Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 25.03.1931, Side 1

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 25.03.1931, Side 1
VsksatóÉgáfa. 25. marz 1931, Gefið út af Alþýðuflokknum. Stórmerkiieg nýjnog í læjarreksíri. •flafflaiíjsrðaröær kaupir togara ob byrjar bæjarútgerð. Áriö 1926 fengu jafnaöarmenn imeiri hluta í bæjarstjórn Hafn- arfjarðar. Og með pví hefst nýtt tímabil í sögu bæjarins, bæði á sviði menta- og menningar-mála og eins í öllu athafnalífi. Eitt af fyrstu verkum meiri hlutans í bæjarstjórninni var að reisa nýjan og stóran barnaskóla hancia bænum. Þeirri byggnigu var lokið haustið 1927, og er sá skóli án efa reisulegastur og full- komnastur allra barnaskóla í kaupstöðum landsins utan Reykjavíkur, enda kostaði bygg- ingin með öllu um 200 pús. kr. Og pegar bærann hafði fengið pennan myndarlega barnaskóla, var skólaskyldualdur bama færð- |ur niður í 7 ár, og hefir Hafnar- fjörður haft forgöngu í lækkun skólaskyldualdurs. Við byggingu nýja barnaskól- !ans í Hafnarfirði gat bærinn tek- ið gamla barnaskólahúsið til annarar notkunar. Þar er nú pinghús bæjarins, með allrúmum, góðum og vistlegum sal. Par eru bæjarstjórnarfundimir haldnir, «g er Hafnarfjörður par fremri Reykjavíkurbæ, sem verður að leigja hús fyrir bæjarstjórnar- fundi sína, og hafa pá í óvist- legri og ófulikomnari húsakynn- um. Og pinghús Hafnarfjarðar er nú einnig samkomustaður fyrir fundi verklýðsféalganna. Þar er og bókasafn Hafnarfjarðar geymt. En pessi atriði snerta barna- 'fræðsluna og fundahúsakost og önnur menningaxmál í Hafnar- firði. Og pá er komið að pví, er átti að verða aðalefni pessarar frásagnar. Hafnarfjörður er bær verka- mannanna, bær fiskiútgerðar og framkvannda. En eins og víða er atvdnnureksturinn í höndum ör- fárra manna. Þegar peim pókn- ast, eða pegar peir pykjast til neyddir, draga peir saman starf- semina, jafnvel hætta með öllu eða flytja í burtu. Þá kemur ör- yggisleysi verkalýðsins átakan- lega í ljós. Þeir fá ekki að vinna — fá ekki að skapa auð. Og af pvi verkalaunin ná venjulega að eins til næsta máls, pá sverfur skorturinn að verkamönnum um ieið og atvinnan bregst, um leið og vinnuna vantar. Hafnfirzkur verkalýður hefir íyr og siðar fengið að kenna á atviunuskorti. Árið 1927 var eitt slíkra ára. En pá tóku jafnaðar- menn í bæjarstjórn tU nýrra ráða. Þeir ákváðu að bærinn tæki togara á leigu, að hálfu leyti á móti útgerðarfélaginu Ak- urgeTÖi. Þessi togari var Clemen- tina, nú Barðinn. Á móti pessu barðist íhalddð af öllum mætti, en árangurslaust. Rógur og níð um bæjarútgerðina og forgöngu- menn verkalýðsins í Hafnarfirði steig pá fjöllunum hærra. En fulltrúar verkamanna létu engan hilbug á sér finna. Bærinn gerði togarann út á vetrarvertið 1927 í félagi við Akurgerði. Sú útgerð bjargaði mörgum verkamanni frá atvinnuleysi og skorti. Og prátt fyrir óhagstæða aðstöðu að ýmsu leyti, varð pó hagnaður en ekki tap af pessari útgerð. Þegar útgerðin óx í Hafnarfirði tók að bera á^bryggjuskorti. Til pess að bæta úr pví réðist Hafn- arfjarðarbær (hafnarsjóður) i pað að byggja nýja og fullkomna haf- skipabryggju. Þeirri byggingu er nú að mestu leyti lokið. Nýja bæjarbryggjan á ágætum stað, er nú tekin í notkun. Þar geta legið 5 veiðiskip í einu og feng- ið afgreiðslu. í vetur hefir atvinnuleysi prengt hart að verkamönnum í flestum kaupstöðum landsins. Hafnarfjörður er par engin und- antekning. Og fyrir rás viðburð- anna hefir pað skipast pannig !til í Hafnarfirði, að útlit var fyrir að verulega myndi draga par úr fiskiútgerð. En með pví móti var yfirvofandi hið alvarlegasta at- vinnuleysi og skortur meðal verkalýðsins. Jafnaðarmenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar sáu pví að til vandræða myndi horfa. Framtaks- semi einstaklinganna dugði ekki til framdráttar verkamönnum bæjarins. Það varð pví að grípa til annara ráða. Og par var ekki látið sitja við orðin tóm. Að for- göngu meiri hlutans í bæjarstjórn keypti bærinn (hafnarsjóður) fasteignina Vesturgötu 12 í Hafn- arfiröi, sem er verzlunarhús með skrifstofum, 2 vörugeymsluhús, fiskpvottahús og réttindi að stórri lóð, sem eignir pessar standa á við strandlengjuna ofan við nýju bæjarbryggjuna, ásamt báta- bryggju, kolasvæði og ’öðru, sem eign pessari fylgdi. Einnig keypti