Vikuútgáfa Alþýðublaðsins


Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 22.06.1932, Qupperneq 4

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 22.06.1932, Qupperneq 4
4 VIK U £ T £ Á F A N Útvarpið. Á fundi Féiags útvarpsnotenda 9. pessa mánaðar var samþykt að gera þessar kröfur: 1. ) Að útvarpsstjórnin geri víð- tækar ráðstafanir til þess að út- 'breiöa útvarpið, meðai annars imeð því að selja viötæki með auðveldum greiðsluékilmálum, og stuðli enn fremur að því að menn geti smíðað viðtæki sín sjálfir. 2. ) Að viðtækjaverzlunin út- vegi ávalt fuilkomnustu og ó- dýrustu viðtækin, sem völ er á á , heimsmarkaðinum, en bindi ekki viðskifti sín við örfáar norð- urálfuverksmiðjur, eins og nú er gert, og selji þtiu ekki hærra verði en þarf til að standast verzlun arko stna ðin n. 3. ) Að, viðtæikjaverzlunin hafi næga sérfróða menn í þjónustu sinni við innkaup og sölu tækj- anna. 4. ) Félagið álítur nauðsynlegt að rekstrarskýrsia yíir ailan rekst- ur útvarpsins sé birt almenningi ársf j ór ðungslega. 5. ) Félag útvarpsnotenda telur æskilegt, að lögum og reglugerð uim útvarpið verði breytt þannig, að Féiag útvarpsnotenda fái full- an íhlutunarrétt um fjármála- stjórn útvarpsins, ásamt ineiri hluttöku en það hefir nú að lög- um um skipun útvarpsráðs. 6. ) Sjái útvarpsstjórnin sér ekki fært að taka til greina kröfurnar undir töluliði 1, 2 og 3, þá álítur Félag útvarpsnotenda nauðsyn- legt að breyta um sölufyrirkomu- lag. Enn fremur var samþykt svo hljóðandi tillaga: Fundurinn ályktar að lýsa því yfir við útvarpsráðið, að hann telur dagskrá útvarpsins, eins og hún hefir verió upp á síðkastið, svo fáskrúðuga, að ekki $é við unandi, og óskar, að bót verði ráðin á þessu, svo fljótt sem föng eru á. Barn drnkknar í Vest mannaeyjum. Vestmjannaeyjum, 18. júní. FB. Drengur tæpra 5 ára, Sigurður SigurÖsson, Sæmundssonar að Hallormsstað hér í Eyjum, féll út af syöri hafnargarðshausnum um kl. 5 síðdegis í dag og drukknaöi. Tveir drengir á sama reki gerðu tilraun til að rétta honum spýtu, en þegar það varð 'árangurslaust, hluþu þeir til heim- ilis hans og sögðu hvernig komið var. Fólk var á „skansiinum", sem er skamt frá slysstaónum, en vissi ekki hvað gerðist. 19. júní. Kafarinn Friðfinnur Finnsson náði í gærkveldi líki drengsins. Iðnsýningin. 18. júní. Hún var opnuð í gær kl. 1 af borgarstjöra, en í gærmorgun kl. 10 var hún sýnd blaðamönnum. Sýningin er eins og kunnugt er í gamla barnaskólanum og er opin frá kl. 1—10 daglega. Hún er í 22 sýninga.rstofum, en sýnendur eru um 100; vantar þó miiikið til, að allir iðnrekendur eigi þarna afurðir sínar. Sýningin ber vott um samvizkusemi og dugnað nefndar þeirrar, sem um undir- búninginn hefir séð, en sýnendur hafa sjálfir komið framleiðslu sinni fyrir í stofunum, enda er það nokkuð misjafnt og Ji-i flesí sæmilegt. Hinir stærri iðnrek- endur draga að sér mesta at- hyglina. Sýningar Sláturfclags Suðurlands, smjörlíkisgerðarinnar Ásgarðs, Mjólkurbús Flóamianna, Leifs Kaldals, kexverksmiðjunnar