Alþýðumaðurinn - 13.04.1937, Qupperneq 2
2
ALPÝÐUMAÐURINN
Bafvlrkjun Aknreyrar.
Kommúnistar berjast með hnúum og hnef-
um fyrir því,að skaða akureyrskan verkalýð
um 100 þús. kr. i vinnu við rafvirkjunina.
Pað kemur ekki ósjaldan fyrir,
að kommúnistarnir hér í bæ koma
fram með sinn rétta hug gagnvart
verkalýð bæjarins, þó hitt sé venjan
að reyna að dylja hann fyrir
verkafólkinu með smjaðri og fleðu-
látum. Pað eru sannarlega sögu-
legir viðburðir, þegar menn, sem
öllum stundum væla framan f verka-
lýðinn um það, að þeir beri sér-
staka umhyggju fyrir honum, skul'
ganga langt fram fyrir svartasta
íhald bæjarins í þvf að skaða vinn-
andi stéttir bæjarins. En slíkt hefir
nú komið mjög greinilega í Ijós í
aðstöðu kommúnista hér til væntan-
legrar rafvirkjunar fyrir bæinn, þar
sem þeir berjast manna ötullegast
fyrir því, að gengið sé fram hjá
Goðafossi þegar til virkjunar kem-
ur fyrir bæinn, og Laxá hjá Stöðum
sé tekin, en viikjun við Laxá kost-
ar, eftir áætlun, 100 þús> kr. meira
í útlendu efni en virkjun við Goða-
foss, en gefur 100 þús. kr.
minni vinnulaun. Skaði verka-
fólksins við virkjun Laxár er því
100 þús. kr. eða sem svarar árs-
tekjum fyrir 50 fjölskyldur á Akur-
eyri. Hér er þó ekki með talið að
öll uppskipunarvinna á efni ti*
rafveitunnar lendir í annari sýslu,
því öllu efni myndi verða skipað
upp á Húsavík, ef virkjað yrði við
Laxá. Akureyrarbær yrði að greiða
þangað hafnar- og bryggjugjöld og
sennilega yrðu það einnig Hús-
víkingar, sem sætu fyrir flutningi
á efni til virkjunarinnar.
Á rafvirkjun Akureyrar hefir verið
iitið, sem atvinnubótamál fyrir Ak-
ureyri. Atvinnuþörf verkafólks á
Akureyri er geisilega mikil vegna
þess samdráttar, sem orðið hefir
f atvinnulífi bæjarins á sfðustu ár-
um, og jafnvel fhaldið í bæjarstjórn
hefir talað um rafvirkjunina, sem
iausn í bili á þvf mikla vandamáli,
og ekki hefir skort hávaða komm-
únistanna í sömu átt, þó nú gangi
þeir í fylkingarbrjósti íhaldsins í
því að hafa af akureyrskum verka-
lýð yfir 100 þús. kr. í vinnulaun-
um. —
í sambandi við stærri rafvirkjun
fyrir Akureyrarbæ, hefir ætíð verið
litið á Goðafoss f Skjálfandafljóti
sem lang líklegasta fallvatnið til
virkjunar, ef kostnaðarins vegna
þætti viðráðanlegt fyrir bæinn að
beisla hann. Mjög merkur útlendur
verkfræðingur hefir látið þau um-
mæli falla um Goðafoss, að hann
væri með álitlegustu fossum á
Norðurlöndum til virkjunar.
Laust fyrir snjóa í haust kom
upp sá kvittur, að Laxá við Staði
myndi vera álitleg til virkjunar, og
var þangað sendur verkfræðingur
úr Reykjavík, sem komst að þeirri
niðurstöðu, eftir stutta rannsókn,
að virkjun við Laxá myndi kosta
svipað og við Goðafoss, á 2000
hestöflum, en þeir stóru gallar eru
á virkjun Laxár, að háspennu-
leiðslan frá henni er ]/s lengri en
frá Goðafossi, og eins og áður er
sagt, þarf 100 þús. kr. meira í út-
lendu efni til virkjunar þar en við
Goðafoss, og vinnan er aftur á
móti 100 þús. kr. minni en við
Goðafoss, og því tapar akureyrsk-
ur verkalýður við þá kynlegu ráð-
stöfun, sem nú hefir verið tekin
af bæjarstjórn Akureyrar að ganga
framhjá Goðafossi og virkja Laxá.
Það virðist einnig vera rrokkuð
hæpin ráðstöfnn, að leggja út í
jafn stórt og dýrt fyrirtæki og
fyrirhuguð rafvirkjun Akureyrarbæj-
ar er með jafn lítilli rannsókn og
fram hefir farið á vafnsorku Laxár
og vatnsrennsli. Það er vitað að
mývetnskir bændur hafa slýflað
upptök Laxár við Mývatn að vor-
inu um lengri tfma. Eins skýra
kunnugir menn frá því, að í hríðar-
veðrum komi það ekki ósjaldan
fyrir að Laxá stýflist við Mývatn
af fannkyngi sem í hana rekur. Pá
er og kunnugt um Laxá að í hana
sest víða grunnstöngull svo mikill
að mikið dregur úr vatnsorku
hennar. — Sé hugsunar- og athug-
unarlaust litið yfir þessa galla ár-
innar, má vera að við fljóta yfir-
sýn sé Laxá álitlegri í augum verk-
fræðinga, sem ókunnir eru stað-
háttum, heldur en Goðafoss, sem
mikið meiri rannsókn helir farið
fram á, svo gallar hans eru kunn-
ari, en slíkum ályktunum verðum
við Akureyringar að taka með
hæfilegri gagnrýni.
Frá því hefir verið sagt hér að
framan, að til virkjunar Laxár þarf
100 þús. kr. meira í útlendu efni
en til virkjunar Goðafoss. — Par
kemur því fram 100 þús. kr. meirr
eyðsla á útlendum gjaldeyri, sem
miklu skiftir fyrir landið að spar-
aður sé eftir mætti í þeim gjald-
eyrisvandræðum, sem nú kreppa
að þjóðinni, en í slíkt er ekki horýt
af íhaldi bœjarins og kommúnist-
um, þegar ávðxturinn af því er
minnkandi atvinna fyrir verkalýft
bœjarins. Pá hefir einnig verið
minnst á hina löngu háspennu-
leiðslu frá Laxá, sem verður um
54 kílómetrar. Sú háspennuleiðsla
sem við Akureyringar höfum nú,
er ekki nema um 3 kílómetrar, en
þó er það mjög títt í hríðarveðrum
að vétrinum að ekki verður við
hana ráðið vegna samsláttar á
strengjunum, og er þá bærinn raf-
magnslaus. — Hvernig myndi þá
fara með 54 kílómetra leiðslu frá
Laxá? Skyldi ekki verða erfitt eftir-
litið með þeirri leiðslu yfir tvær
heiðar, Vaðlaheiði og Fljótsheiði,
í stórhríðunum á vetrum?
U ophorni {yrir einhleypa konu
UGl llul yl til leigu í Gránu-
félagsgötu 29. Aögangur aö eldhúsi,
ef óskað er.
NÆTURVÖRÐUR er f Akureyraar
Apóteki þeesa viku. (Frá n. k. mánvd-
er meturvörður í Stjörnu Apóteki).