Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 17.02.1931, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 17.02.1931, Blaðsíða 1
ALÞYÐUMAÐURINN I. árg. Akureyri, f’riðjudaginn 17. Febrúar 1931. 8. tbl. Yfirlit. III. (Niðurlag.) Hverjar verða afleiðingarnar af sundrungunni er stofnun K F. /. veldur innan alþýðu- samtakanna, og hverjirgræða á þeirri sundrungu? Nokkuð veitur á því hvernig meirihluti Alþýðuflokksins tekur á þessum málum, hve örlagaríkar af- leiðingarnar af klofningnum verða. Heima fyrir í félögunum hlýtur ó- einingin að leiða til afturfarar, um stundarsakir að minsta kosti. Pegar þeir kraftar, sem áður störfuðu sameinaðir, snúast hverjir mót öðr- um, í staðinn fyrir að vera beitt sam.eiginlega gegn óvinum alþýðu- hreifingarinnar, getur ekki orðið stýrt hjá því, að aðstaða verkalýðs- ins veikist að mun. Pað eina, sem getur bjargað á þessu sviði, er það, að hinn hægfarari verkalýður, sem tregastur hefir verið til að taka þátt í verklýðssamtökunum, fjölmenni inn í félögin, til að halda niðri óróa- seggjunum, sem framkvæma áður en þeir hugsa. Önnur afleiðing þess að óeining hefir upp komið í Alþýðuflokknum, er og verður sú, að atvinnurekendur, sem undan- farið hafa alstaðar verið á undan- haldi fyrir alþýðusamtökunum, fær- ast nú í aukana meir en nokkru sinni fyr, af því þeir sjá að verka- lýðurinn stendur höllum fæti. Sýnir það átakanlega fyrirhyggjuleysi og stráksskap kommúnistanna, að ein- mitt þegar þeir kalla hæst á eining verklýðssamtakanna, og vilja láta hefja sókn á auðvaldið, kljúfa þeir félögin hvar sem þeir geta, og taka lil að rægja og svíviröa alla þá menn Alþýðuflokksins, sem tillit er tekið til. Pað þarf því ekki skarpskygni til að sjá hverjir græða á stofnun kommúnistaflokksins. Sjálfur getur kommúnistaflokkurinn ekkert fram- kvæmt að gagni, eftir þeim leiðum, sem hann þykist viija fara. Til þess er hann altof fámennur. Ef hann vill því koma einhverju gagnlegu máli áfram, verður hann að fara sömu leiðir og hægfara jafnaðar- menn og fá fulltingi þeirra til mál- anna. Petta vita og viðurkenna líka skynugustu menn flokksins. Á Verklýðssambandsþinginu, sem nýbúið er að halda hér í bænum, og reyndar var ekkert annað en ráðstefna kommúnista, voru sam- þyktar samskonar tillögur í verk- lýðsmálum, og Alþýðuflokksþingið í Rvík í haust, samþykti — en þar segir »Verslýðsblaðið< að hafi ráð- ið örgustu verklýðssvikarar á ís- Iandi. — Kommúnistarnir á Verk- lýðssambandsþinginu hér samþyktu, ekki einungis að »makka« við »verklýðssvikara« Alþýðuflokksins, heldur »kúgunarvald ríkisins*, íhald- ið, og yfirleitt alla »andskota« hins »stéttvísa verkalýðs«. Og ekki nóg með þetta. Á þinginu komu fram háværar raddir um að kommúnist- um væri hollara að ganga til kosn- inganna í vor með íhaldinu, en að binda trúss við Alþýðuflokkinn, en Einar Olgeirsson barði þetta al- gerlega niður. Er þessa getið hér til að sýna hvílíkt fljótræðisflan stofnun kommúnistaflokksins var og algerlega óþarft, og hve áþreif- anlega stofnendur hans eru þegar búnir að reka sig á það, að hann, með þeim vinnubrögðum, sem æst- ustu óróamennirnir vilja við* hafa, líkist hópi heimskra inanna, sern mm NYJA BIÓ HB Miðvikudagskvöld kl. 8'/> Tilkynning. Meðan ég er að heiman, sjá þeir forst. Porsteinsson, Brekkugötu 43 (sími 281), og HaJldór Friðjónsson, Lundargötu 5 (sími 110), um útgáfu »Alþýðumannsins«. — Auglýsingum sé skilað til þeirra. Erlingur Eriðjónsson. streytist við að sprengja púðurkerl- ingar út í loftið- Hér skal ekkert um það sagt, hvort íhaldið hefir vonast eftir op- inberum faðmlögum við Kommún- istaflokkinn, en eitt er víst, að það hefir ekki rent hýrara auga til ann- ara ungviða nú í seinni tíð, og það álítur sér meiri styrk að kommún- istum en öllu öðru, í kosningabar- áttunni er fram undan er. S. I. ár höfðu kommúnistar yfirráð yfir biaðinu »Skutull« á ísafirði, og not- uðu hann óspart til að svívirða Alþýðuílokkinn. íhaldsmenn á ísa-

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.