Alþýðumaðurinn - 25.08.1931, Page 1
ALÞYÐUMAÐURINN
I. árg.
Akureyri, IJriöjudaginn 25 Ágúst 1931.
47. tbl.
Frá Alþingi.
Þau tíðindi hafa gjörst síðan síð-
asta blað kom út, að ný ríkisstjórn
er í heirainn borin. Var það á
Föstudaginn var að íorseti lýsti
stjórnarmynduninni í báðum deildum.
'Tryggvi Þórhallsson er forsætis- og
atvinnumálaráðherra, Jónas Jónsson
dóms-, kenslu- og kirkjumálaráð-
herra og Ásgeir Ásgeirsson fjár-
málaráðherra.
Umræður urðu um þessa stjórnar-
myndun í báðum deildum. Tóku
andstöðuílokkar hennar fremur
kuldalega á móti henni. Formaður
Alþýðuflokksins iýsti því yflr, að
flokkurinn væri í beinni andstöðu
við hana, og formaður íhaldsflokks-
ins lýsti því yflr, að hann og flokk-
ur hans liti á stjórnina sem minni-
lilutastjórn, þar sem flokkurinn, er
styddi hana, hefði ekki meiri hluta
kjósenda á bak við sig. Annars
kvað Ihaldið vera harðánægt með
fjármálaráðherrann og ilogið hefir
fjrair að Ásgeir sé valinn fyrir
þess tilstilli. —
Getið hefir verið hér í blaðinu
átakanna, sem urðu í þinginu út af
framlengingu verðtollsins. Lögðust
jafnaðarmenn á móti, en íhaldið
bjargaði málinu gegnum efri deild,
þar sem Framsókn skorti afl til að
koma því í gegn af eigin ram-
leik. Samþykt Landsreikninganna
fyrir [929 og fjáraukalög fvrir 1930
var annað örðugasta mál Framsókn-
ar. Ætlaði fhaldið í Ed. að fella
hvorutveggja fyrir stjórninni, en þá
gerði lón Baldvinsson því þann
grikk að sitja hjá við atkvæða-
greiðsluna. Kvað hann réttmætt,
aö fyrst íhaldið hefði haft ánægju
aí því að hjálpa Framsók með fram-
^engingu verðlollsins gegnurn deild-
ina, þá yrði það af gleðinni yfir
að fella þessi mál fyrir stjórninni.
Tóbalcsei n kasalan hefir verið sam-
þykt; einnig breyting á lögum um
verkamannabústaði. Heixnild fyrir
ríkisstjórnina að fella niður Vx, verk-
legra íramkvæmda, sem gert erráð
fyrir á fjárlögum, ef þröng verður í
ríkisbúinu, var feld í ed. Sú brejd-
ing hefir verið gerð á Síldareinka-
sölulögunum, að aðalfundur Síldar-
einkasölunnar ár hvert kýs 4 menn
í útflutningsnefnd, en atvinnumála-
ráðherra skipar 1, en aðalfund skulu
sitja 14 fulltrúar. 7 kosnir af út-
gerðarmönnum og 7 kosnir af Al-
þýðuflokknum, úr hópi sjómanna: 2
sunnan — 2 vestan — 2 norðan —
og einn austanlands.
Þinginu var slitið í gær, en þing-
fréttir verða sagðar áfram næstu
kvöld.
í gær kaus þingið í útflutnings-
nefnd Síldareinkasölunnar, fyrir þann
tíma, sem eftir er þar til nýju lögin
koma í gildi, þá Böðvar Bjarkan,
Björn Líndal og Einar á Eyrarlandi.
Til verkamanna á inreyri.
Oóðir félagar og samherjar!
Aldrei fyr hefir verið jafn nauð-
synlegt fyrir verkamenn á Akureyri,
að efla Verkcmannafélag Akureyrar
til öruggrar sóknar og varnar gegn
atvinnuleysi og kauplækkun. Aldrei
fyr hefir verið jafn brýn nauðsyn
til að verkamenn hlutuðust til um
rekstur atvinnutækjanna og um
verklegar framkvæmdir kaupstaðar-
ins, til þess að draga úr hinr.i yfir-
fallandi fjárkreppu. Aldrei fyr hefir
jafn mikið riðið á, að allir verka-
menn á Akureyri væru samhentir
um, að fylgja fram með gætni og
H9 nýja bió «
Mibvikudagskvöld kl. 8\s
engillinn”.
Pýsk hljóm-, tal- og söng-
mynd í 10 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Emil Jannings og
Marlene Dietrich.
»Blái engillinn* er verðlauna-
mynd ársins 1931 og besta
myndin, sem hér hefir sést
um Sengri tíma.
Ný mynd!
Fimtudagskvöld kl. 8y„;
Útlagar.
Heimsfræg söngmynd.
fyrirhyggju, en þó með einurð og
festu, hverskonar tillögum, sem til
bjargráða miða.
Bjargráðin verðum við verkamenn
sjáltir að finna. Ræða þau á fé-
lagsfundum, og beita síðan krafti
þeim, sem góður félagsskapur get-
ur skapað, til að hrinda því til
framkvæmda, sem að vel athuguðu
máli þykir líklegt til bóta,
Við getum búist við, að þurfa
að togast á við íhaldssama at-
vinnurekendur og þröngsýna og
afturhaldssama bæjarfulltrúa. Pað