Alþýðumaðurinn

Issue

Alþýðumaðurinn - 15.05.1934, Page 2

Alþýðumaðurinn - 15.05.1934, Page 2
2 alÞýðumaðurinn þar sagt að ef »Sjálfstæðið« nær meiri hluta nú við kosningarnar, verði það að »taka sér til fyrir- myndar* nasistana í Pýskalandi og samherja þeirra í ftalíu og Aust- urríki — »þær þjóðir, sem rekið hafa rauðu hættuna af höndum sér« — ef það á »að hugsa sér« að halda völdum »stundinni lengur*. Eftir þessu á Að afnema skoðanafrelsi á ís- landí. Að afnema kosningafrelsi á ís- landi. Að beita í því skyni aðferðum nasista og fasista: manndrápum pyndingum, fangelsunum, bóka- brennum, atvinnusviftingum og íull- kominni skoðanakúgun í ræðu og rili. Pennan boðskap flytur ritstj. nýja kirkjublaðsins í nafni flokksins, og mun greinin vera erindi, sem hann flutti á Landsfundinum fræga, og íhaldsblöðin segja að hafi vakið sérstaka hriíningu meðal fundar- manna. 1. Maí höfðu þrír flokkar kiöfu- göngur í Reykjavík, Alþýðuflokkur- inn, Kommúnistaflokkurinn og nas- istar. Daginn eftir hófu »Morgun- blaðið« og »Vísir« upp lofsöng mikinn um nasistana. Sögðu að þeirra skrúðganga hefði verið Iang- glæsilegust og fjölmennust, þótt allir Reykvíkingar vissu að hún var sjö sinnum mannfærri en kröfuganga Alþýðufl. og tæpur hálfdrættingur á við Kommúnistana. Því varlíka veitt eftirtekt, að burgeisarnir eltu nas- istahópinn eins og hugfangin börn og fögnuðu þeim á allan hátt- Það var þeirra flokkur, þeirra kröfu- ganga, sem þarna var á ferðinni. En nasistahreyíingin er »entl« f erlendum reifum. Pað þykir — allra ástæðna vegna — heppilegra að hún sé það fram yfir kosning- arnar. Eftir þær á hún að klæðast ís- lensku »reifununum«, ef kjósendur gefa »Sjálfstæð:nu« meiri hluta 24. Júní. Og þá verður hún »eðlileg« — »skiljanleg« — og holl íslensku þjóðlífi — að dómi landsfundarins fræga. En íslenskir kjósendur munu bara aldrei gefa »Sjálfstæðinu« tæki- færi til að klæða þýska kálíinn í íslensku sauðargæruna. Peir munu kveða niður kommún- ismann og fasismann, hvern við annars hlið, og lofa »Sjálfstæðinu« að gráta á gröfum þessara þörfu þjóna þess næstu fjögur árin. Frá vígstöövununi. Á Laugardaginn var sagt frá viðureign kommúnista og varnar- liðsins við Lagarfoss. Á Laugar- dagsnótíina fór Lagarfoss til Húsa- víkur, en þar stöðvuðu kommún- istar uppskipun og fór skipið með vöruinar til Seyðisfjarðar, en þær voru aðallega olía til báta verka- manna á Húsavík og útlendur á- buiður á túnin þeirra. Er þeim jafn bagalegt að fá hvorugt og legst á þessar vörur ærinn aukakostnaður. Verkamenn og sjómenn verða því fyrir miklu tapi af völdum kommún- ista, en aðrir bíða engan skaða. Dettifoss kom hingað á Laugar- dagsmorguninn. Kommúnistar settu stiax vörð á bryggjuna, og höfðu smalað að sér mönnum utan úr Glerárþorpi og víðar að og voru upp undir 100 með konum og börnum. Var ekkert unnið við skipið þar til um þrjú-ieytið, að það flutti sig inn að innri hafnar- btyggjunni og var afgreitt þar undir lögregluvermd. Þorðu komm- únistar ekki að leggja til árásar og létu sér nægja að eggja hver ann- an til að rölta um Torfunefsbryggj- una auða það sem eftir var dags- ins og nóttina eftir. Verður ekki annars vart en ba:jarbúar séu vel ánægðir yfir að hægt var að forð- ast stimpingar með þessu móti, og mörgum var það óblönduð ánægja að sjá kommana snúast kringum sjálfa sig á Torfunefsbryggjunni eftir að svona góðlátlega hafði verið á þá snúið. En ómetanlegan sigur segjast þeir hafa unnið í þessu máli. Til Siglufjarðar kom Dettifoss um kl. 10,30 f.h. á Sunnudaginn. Átti höfuðorustan að standa í þessu aðalvígi kommanna. Þegar skipið1 lagðist að bryggjunni voru þar fyrir nokkuð á annað hundrað’ manns, sem heitið höfðu liðveislu við afgreiðsluna. Voru þarna menn af öllum stéttum og flokkum — líka menn, sem kommúnistar hafa talið sér að þessu, — Bryggjan var girt af og brunadælurnar hafð- ar tilbúnar. Þegar skipið var ný- komið, komu komrnúnistar (um 60 manns) og réðust til framgöngu. Var þeim hrundið til baka, en nokkr- ar konur, undir stjórn form. »Ósk- ar« klifu upp á kolabing við bryggj- una og hófu þaðan kolakast á bryggjuverðina og skeyndust nokkr- ir menn undan því. Þótti nokkrum unglíngum, sem á bryggjunni voru illt að liggja undir kolahríðinni og svöruðu með grjótkasti, en var skipað að hætta því, og brunadæl- urnar settar í gang og sprautað á óaldaliðið, Snéri það frá eftir 15— 20 mínútur, hundvott og smáskein- ótt undan kylfum lögreglunnar. Var svo Dettifoss afgreiddur í friði eftir það. Ýmsir voru skeinóttir eftir slaginn. Tveir menn voru fluttir burt og annar þeirra verður að liggja nokkra daga. Einn maður, Aðalbjörn Péfursson, var settur í járn dálitla stund, en siept aftur. Nú hafa kommúnistar tilkynnt bann á »Esju« og má því búast við á- framhaldandi balli, en auðvitað verð- ur hlutur þeirra því verri, sem þeir halda þessum ólátum lengur áfrarm Hver er ástæðan til allra þessara óláta kommúnista? spyrja menn. Ekki er það deila um kaup, þvf kaup er alstaðar greitt samkvæmt samningum, eða kröfum verklýðs- félaganna. Nei. Undirrót alls þessa er karp milli tveggja feðga vestur á Hvammstanga, sem báðir eru kommúnistar, um það hvort verk- íýðsfélag þar á staðnum, sem krefst forgangsréttar að vinnu, á að taka sér sömu skyldur á herðar og verk- lýðsfélögin á nærliggjandi höfnum — og í raun og veru alstaðar gera, að skaffa nógan mannafla til upp- skipunar hvenær sem á þarf að halda. Faðirinn krefst þessa sjálf- sagða hlutar, en sonurinn, sem auð- vitað er ágœtnr kommúnisti, krefst

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.