Frónis, Mjólikurfélags Reykjavík- ur, Friðriks Magnúsisonar & Co., smíðastoíunnar Reynis o. fl. munu draga að sér mestan fjölda sýn- ingargesta, bæði vegna þess, hve prýðilega þær eru útbúnar, og eins fyrir það, hve glögt yfirlit þær gefa um framleiöslu þess- ara fyrirtækja. Annars er sýning- in öll eins og æfintýri fyrir þá. sem litla trú hafa haft á íslenzk- um iðnaði og álitið að hann vær á mjög lágu stigi. Eitt skilyrðið fyrir því, að ís- lenzkur iðnaður geti aukist, er, að Reykvíkingar kynnist honum með því að sækja sýninguna vel. sikipsins eins vel og nú horfir, verður henni lokið snemma á næsta ári. „Zeppelin greifi“ og amieríska loftskipið „Akron“ éru nú mestu loftskip í heimi. „Zeppelin“ er 236 ensk fet á lengd, „Akron" 238,75, en „LZ—129“ verður 247,80 ensk fet á lengd. — Heli- um-gas verður notað í „LZ—129“. Hafa náðst samningar við Banda- ríkin um sölu á þvi. — Loftskipið á að geta flutt 522 farþega. 1 því eru margs konar þægindi. Borð- salur þess er 6x14 metrar. Afgreiðslubannið á Högna Gunnarssyni, Bjarna Fannberg og Bjarna Eiríkssyni í Bolungavík beldur áfram. Allir vöruflutningaT að og frá þessum mönnum eru bannaðir, þar til yf- irstandandi \'innudei!a er leyst. V qi kamálaráo Alpí/öiisamöands ísl’Cmds. „N áttúruf ræ ðingur inn “. Nú eru komin út þrjú hefti (6 arkir) af [lessum árgangi. Síð- asta heftið hefst með grein um Darwin, með myndum. í því er og meðal annars grein urn fuglamerkingar og skýrð þýðing þeirra, einnig leiðbeiningar um, hvernig þá skuii merkja. Tvær greinar eru úm Slútnes (eða Slúttnes) í Mýv'atni og gróðurinn þar. Margt fleiri er í heftinu, enda er „ Nátt úru f r æ ðiing ur i n n “ vanur að ver,a fjölskrúðugur. Sí dveiðahjorin í somar. 18. júní. Á fundi Sjómiannafélagsins í fyrrakvöld var samþykt svo hljóðandi tillaga: „Fundurinn samþykkir að lieiimia félagsmönnum að lcg- skrást á síldveiðiskip í surn/ar fyrir sama kaup og kjör, er giltu samkvæmt samningi fyrra árs.“ Alberti dauður. NRP., 17. júní. FB. Danski fjárglæframiaðurinn Al- berti vaxð fyrir skömmu fyrir sporvagni. Meiddist hann mikiö og var fluttur. i ríkisspítalann. Lézt hann þar 14. þ. rm Hann varð 81 árs. — Árið 1910 var Alberti, sem hafði verið dóms- málaráðíherra, dæmdur í átta ára fangelsi. Fjársvik hans námu 16 milljónum króna. Stærsta loftskíp veraldar. Berlin í júnj. UP.—FB. Smíði nýja þýzka loftskipsins „LZ—129“ er nú hraöað sem mest má verða. Skipið, sem verður miesta loftskip í heinii, er smíðað í Friedrichshaven. Gangi smíði Magnús Guðmundsson Blaðamaður frá Alþýöublaödnu snéri sér fyrir helgina til Magn- úsar Gubmundssonar dómsmála- ráðherra og fór þess á Mt, að hann léti blaðinu í té skjöl í sakamáli því, sem höfðað er gegn honum, til birtingar. Svaraði hann, að skjölin væru hjá lög- reglustjóra, og var þá snúið sér tíl hans, en hann kvaðst ekki geta lánað þau nema með leyfi dóms- málaráðherrans. Var þá snúið sér aftur til hans, og lofaði hann að tala við lögreglustjóra. í morgun var Magnús Guðmundsson dóms- málaráðheira spurður um, hvort hann .væri búinn að tala við lög- reglustjóra, en hann kvað það ekki vera, og bar við önnum. Mun Alþbl. enn á morgun gera fyrirspurn um, hvort skjölin fácst. 