinu, og gleymdi svo Hildi, og för að hugsa um hvernig öllu þessu skikkanlega fólki yrði við, ef 'hann gengi fram og ræki útibús- bankastjórann og kaupmennina úf með hnútasvipum. Séra Augústínus snéri sér fram og sá blasa við sér heimasæturn- ar, sumar ekki- svo slakar, og glaður í geði tönaði hann: „Drott- inn sé með yður.“ Séra Augústínus för í stólinn og hélt predikun um barnið í jötunni, stjörnuna í austri og alt þetta, sem allir prestar hafa sagt á jólanótt síðan stéttin varð til; ágætis sýnishorn af þeirri ræðu- gnild, sem háskölakennar nn hafð) kent honum í guðfræðideildimni. Svo hljómaði jólasálmurinn: „Heims um ból helg eru jól.‘; Guðs'þjónustunni var lokið og séra Augústínus og hinir öþolin- móðu krakkar voru leystir úr prísundinni. Það var komið ofsarok og slag- veður úti, og menn tíndust því dræmt úr kirkjunni, menn kin- okuðu sér bersýnilega við að fara út í illviðrið. 1 anddyrinu hittust þeir Geir læknir og séra Augústínus. „Gleðjleg jö,l,“ sagði presíur, en læknirinn leit á hann sem snöggv- ast og ansaði engu. Séra Augúst- ínusi stöð á sama, en mundi þá eftir því að hann átti enga hress- ingu heima fyrir og beygði sig að lækninum hvíslandi: „Held- urðu að þú látir það ekki heita hundaskamt í tilefni af hátíð- inni?“ Læknirimm Ieit svo fast og lengi á prest, að um hann för. Svo svaraði hann: „Getur komið til mála, ef þú fylgir mér í sjúkravitjun suður á fjöruna." „Ertu hringavitlaus, í þessu of- viðri," sagði prestur steingrallara-" Iaus. „Tempestas miseriae, of- viðri eymdarinnar; en þú ert auðvitað hræddur um pípuhatt- inn og kragann. Sjúklingurinin, sem ég fer til, þarf á presti að halda, — þarf á þér að halda,“ sagði læknir. „Já, en jiað er beð- ið eftir mér hjá bæjarfógeta,“ svaraði séra Augúsíínus. „Hvað heldurðu Kristur hefði gert?" spurði læknir. „Alt af skella þeir Kristi á okkur prestana,“ hugs- aði* séra Augústínus, en sagði við læknirinn: „Jæja, ég skal koma jneð þér, en þú lætur mig þá fa skamt'inn.“ Svo lögðu þeir út í veðrið. Það var eitt versta veðrið, sem Augiistínus hafði komið út I. Hempan flæktist slydduvot um jfætur honum, og regnið rann af pípuhattbörðunum niður gagnaug- un á honum, og hann fyltist reiði við Geir og sérvizku hans, þegar hann sá skuggana af jólatrjám og kátum bömum á gluggunum, sem íiann gekk framhjá.

x

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikuútgáfa Alþýðublaðsins
https://timarit.is/publication/596

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.