Alþýðumaðurinn - 09.05.1933, Page 1
III. árg.
Akureyri, Þriðjudaginn 9. Maí 1933.
FiskverKunarkaupið.
Eining gengstfyrir
lækkun á því.
Hinn 7. Mars s. I. seiti Verklýðs-
íélag Akureyrar kauptaxta við fisk-
vinnu, þar sem lágmarkskaup kvenna
við þá vinnu er ákveðið 70 aurar
á tímann í dagvinnu kr. 1,00
í eftirvinnu og kr. 1,50 í helgi-
dagavinnu. Ennfremur er ákveðið
akkorð á fiskþvotti kr. 1,00 fyrir hver
100 kg. af himnuteknum íiski og 80
aurar fyrir 100 kg. af óhimnuteknum
fiski. —
Þessi kauptaxti hefir nú verið við-
urkendur af fiskverkendum.
í fyrra samdi kvenfélagið »Einíng«
við fiskverkendur um kauptaxta, þar
sem kaupið var ákveðið kr. 30,oo á
viku eða kr. 0,50 á tímann, ef um
4 mánaða vinnu var að ræða, en kr.
0,65 þegar um skeuimri tíma var að
ræða. Akkorðsvinna var aigerlega
feld niður.
Pennan fáheyrða kauptaxta sinn
auglýsti Eining í blöðnm hér á staðn-
um. —
Þegai saman eru bornir kauptaxti
sá, sem Verklýðsfélag Akureyrar hefir
nú fengið viðurkendan af atvinnurek-
endum hér, yfir fiskvinnu og samn-
ingur sá, sem >Eining« gerði við
fiskverkendur í fyrra, kemur í ljÓ3 að
dagkaup kvenna við þessa vinnu hefir
fengist hækkað fyrir milligöngu Verk-
lýðsfélags Akureyrar úr kr. 0,50 sem
það var lægst á tímann og kr. 0,65
sem það var hæst í fyrra, í kr. 0,70
á tímann og akkorðsvinna við fisk-
þvott er nú aftur viðurkend af fisk-
verkendum, og gefur það fiskþvotta
stúlkunum um 40 au hærra kaup
fyrir hver 100 kg. af fiski, sem þær
þvo, heldur erf 65 aura kaupið á tím-
ann veitti þeim í fyrra við fiskþvott-
inn. —
Pegar á það er litið, að fiskvinna
stendur jafnaðarlegast yfir 5 — 6 mán-
uði ársins hér á Akureyri, var innan
handar fyrir fiskverkendur að ráða
verkakonur í fyrra fyrir kr. 30,00 um
vikuna og fá kaupið á þann hátt nið-
ur í kr. 0,50 á tímann með góðu
samþykki »Einingar«, og munu sumir
þeirra hafa noíað sér þetta ákvæði
samningsins til þess ítrasta.
Með kauptaxta Verklýðsfélags Ak-
ureyrar er aftur búið að ná því dag-
kaupi við fiskvinnu, sem verið hefir
undanfarin ár, þar til í fyrra að »Ein-
ing« samdi um 30 kr. kaupið á viku
við fiskverkendur og feldi niður akk-
orðið við fiskþvottinn, sem hvortveggja
er frægt orðið landshornanna á milli.
Engin leið er enn til þess að fá
akkorðstaxta við fiskþvott jafn háan
og hann var áður en >Eining« feldi
hann niður, þar sem fiskverkendur
munu hafa talið sér þann sigurinn
mestan við samninginn í fyrra, að fá
akkorðið við fiskþvottinn afnumið. —
Með því fengu þeir kaup kvennanna
við fiskþvottinn lækkað úr kr. 1,40 á
100 kg. af fiski niður i kr. 0,60 eða
um 80 aura á 100 kg. fiskjar.
Næstum tveimur mánuðum eftir að
Verklýðsfélag Akureyrar birtir sinn
kauptaxta yfir fiskvinnu, og þegar
sýnt er að fiskverkendur muni ganga
að honum, birtir »Eining« taxta
yfir sömu vinnu. Lítur því út fyrir
að hana langi í samninga við fiskverk-
endur, eitthvað svipaða þeim, sem
hún gerði við þá í fyrra.
Taxti þessi er á tvennan hátt furðu-
legur. Fyrst að vinna við uppskipun
j 26. tbl.
Tal- og hljómmynd í 9 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Richard Arlen og
Fay Wray.
Skyldi kvenfólkið nokkurntíma
hafa gert sér grein fyrir þegar
það lætur á sigperluhringinn eöa
perlufestina, að hver perla hefir
heilt æfintýri að segja. Það er
þetta, og miklu fleira sem
mynd þessi sýnir óvenjuvél. —
á fiski er sett mikið hærri en önnur
vinna við fiskinn, og er það sennilega
gert af því að konur þessar, sem sam-
ið hafa taxtann — en sem nálega
allar eru iafn fáfróðar um þessa vinnu
af því þær snerta aldrei á henni —
halda að uppskipunarvinnan sé erfið-
ari en önnur vinna við fiskinn, en
slíkt er mesta vitleysa. Sum uppskip-
unarvinna er iéttari en flest önnur
vinna við fiskinn. — \ annan stað er
akkorðið á íiskþvottinum. Ekki er
fastar tekið á þeim lið taxtans en það,
að tmeirihJuti verkakvenna d hverri
fiskverkunarstöð skulu ákveða, hvort
fiskur er /jveginn í tímavinnu eða
ákvæðisvinnu« (Leturbr. hér).
Fiskverkunarstöð, sem hefir 20
þvottakonur mun oft hafa 50 eða
fleiri aðrar verkakonur við fiskþurk
eða aðra vinnu, sem ynna þarf af