Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 19.05.1937, Blaðsíða 4

Alþýðumaðurinn - 19.05.1937, Blaðsíða 4
ALf*ÝÐUM A.ÐURINN NYJA-BIO Þriðjudaginn kl. 9. Gleymmérei Stórfengleg þýzk söngmynd í 10 þáttum. Aðalhlutverkið leik- ur og syngur frægasti tenór- söngvari heimsins Benjamino Gigli. konungs vors, Kristjáns hins tíunda( var minnst á virðulegan hátt s. I. Laugardag. Margvísleg og stórglæsi- leg hátíðahöld fóru fram í Kaup- mannahöfn og var þeim endurvarp- að frá útvarpsstöðinni hér mestan hluta dagsins. Einnig var útvarpað konungsmessu frá Dómkirkjunni hér og ræðuhöldum og söng frá veislu konunghollra manna, sem haldin var á Hótel Borg um kvöld- ið. Öil voru hatíðahöldin stór myndarleg og margir þjóðhöfðingj- ar gistu Kaupmannahöfn þenna dag. í tilefni af þessum viðburði, gaf Alþingi og ríkissíjórn fé til stofn- unar sjóðs, er bsra skal nafn konungs, og á að verja til eflingar jarðrækt í landinu. Hvað sem um konungdóm verð- ur sagt, þá er það víst — og það sýndi sl. Laugardagur — að kon- ungshollusla er mikil með norður- landaþjóðunum, og mun þar mikiu um ráða, að norðurlandaþjóðirnar hafa undanfarið átt ágæta menn á konungsstólnum. í þeim hópi stend- ur Kristján konungur tíundi fram- arlega. Mjólkurkönnur Bollopör, Diskar dji'ip-r og gr. Barnakönnur, Barnatl .kar. Nýkomið. Kanpfélag Verkamanna. St. Brynja heldur fund .á. venju- legrim stað og tíma. Innsetning em‘ hættismanna og kosinn mlltrúi á Stórstúkuþing. Félagar, fjounennið. Keyrslutaxti vörubifreiöa. Vegna breytingar á fyrirkomulagi við vinnu í bænum, höfum vér undirritaðir vörubílaeigendur ákveðið neðanskráðan taxta. Minnsta gjald sé kr. 1.00 og taki ekki lengri tíma en 15 mín. Tímavinna í almennri vinnu.........Kr. 4,50 á kl.st. — við kol í bíng.................— 5,00 « — Eftirvinna og sunnudagavinna greiðist kr. 0.50 hærra pr. kl.st. ÁKVÆÐISVINNA. Möl og sandur um eyrina...........kr. 0,30 pr. tunnu — — á ytri brekku .... — 0,35 — — — - — á syðri brekku . — 0,40 — — — — á syðri brekku sunnan M.A. — 0.50 — -— Útflutningur á kolum um bæinn ... — 3,00 — tonn. Öll keyrsla innan við 100,oo krónur (miðaö við tímakaup) framkvæmist í tfmavinnu. Smátúrar verða að staðgreiðast. Taxtinn gengur í gildi 15. maí þ. á. og gildir þar til öðruvisi verður tilkynnt Akureyri 12. maí 1937. Bifreiðast. Bifröst. Nýja Bílastöðin. Bifreiðastöð Akur- eyrar. Bit'reiðastöð Georgs Jónssonar og aðrir vöru- bílaeigendur utan stöðva. Sameiginlegur fundur þeirra, hinna miklu félaga, Verkamannafélags Ak ureyrar og Verkakvennafélagsins »Eining« var haldinn á annan f hvítasunnu, »til að ræða um fisk verkunarkaupið og sameiningu verka- lýðsins*. Fundur þessi var prýði- lega vel sóttur að venju, 19 pör, jafnt á báðar hliðar, hvorki of eða van, 1 skipstjóri með frú, 1 vél- stjóri án frúar, 1 kokkur með frú, 1 skósmiöur með frú, 1 ritstjóri frúarlaus, 1 væntanlegur þingmaður með frú, og 13 óbreytti'r hásetar. Þá komu aðrar frúr, ekkjufrúr og ógiftar, þar af fjórar voru örvasa fyrir ellisakir, og engin sem verkar fisk, — Pá var samþykkt einum rc að sjá um, að enginn fiskur y fiuttur í bæinn, og þetta fríða liO gangi aJlt inn í Verklýðsfélag 'Ak- ureyrar, til þess sö sjá um að það félag væri ekki að stuðla að því, að atvinna aukist í bænum. Síðast var hrópað hásum rómi; Sulturinn er bestun. Tilheyrandi ■ Kveöiö á giugga. Úti hleypur Árni minn, Ekki af baki fallinn, Agiterar kinn við kinn, Krælir margt í dallinn. Úti hrópar Árni, um sinn, Allt að mxði fallinn, Komdu líka kommi minn, Krældu með í dallinn. Illa dreymir Árna minn, Aftur á bakið fallinn, Ónýt reynast atkvæðin, Er hann safnar í dallinn. BASAR. Fimmtudaginn 20. maí, hefir Kristniboðsfélag kvenna útsölú á allskonar' eigulegum, heimaunnum munum. í samkomuhúsi sínu, Zíon* Salan hefst kl. 3 e. h. Kaffi allan daginn frá sama tíma. — Komið og stýrkið' gótt mále'fni. — Prentsmiðja Björns Jónssonar.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.