Alþýðumaðurinn - 17.02.1931, Blaðsíða 4
4
alÞýðumaðurinn
Vegna uppboðs í samkomuhús-
inu Skjaldborg næstu daga verður
fundur haldinn í st. Akureyri nr.
137 á föstudaginn 20, þ. m. kl 8,30
e. h. — Félagar athugi að koma
stundvíslega á fundinn.
Úr bæ og bygð.
Fyrra Mánudag héldu útgerðar-
menn línuveiðara í Reykjavík fund
með sér, og samþykktu þar að gera
skipin ekki út á næstu vei'tíð, þar
sem sjómenn ekki vildu slaka til á
kröfum sínum. Einnig samþykktu
þeir að leigja sjómönnum skipin, ef
þeir vildu gera þau út. Um leigu
skilmála hefir ekki frést, eða hvort
sjómenn taka því boði, þegar þetta.
er skrifað.
Leikfimisfélag Akureyrar hefir fim-
leikasýnÍHgu í Saiflkomuhúsinu n. k.
Laugai'dagskvöld. — Sýnir þar 12
manna flokkur leikni sýna. — Að-
gangur kostar aðeins eina krónu.
Kl. 3 á fyrra Mánudag renndi
Dr. Alexandrine upp á grunn fram
af nesinu Kullen austanvert við
Eyrarsund. Björgunarbátar komu á
vettvang eftir skamma stund, en
þeirra varð engin þörf, því enginn
leki kom að skipinu. Voru faiþeg-
ar kyrrir um borð. Losnaði Dottn-
ingin af grunni með flóðinu og-kom
heilu og höldnu til Kaupmannahafn-
ar kl. ö á Þriðjudagsmorgun, og er
talin óskemd.
Slökkvilið Akureyrar.
Slökkvilið sstj óri:
Eggert St. Me/stað, Oddagötu 3, sími 115.
Varaslökkviliðsstjóri:
Gunnar Guðlaugsson, Lundargötu 10, sími 257.
Yfirflokksstjóri: Flokksstjóri í innbænum:
Gísli Magnússon, Jón Norðfjörð,
Strandgötu 15, simi 25. - Lœkjargötu 3, s/mi 67.
Aðrir flokksstjórar:
Halldór Ásgeirsson, Brekkugötu 2, Aðalsteinn Jónatansson. Hafnarstr.
107 B, Friðrik Hjaltalín, Grundargötu 6, Tryggvi Jónatansson, Strand-
götu 39 og Svanberg Sigurgeirsson, Pórunnarstræti.
Brunaboðar:
í innbænum: Sigurður Jónsson, Aðalstræti 20.
Eðvarð Sigurgeirsson, Spítalaveg 15.
í útbænum: Rudolf Brun, Hríseyjargötu 5.
Karl Magnússon, Gilsbakkaveg 1.
Menn eru ámintir um, að tilkynna símastöðinni og slökkviliðinu, ef
eldsvoða ber að höndum og festa upp þessa auglýsingu sér til minnis.
Slökkviliðsstjórinn á Akureyri 12. jan. 1931.
Eggert St. Me/stað.
Tilkynning.
Hinn 28. Jan. s. 1. framkvæmdi notarius publicus á Akureyri útdrátt
á skuldabréfum samkvæmt skilmálum um 6% lán bæjarsjóðs Akureyrar
til raforku fyrir bæinn.
Þessi bréf voru dregin út:
Litra A. nr. 91, 96, 106, 113, 133, 136.
Litra B. nr. 61, 66, 72, 80, 127.
Litra C. nr. 20, 32, 33, 62, 70.
Skuldabréf þessi verða greidd gegn afhendingu þeirra 1. júlí n. k. á
skrifstofu bæjarins.
Bæjax'stjórinn á Akureyri, 31. jan. 1931.
Jón Sveinsson.
Á Miðvikudaginn var slasaðist
maður í Reykjavík við uppskipun
kola við höfnina. Handleggsbrotn-
aði hann, og meiddist jafnvel eitt-
livað meira. — Hann heitir Ólafur
Helgason og er 69 ára gamall.
Skjaldai’glíma Ármanns var háð í
JRvík í tuttugasta sinni 1. þ. m. —
Táttakendur voru 14. Sigurður Gr.
Thorarensen vann Ármannsskjöldinn
í þriðja sinni og nú til fullrar eign-
ar. Næstur Sigurði með vinninga
var Jörgen Þorbergsson, en verð-
laun fyrir íegurðarglímu hlaut Georg
Uorsteinsson. Hvenær ætla iþrótta-
menn Akureyrar að sýna þessa
þjóðlegu íþrótt?
Ábyrgðarinaður:
Erlingur Friðjónsson.
Prentsmiðja Björns Tónssonar.