Vikuútgáfa Alþýðublaðsins


Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 22.06.1932, Side 1

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 22.06.1932, Side 1
22. júní 1932. Gefið út af Alþýðuflokknum. 33. tbl. VI. árg. Kjördæmamálið og undanhald Sjálfstæðisflokksins. Kaflar úr ræðum Jóns Baldvinssonar við loka- tim ræðu fjárlaga í efri deiid alþingis 6. júní. Þa'ð er nú kallað „þrái“, „stífni“ og „stórtækni", að halda fram því, sem í allan vetrrr og síðast fyrir nokkrum dögum var i blaði þingmannsins (Jak. M.) kallað „réttlætismálið". Mætti niörg ummæli til tina, ef þurfa Þætti, til að sýna. snúniinginn. Það er því hægt að slá því íöstu, að Sjálfstæðisflokkurinn hefir breytt um stefnu i þessu máli. Hann hefir algerlega brugð- ist sinum yfirlýsingum, sem hann hefir gefið kjósendum og borið frani á þessu þingi og haldrlö á ‘°fti í blöðunum. Alt þetta hefir hann svikið með því að slá mál- inu á frest á svo óákveðinn hátt €ins og hann hefir gert. Hv. 3. landskjörinn [Jón Jóns- son í Stóradalj hefir nú staðfest m óheilindin í stjórnarskrármál- inu. Það er sern sé þannig, að það eina, sem Sjálfstæðismenn hafa að reiða sig á, er það, að háttv. þingmaður [Jón JónssonJ Þykist eygja einhverja möguleika til að leysa þetta mál á næstu árum, svo að vel mætti við una, eða — eins og hann tók fram í sömu ræðu — á þann hátt, ssm Framsóknaiflokkuiinn allur gæti samþykt. Ég bendi á þessi ummælii hv. Inngmanns til þess að sýna, hve veik þessi von er hjá hv. 1. lands- kjörnum [J. Þorl.] og hve veikar Þær ástæður eru, sem hann hefir nú fram að færa fyrir því, að hanfi hefir nú breytt um stefnu í ínálinu. Ég vil alls ekki fuliyrða, að þeir viti það sjálfir, að málið gengur eklci fram. Ég vil vona það, að þeiim verði aö þeirri trú, að hæstv. forsætisrá&herra geti með einhverjum mönnum úr F ramsóknarflokknum samþykt t'iöunandi lausn á málinu í ueðri deild, en eins og hún er skipuö nú, þarf að fá atkvæði þriggja Framsóknarmanna ,auk jafnaðar- inanna og Sjálfstæöismanna, til aö koma fram málinu í neðri deild, og ef efri deild væri þá skipuð eins og nú og hv. 3. lands- kjörinn [Jón í Stóradai] kæmi þá ■anga á möguleikann og yrði með i efri deiid, þá mætti vera, að roálið næði fram að ganga. En allar yfirlýsingar um þetta benda 'frekar í aðra átt, svo að það er °mögulegt, að nokkur maður geti N!. staöið upp og haldið því fram í alvöru, að von sé um lausn máls- ins á næsta þingi, eins og Sjálf- stæðismenn viija nú fullyrða. — Hv. 1. landsikj. [Jón Þorl.] skýrir aðstöðuna nú nokkuð öðru vísi en hann hefir gert áöur. Hann segir, að nú hafi að eins tvent legið fyrir, annað að knýja fram nýjar kosningar, en hitt að fresta málinu til næsta þimgs. Hv. þingmaður var ti-úaður á það, og ég býst við, að það hafi verið rétt hjá honum, að Fram- sókn hefði látið undan, ef fast hefði verið staðið á móti. En þegar fyrir mánaðamótin fór að finnast bilbugur á Sjálfstæðis- mönnum. Framsóknannenn gengu fram i þeirri dul, að þeir gætu kúgað Siálfstæðismenn og fengið þá til að ganga frá því, sem þeir höfðu harist fyrir ásamt Alþýðuflokkn- um. Það má segja að þetta hafi farið fram á þann hátt, að Fram- i sóknarmenn hafi tekiö þá með | sér upp á hátt fjall og sýnt þeim j yfir alt landið og bent þeim á ! verzlunarflotann, fiskiflotann og j dómsmálin og sagt: „Ait þetta ; leggjum vi'ð undir ykkar umsjón, i ef þið fallið frá kröfum ykkar í j kjördæmaskipunarmálinu.1' Og j sjá! Sjálfstæðismenn féllu fram I og tilbáðu Framsókn og lögðu j Magnús Guömundsson til sem umsjónarmann. Þá vii ég minnast á frestinn, sem hv. 1. landskjörinn jJón Þorl.] sagði, að mögulegt hefði verið að fá hjá gömlu stjórninni, án þess að fá lausn kjördrema- málsins. Ég er sannfærður um það, að ef hægt hefði verið að fá gömlu stjórnina til að fresta þing- inu þangað til í ágúst, þá hefði hún nauðug viljug orðið að ganga að kröfum Alþýðuflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins í kjör- dæmaskipunarmálinu, af því að það er áreiðanlegt, að miargir Framsóknarmenn eru eða réttara sagt voru komtiir að raun Um það, að ekki yrði hjá því kom- isit að slaka til í þessu máli. En margir þeeirra munu hafa liitið svo á, að þeir yrðu að fara hieim til kjósendanna til þess að bera sig saman við þá. En