15. júní. Vestur-íslendingar ljúka háskóla- prófi. Blaðið „Heimsikringla" skýrir frá því, að nokkrir islendingdr hafi lokið prófum við háskólann í Saskatoon í Saskatchewam í vor: Alvin Johnson frá Limierick tók stigið „Bachelor of Science" í hagnýtri verkfráeði og fékk hærri einkunn en nokkur annar S háskóladeild hans. — Richard H. Tallman tók stigið „Bachelor of Arts“. Hann fékk lofsamlegan vifnisburð finir re'knóngskunn- áttu og gullmedalíu háskólans. Thomas J. Arnason tók stigið '•.„Master of Arts“. Hann skaraði mjög fram úr í líffræði við há- skélanm. Hulda Famney Blöndahi tók stigið „Bacbelor of Arts“. Ro- bert Johnson var hæstur í simni deild þriðja áTið við venkfræði- nám og hlaut námsverölaun, eins og sumir aðrir þeirra nemenda, sem taldir hafa verið. (FB) Vélbát vantaði héðan í gær úr íiskiróðri. í gærkveldi fór „Magni“ að leita hans og fann hann uppi í Hval- firði. Hafði hann farið þangað vegna veðursins og var þar heilu og höldnu. „Magni“ kom aftur íhingað í nótt. . 21. júní. Nýjar drápsvélar. Lundúnum í júní. UP.—FB. Tveir uppfinningamenn, annar þýzkur, hinn enskur, hafa fram- lcitt skotfæri, sem geta valdið miklu meira tjóni en skotfæri þau, sern til þessa liafa verið notuð í hernaði. Þýzki uppfinningamaður- inn hefir fundið upp kúlur til þess að skjóta með úr rifflum, sem eru svo öflugar, að þær tvístra þykkum plötum úr bezta stáli, þótt þeim sé skotið úr mik- illi fjarlægð. Uppfinningamaður- inn, Gerlich nokkur í Kiel, hefir fundið upp sérstaklega útbúinn riffil til þess að skjóta kúium þessum úr. Brezki uppfinningamaðurinn hefir fundið upp fallbyssukúlur, sem geta úr 9 mílna fjariægð tvístrað stálplötum, sem eru fet á þykt. Sérfræöingar telja, að tegna uppfinningar hans verði ;herskipa-miði í framtííinni senni- lega miklum breytingum undir- forpin frá þvi sem nú er. Herskiþ framtíðarinnar verði mörgum sinnum rammbyggðari en nú, en ekki nærri eins hraðskreið. Gagnkvæm tollalækknn. Lausanne, 20. júní, UP,—FB. Fyrsta skrefið hefir verið tek- ið til að lækka tollmúrana milli þjóðanna stig af stigi. Holland, Belgía og Luxemburg hafa kom- ið sér saman um árlega gagn- kvæma 10°/o lækkun á tollum, þangað til svo er kontíð, að kalla má að um algert afnám tollanna sé að ræða, að þvi er þessi ríki snertir. Jafnframt hafa þau til- kynt, að öörum ríkjum sé heimilt að taka þátt í þessu samkomu- lagi. Öll þessi ríki hafa skrifað Undir Oslóar-sáttmálann, en sam- kvæmt honmn eru þau ríki, sem undir sáttmálann hafa skrifað, skuldbundin til þess að tilkynna 'öðrum ríkjum, ef tollalækkun er aformuð. Ritstjóri og ábyrgðarmaður ólafur Friðrikssou. AlþýOupremsmlðjam i

x

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikuútgáfa Alþýðublaðsins
https://timarit.is/publication/596

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.