Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 25.03.1931, Blaðsíða 8
8
VtKUOf'GAFA ALÞ ÝÐUBLAÐ8tNS
lélbátor sekkur.
Mannls|örg með nanminduniK
Á fimtudagskvöldið rákust á
tveir vélbátar á Skipaskagahöfn.
Hét annar „Reynir“ (um 18
smál.), skipstjóri Ástvaldiur
Bjarnason, og „Hrefna“ (36
smál.), skipstjóri Loftur Halldórs-
son. i Vildá petta til suður af
Bræðraparti klukkan milli 7 og
8. „Hrefna" var búin að afferma
fiskinn, en „Reynir“ var á leið
að afferma. Höfðu báðir bátar
Ijós; veður var sæmi-legt, pó
nokkuð hvass austan. Rendi
„Hrefna“ á „Reynif stjórnborðs-
megin fyrir aftan •fTamsiglureið-
ann. Fór „Reynir" pegar að
sökkva og var sokkinn eftir 2—3
mínútur. Komust skipverjar með
maumindum upp í „Hnefnu“, enda
voru surnir að vinna undir þilj-
— 16./3.
um. Alls voru fimrn menn á
„Reynd“, en enginn slasaðist.
VéLamaður á „Reyni“ var Guð-
jón Árnason, hásetar Ellert Jóns-
son, ÓLafur Magnússon og Há-
kon Jörundarson. Eiga allir þess-
ir menn heima á Skaga.
Kafari var sendur frá Reykja-
vík laugardagsmorgun (Einar
Eggertsson) og fór hann þegar að
undirbúa björgunina. Um miðjan
dag kom „Þór“ upp á Skaga og
tókst að koma bátnum upp í
fjöru um kvöldið. Á sunnudags-
morguninn var tekinn úr honum
fiskurinn og neglt fyrir gatið,
og kom „Þór“ með bátinn til
Reykjavíkur sunnudagskvöld.
Sjóréttur hefir ekki enn þá ver-
ið hal-dinn.
f bfðrtu báll
stóð Staðarhóll á Langholtshálsi,
hús Einars Kristjánssonar, Fjöln-
isvegi 5, í gær þegar brunaliðið
kom þar að. Samt tókst að
slökkva þannjg að bakhlið húss-
ins og raftar standa enn, en alt
innanstokks brann, því brunann
bar svo fljótt að höndum, að
engu varö bjargað. I húsinu býr
Guðjón Pálmason, kona hans
Ástfríður Árnadóttir og sveinbarn
á fyrsta eða öðru ári- að nafni
Pálmi. Guðjón sLasaðist um dag-
inn og er bíánn að liggja í mán-
uð í Landsspítalanum, svo kon-
an var þarna ein m-eð barnið.
En svo bar til þegar slysið vildi
til, að Kristján faðir húseigand-
-ans var þarna staddur og ætlaði
aó þíða vatni-ð í vatnspípunum,
en það var frosið. Hafði Kristján
til þess prímus, en það kviknaði
í hálmi, er vafinn var um vatns-
leiðsluna, og Læsti eldurinn sig
í hefilspæni milli þils og veggja,
en tróðið í veggjunum var ein-
göngu hefilspænir.
Mistu þau hjón þarna alla bú-
slóð sína. Em þau Ástfríður og
Pálmi liltli nú í Múla-.
SkildingaiessmáiiO.
#
Skildnesinyar óska sameininoar Skiidinganess við Reykjavik.
104 hús-, lóða- og land-eigend-
ur í þeim hluta Seltjarnarness-
hrepps, sem á að sameinast
Reykjavík samkvæmt frumvarp-
inu um stækkun lögsagnarum-
dæmis Reykjavíkur, hafa sent al-
þingi áskorun um að samþykkja
frumvarpið. Vær.tanlega verður
alþingi við þessari sameiginlegu
ósk Reykvíkinga og Skitdnesinga.
Veiðarfærabætur
bátafiskimanna.
Haraldur Guðmundsson flytur
frumvarp á alþingi um, að rikis-
stjóminni hedmilist að verja alt
að 50 þús. kr. á ári ‘tál þess að
gera eða láta gera tilraunir með
vei'ðarfæri og veiðiaðferðir, sem
lrtt eða ekki eru notuð eða eigi
fullreynd af íslenzkum fiskimönn-
um, en líkur benda til að geti
reynst hér vel og orðið til gagns
og umbóta fyrir sjávarútveg og
fiskveiðar.
1 greinargerð fbrumvarpsins er
bent á, að svo má telja, að línur
og þorskanet séu hin einu veiðar-
færii, sem notúð eru alment hér
við land á fiskibátum, bæði
stórum og smáum, að síldveiðum
undanteknum. í nágrannalöndum
olckar eru ýms fleiri veiðarfæri
notuð með góðum árangri. Er
þess full þörf, að rannsakað sé
til hlítar, hvort eigi myndi borga
sig fyrir íslenzka fiskimenn að
afla sér þeirra. Að sjálfsögðu er
gert ráð fyrir, að ríkisstjórnin
láti gera þessar tilraunir í sam-
ráði við og undir eftirliti sér-
fróðra manna á þessu sviði.
Kaupendur
Alþýðublaðsins (vikuútgáfunn-
ar), þeir, sem eiga ógreitt á-
skriftargjald, eru hér með vin-
samlegast ámintir um að greiða
það. Alþýðuflokkurinn hefir. ekki
annað fé til þess að gefa blaðið
út fyrir en það, sem kemur frá
kaupendunum, því engar auglýs-
ingar eru í blaðinu.
Emkasðluheimiiti
h&ndai bæjar* og sveitar- félögum.