þegar Sjálf- stæÖSsflokkurinn hefir slakað til í annað sinn, — hann gerði það fyrst á sumaxþinginu, — þá þurfa Framsóknarmenn ekki að vera hræddir lengur, því máöur, því að þá sjá þeir að engin hætta er á, að Sjálfstæðismenn, sem gengu frá kröfum sínum 1931 og 1932, geri það ekki líka 1933. Ég vísa algerlega á bug þeirri ások'ur sen: hv. 1. landskjörim [Jón Þoriákssonj bar á mig, að ég hefði látið fitnna bilbug á mér í kjördæmaskiþunarmálinu, því að hann hefir enga ástæðu til að ætla, að við Alþýðuflokksmenn séum nú á neinn hátt að hverfa frá þeim kröfum, sem við höf- úm í vetur haldið fram ásamt Sjálfstæðisflokknum. Um þetta mál hefir enginn á- greiningur verið, og mér er kunn- ugt um það, að hv. 1. landskjör- inn [J. Þorl.] hefir margsagt, að hann viidi halda máliinu til streitu og knýja lausn þess fram á þessu þingi eða þessu ári. Og það hefði munaö miklu, ef þessi fres.ur á þingónu heíði feng- ist þangað til í ágúst. Þá hefðu Framsóknarmenn fengið tíma og tækifæri tiil að endurskoða sínar tillögur í málinu, og þá hefðu þeir hloti'ð að láta unclan síga, ef enginn bilbugur hefði fundist á andstæðingunum. Það heföi ver- ið mikill niunur á því eða eins og alt er nú. Nú vita Framsóikn- armenn, að þeir hafa viss tök á Sjálfstæðisílokknum, þau tök, að bjóða honum stöðu í stjórninni. Að því gekk SjálfstæÖisflokk- urinn, og þar sem hann hefir nú slakað þannig til, þá getur Fram- sóknarflokkurinn búist við tilslök- unum áfram frá þeirra hendi. Það er því miður hætt við að þeir gangi upp í þeirri dul, nema því að eins að Sjáifstæðismenn sjái nú að sér á næsta þingi, ef þá verður aðstaða til að leysa þetta mál. Þá vil ég benda hv. 1. lands- kjörnum [Jóni Þorl.] á það, að það eru erfiðleikar á því fyrir jafnólíka flokka og Alþýðuflokk- inn og Sjálfstæðisflokkinn að standa saman í baráttu um mál eins og þetta, þó aö það sé miíkið réttlætismál. Sóknin í þessu máli kostar það, að setja verður til hliðar ýmis önnur mál, sem þó eru stefnumál þeirra, eins og gert hefir verið í vetur. Þess vegna verður því erfiðara að leysa mál- ið, því lengur sem slík barátta stendur. Þesis vegna eykur allur frestur á erfiðleikana. Því leng- ur sem það dnegst að leysa það, því minni líkur eru til að fram náist fullar kröfur. Mótmæli. Vegna þess að greinin: „Aðvör- un til foreldra“, sem birtdist I 135. tölubl. Vísis þ. á. með undirskrift- inni „Kennari", hefir vakið ill- kvittnislegt tal um kennarastétt Reykjavíkur, leyfum vér undir-. rituð oss aö taka fram eftirfar- andi: 1) Vér mótmælum eindregið þeirii stefnu, sem Hjörtur B. Helgason heldur frarn í 142. tölu- blaði Vísis þ. á. um pólitíska starfsemi A. S. V. meðal barna. Munum vér undirrituð leggjast á móti A. S. V. hvenær sem sú stefna verður hafin í félaginu, eins og vér lýsum oss í and- stöðu \ið alla pólitísika starfsemi meðal barna. 2) Vér mótmælum eindregið framkomu „Kennara" gagnvart stéttarbræðrum sínum, þar sem hann í áður nefndri grein bendir á kennara og gefur í skyn, að þeir séu iíklegir til þess, að mis- beita aðstöðu sinnd sem kennarar gagnvart börnunum. Vér teljum ódrengilegt að skrifa slíka gredin undir dulnefni og ráðast með dyigjum á stéttarbræður sína. 3) Vér álítum, að kennarar hafi fullan rétt til þess, a'ð hafa hvaða pólitíska skoðun sem er, eins og vér teljum sjálfsagt að starfsemi þeirra sem kennara sé ópólitísk. Reykjavík, 5. júni 1932. Hafliði M. Sæmundsson, Sigurður Thorlacius, Steinunn Bjanmars- dóttir, Arngrímur Kristjánsson, Vigdís G. Blöndal, Aðalsteinn Eiríksson, Svanhiidur Jöhanns- dóttir, Sigurður Runóifsson, Sig- ríður Hjartardóttir, Hermiann Hjartarson, Þóra Tryggvadóttir, Hallfríður Þorkelsdóttir, Bjarni Bjarnason, Margrét Jónsdóttir, Aðalsteinn Hallsson, Aðaisteinn Sigmundsson, Sigriður Magnús- dóttiir, Gunnar M. Magnússon, Geir Gígja, Jón Þór'ðarson, Þór- arinn Einarsson, Hannes M. Þórð- arson, Jón Jónsson frá Flatey, Ragnheiður Kjartansdóttir, Páll Halldórsson, Jón Sigurðsson, Gísli Sigurðsson, Valdimar Svedn- björnsson, Sigurlaug Guðmunds- dóttir, Vigndir Andrésson, Helga SigurÖardóttdr, Hal’.grímur Jónas- son.

x

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikuútgáfa Alþýðublaðsins
https://timarit.is/publication/596

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.