bærinn um leið og af sama manni stóra fiskverkunarstöð á svokölluðu Flatahrauni með purkhúsi og fiskgeymsluhúsi og stórum fiskverkunarreitum með vögnum og sporbrautum. Kaup pessi voru sampykt í bæjarstjórn Hafnarfjarðar með öllum atkvæð- um gegn 1 (íhaldsm.). Með pessu móti hafði bærinn eignast ágæta lóð til stórútgerð- ar, og liggja eignir pessar vel við í alla staði og eru stórlega verðmætar. En pá var eftir að fá skipakost til pess að geta starfrækt stöð- ina. Og Hafnarfjarðarbær hætti ekki við hálfnað verk. Jafnaðar- inennirniT í bæjarstjóm réðu pví pess vegna að bærinn keypti tog- arann Maí, og er hann nú gerður út af bænum í vetur. Kaupin voru sampykt í bæjar- stjóminni með atkv. alfra jafnað- armanna 5 gegn 3 íhaldsatkvæð- um. Einn íhaldsmaður sat hjá. Með pessu hafa jafnaðarmenn í Hafnarfirði haft forgöngu að pví, að bæjarfélag kaupir og starf- rækir togara. Og er pað stór- merkileg nýjung _ og eftirtektar- verð í íslenzkri verkalýðshreyf- ingu. Stórútgerð Hafnarfjarðarbæjar er nú byrjuð. Framkvæmda- stjóri útgerðarinnar er Ás- geir Stefánsson byggingameistari, alkunnur Alpýðuflokksmaður, sem pektur er að dugnaði og framkvæmdum. Mun Hafnarfjarð- arbær par hafa verið heppinn í vali á fyrsta framkvæmdastjóra sínum við eigin stórútgerð. Og fulltrúar Alpýðuflokksins í bæj- arstjórn Hafnarfjarðar með hin- um unga en ötula bæjarstjóra Emil Jónssyni verkfræðing standa sem einn maður að pessu mikla áhugamáli hafnfirzks verkalýös. Og pað munar um minna í athafnalífi Hafnarfjarðar en útgerð eins togara. Það sam- svarar pví að Reykjavíkurbær' keypti og gerði út 8 togara. Ef útgerð eins togara er rekin eins og hægt er alt árið, mun mega gera ráð fyrir að kaupgjald til verkalýðs á landi og á sjó nemi um 200 pús. kr. Með pví geta margar verkarrtannafjölskyldur framfleytt lífi sinu. Jafnaðarmenn í Hafnarfirði hafa látið verkin tala. Þeir hafa sýnt pað, að pá skort- ir hvorki áræði né samtakamátt til pess, að vinna að hagsmunum verkalýðsins. Og verkalýður um alt land mun gleðjast yfir hin- um stórstígu og djarfmannlegu framkvæmdum stéttarbræðra •sinna í Hafnarfirði og óska pess af heilum hug, a.ð fyrsta stórút- 11—12. tbl V. árg. gerð íslenzks bæjarfélags verði varanlegur hagnaður hins vinn- andi lýðs. Stefán Jóh. Stefánsson. íhaldsbónorð. Ihaldsmenn á alpmgi sárhændu Alpýðuflokkspingmennina nýlega að leggja peim lið til að fella stjórnina. Hafði Ólafur Thors upp bónorðið á pingfundi í neðri deild. Haraldur Guðmundsson lagöi pá praut fyrir pá, hvort peir vildu pá sýna í verki, að peir væru eitthvað að skána, með pví að sampykkja og lögtaka ásamt Alpýðuflokksmönnum frumvarp Alpýðuflokksfulltrúanna um kaup og kjör verkamanna í opinberri vinnu. Það pótti Ólafi til alt of mikils mælst, að peir gerðu svo mikið fyrir verkalýðinn, enda var pað nú eitthvað annað en að peir gerðu pað. Haraldur benti peim pá á, að pað inyndu marg- ir mæla, að pó núverandi stjórn \-æri afleit um margt og henni ekki bót mælandi, pá væri pað pó að fara úr öskunni í eldinn að fella hana, ef fiad yrdi til fiess ad íhaldsstjórn tceki vid. ^að væri einmitt minningin um pað, hvernig íhaldsstjórnin reyndist, sem yrði núverandi stjórn mest til stuðnings. Ann- ars myndu Alpýðuflokksmenn ekki haga gerðum sínum að neinu leyti eftir pví, sem íhalds- menn óskuðu, og Iworki greiða atkvæði ,um stjórnarsetu epa stjórnaTfall eftir bónorði peirra. Vedtir nú varla af að „trippa- veiðarinn" reyni að spengja sam- an hrygginn á íhaldinu eftir pess- ar ófanr. Hngnr 'stórútperðarbar- geisa til bátasjómanna. Frumvarp Haralds Guðmunds- sonar um tilraunir með vedðar- færi og veiðiaðferðir, sem komið geti bátasjómönnuim að notum, var nýlega til l. úmræðu í neðri deild alpingis. Þar opin- beraði Jón Ólafsson hug sinn tii bátasjómanna með pví bæði að tala gegn frumvaTpinu og greiða atkvæði gegn pví. Ólafur Thors kallaði pað lika smámál. Hann var ekkii að biðla til bátasjó- manna um atkvæði pá stundina. Frumvarpinu var vísað til 2. umr., en á móti pví greiddu at- kvæði auk Jóns Ól. prír flokks- bræður. hans: Magnús Guðm., Hákon og Jón á Reynistað.

x

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikuútgáfa Alþýðublaðsins
https://timarit.is/publication/596

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.