Alþýðumaðurinn

Issue

Alþýðumaðurinn - 13.04.1937, Page 3

Alþýðumaðurinn - 13.04.1937, Page 3
ALPYÐUMAÐURINN 3 Kosningaflothylki Ihaldsins Ihaldið ætlar að gera rafveitumálið að kosninga- máli. Unnið er að því, að drepa málið í bili, til þess að hægt sé að taka það upp sem kosninga- mál Ihaldsins á ettir. — Kommúnistar eru í kapp- hlaupi um málið, en eru þegar búnir að tapa því. Undanfarið hafa verið þrenging- ardagar hjá íhaldinu hér í bænum. Pað á von á þingrofi og kosning- um, en ekki færri en þrír »kandi- dalar* beijast um sætið. í annan stað vantar íhaldlð allt til kosn- ingaútgerðarinnar- Hefir engin fram- bærileg mál — ekkert annað en vera á móti núverandi stjórnar- flokkum. Almenningi í bænum er kunnugt af reynslunni hve ramstatt íhaldið hefir verið í rafveitumálinu undan- farið. Pað vakti því ekki litla at- hygli nú fyrir svo sem hálfum mánuði síðan, þegar það allt í einu tók fjörsprett í málinu, svo harðan að við sjálft Iá að það hlypi kommúnistana af sér. og hafa þeir þó spreytt sig vel undan- farið- Hlaupið var í að samþykkja að virkja Laxá, og ísberg — bráð- um sáluga — þingmanni bæjarins falið að bera fram frumvarp til laga um þetta á Alþingi, og bar hann frumparpið fram degi áður en bæjarstjórn samþykkti Laxár- virkjunina!!! Ýmsum kom þessi kippur íhalds- ins kynlega fyrir sjónir, en eftir borgarafundinn á Sunnudaginn liggja spilin opin fyrir bæjarbúum. Reyndar ætluðu kommúnistar að slá sér upp á fundinum, en voru algerlega slegnir af laginu af íhald- inu, og verða nú að láta sér lynda að hæla því fyrir fylgið við málið. Kandidatsefni fasista innan Sjálf- stæðisflokksins, dró, á borgara- fundinum, upp úr vasa sínum sfm- skeyti frá Sjálfstæðisfl. á Alþingi, þar sem sagt var að flokkurinn .stæði sem einn maður með þvf, að Akureyri fengi ríkisábyrgð fyrir láni til rafveitubyggingar við Laxá. Petta hafði álíka áhrif á kommún- ista og þegar Sæmundur sló salt- aranum í hausinn á kölska forðum. Gengu þeir hljóðir burt af fundin- um, nema þeir af þeim, sem eru ýmist íhaldsmenn eða kommúnist- ar, eftir því hvert straumurinn beinist í það og það skiftið, En eftir borgarafundinn er öllum Ijóst hvemig áætlun íhaldsins er í rafveitumálinu: Það vill mállð feist í bili. — Pess vegna er hlaupið í að ákveða að taka Laxá. Pann staðinn, sem minnst er rannsakaður og mesta ágalla hefir. Þetta á að verða þess valdandi að ríkisábyrgð fáist síður fyrir láni til virkjunarinnar. Frum- varpið í þinginu er fram komið til að sýnast, en til þess ætlast að það dagi uppi af því þingrof fari fram á næstunni. Borgarafundurinn er svo fyrsti útbre»ðslufundurinn, sem á að sýna það og sanna, að verði íhaldið ofan á f næstu kosn- ingum, fáist rfkisábyrgðin fyrir raf- veituláninu. Málið á að verða mál íhaldsins í nœstu kosninsum. Refskákin er svo sem bærilega uppsett. — Og fyrsti Ieikurinn var leikinn á borgarafundinum, þegar íhaldstófan drap kommúnistalamb- ið. — En ef bæjarbúar halda að íhald- ið sé e',ki það sama og áður var, þrátt fyrir þenna skollaleik f raf- veitumálinu, skjátlast þeim meir en venjulega. Peim, sem ekkert hafa til að fleyta sér á í kosningunum, er nauðugur sá kostur að smíða sér flothylki úr ólíklegasta efni. Og vel trúir Alþýðumaðurinn því, að skrambans leki geti komið að þessari fleytu, áður en næstu kosningar eru um garð gengnar. NYJA- BIO | Þriðjudaginn I Útvarp ið mik :l. 9. skvöld- la 1936 Miðvikudagskv TOP 'öld kl. 9: HAT Nýlt í sanglífi bæjarins. Þýski slaghörpusnillingurinn, Ro- bert Abraham, hefir í vetur æft blandaðan kór, sem lét í fyrsta sinn til sfn heyra opinberlega í sfðustu viku. Voru áheyrendur, en þeir voru margir, stórhrifnir af söng kórsins og frábærri stjórn söngstjór- ans á honum. Vænta menn mikils af þessum nýja gróðri í sönglífi bæjarins og óska að hann megi dafna sem best og mest. Úr bæ og bygð. ísafoldar fundur annað kvöld kl. 8,30. Kosning fulltrúa til þingstúku og á umdæmisstúkuþing. Um kl. 10 verður settur þingstúkufundur. Skor- að á allt ísafoldar og Þingstúku-fólk að mæta. í síðustu viku lést á Vífilstöðum Jónas Stefánsson, Jónassonar útgerð- armanns, unglingspiltur efnilegur og vel Játinn. Líkið verður flutt hingað til greftrunar. Allt byggingarefni hefir stigið á eriendum markaði um 20%^ nú ný- skeð. í’etta hefir þau áhrif t. d. á byggingarefni til rafveitunnar að þaö hækkar að mun frá geröri áætlun. Umdæmisstúkuþing er ákveðið hér í bænum um komandi helgi.

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.