Erlingur FTÍðjónsson flytur
frumvarp á alþingi um heimild
handa bæjar- og sveitar-stjórnum
til að taka í sínar hendur einka-
sölu hver í sínu umdæmi á nýj-
um fiski, brauðum, mjólk, salti,
kolum, sementi og trjáviði. Sömu-
leiðis sé bæjar- og sveitar-félög'-
um, þar sem svo hagar til, að
hætta getur verið á siglingateppu
nokiíum hluta ársins vegna haf-
íss eða annara hindrana, heimilt
að taka einnig í sínar hendur
innflutning og sölu á öðrum'
nauðsynjavörum til tryggingar
því, að ekki verði sicortur á
þeim í bænum eða sveitinni.
Skulu bæjar- og sveitaT-stjórnir,
þar sem svo hagar til, taka ár-
lega ákvörðun um, hvort heim-
ildin skuli notuð og þá hve lang-
an tíma úr árinu. Ef sveitar- eða
bæjar-stjórn vill ekki annast sjálf
innflutninginn og söluna í um-
boði bæjarins eða sveitarinnar,
þá geti hún samið um birgðainn-
flutninginn við verzlanir með
þeim skilyrðum, er hún álítur
trygg, fyrir því, að nægar nauð-
synjavörubirgðir verði ætíð til
reiðu þann tíma, sem hætt er við
siglingateppu. — Á því er ótví-
ræð nauðsyn, að hið opinbera
geri ráðstafanir til þess að
tryggja þá hluta landsins gegn
siglingateppu, sem í imestri hættu
eru vegna hindrana af hafís. Fyr-
ir þá hættu er auðvelt að girða
með því að flytja inn nægilega
snemma vetrar eða að hausti
hæfilegan forða af nauðsynjavör- |
um, til þess að nægilegt sé fram j
á næsta vor, og er eðlilegast og
affarabezt, að hlutaðeigandi bæj-
ar- og sveitar-félög annist þann
innflutning eða sjái um, að hann
sé framkvæmdur, svo sem til er
ætlast í frumvarpinu.
Þær nauðsynjavörur, sem tald-
ar ei*u í upphafi greinar þessar-
ar, myndu geta lækkað að mun
í verði með bættu skipulagi á
sölunni, og þegar verzlunin væri
ein og rekin til hagnaðar fyrir
bygðarlagið, í stað þess að ó-
þarflega margir selji vörurnar
hver í sínum króki, þá myndi
kostnaður og álagning á þær
geta minkað að mun og þær
orðið ódýrari að því skapi.
í ■ framsöguræðu smni við 1.
umr. um frumvarpið benti Eri-
ingur m. a. á, að hér í Reykjavík
er nýr fiskur venjulega seldur í
smásölu til soðningar á 30 aura
kg. og jafnvel upp í 50 aura, en
í^heildsölu til útlanda myndi ekki
fást meira en sem svarar 12 aur-
um fyrir kg. miðað við fisk með
höfði og slógi. Fyrir mjólk fá
framleiðendur ekki meira en 20
aura fyrir lítra, sem *breytt er í
smjör, ost og skyr, en hér er
mjólkurlítrinn seldur á 44. aura.
Sýnir þetta bezt þá miklu nauð-
syn, sem á því er, að bæjarfélög-
in fái heimild til að taka söluna
í sínar hendur til þess að neyt-
endur geti fengið vöruna með
sannvirði og jafnframt til þess að
betra eftirlit verði með góðri
meðferð vörunnar heldur en nú
er.
Pétur Ottessn og bygðabann.
Fyrir nokkrum árum var flutt
á alþingi frumvarp um svonefnt
bygðaleyíi, en var raunar um
bygðabann og átthagafjötra fá-
tækra manna. í gær hóf Pétur
Ottesen upp harmatölur um það
á alþingi, að þessu endemismáli
hefir ekki verið fram haldið á
síðustu jþingum. Þótti hornmi
mjög illa farið, að bygðabannið
var ekld lögtekið.
Nakin stúlka.
Nýlega varð sá atburöur í Mir
lano, að ung rúmensk listakona
steig upp á pall minmsmerkisins
af LeonardL de Vinri og byrjaði
að halda ræðu um yfirburði nátt-
úrunnar yfir allri list. Þegar
mannfjöldi |!mikill var safnaður
saman þarna, vildi unga stúlkan
sanna það, að hún hefði á réttu
að standa og fletti sig klæðum,
þar til hún stóð alls-nakin á pall-
inum. Lögreglan kom með teppi
og skýldi stúlkunni og flutti hana
á ritlausra-spítala.
Óeirdir á Madeira.
Um miðjan síðasta mánuð
brutust út miklar óeiröir á Ma-
deira. Höfðu verkamenn lýst yfir
allslierjarverkfalli og var orsökin
sú, að brauðkaupmenn okra á
brauðinu. Verkfallsmenn gengu í
kröfugöngum um göturncir og
kröfðust lækkunar á brauðverð-
inu. Eftir nokkurra daga alls-
herjarverkfall ' var brauðverðið
lækkað, og hófst þá vinna sam-
stundis að nýju.
Nýtt bankahrun á Frakklandi.
Sunnudaginn 8. fehrúar síðast-
liðinn tók franska lögreglan tvo
bankastjóra höndum. Hafa þeir
að undanfömu stjórnað banka
nokkrum, er hefir haft 150 banka-
'útbú í Mið-Frakklandi. TÖp bank-
ans nema um 20 milljónum
franka. — Bankar hrynja, at-
vinnutækin stöðvuð, atvinnuleys-
ið eykst, fólkið hungrar — millj-
ónum er varið til hernaðarundir-
búnings. Við lifum í auðvalds-
heimi.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður;
Ólafur Friðriksson.
Alþýðuprentsmiðjan-