Alþýðumaðurinn - 30.01.1940, Blaðsíða 3
ALPÝÐUMAÐURINN
3
að hata og fyrirlíta Alþýðuflokk-
inri, aðal bardagaflokk alþýðunnar.
Framsóknarflokkinn hafa þeir líka
talið óalandi fyrir vonda stjórn
hans á landinu. Sjálfstæðisflokkur-
im, flokkur auðvalds og atvinnu-
rekendavaldsins, auðvitað höfuð-
fjandi verkalýðsins. Aðeins fasist-
arnir hafa notið náðarinnar. Um
þá hefir verið talað sem fjarlæga
síærð, sem verkalýðurinn ætti að
»verja Rússland* fyrir. Islensku
fasistarnir, þeir hafa svo sem ekki
verið tal ir svo slæmir. Og nú
síðast, síðan Stalin og Hitler féllust
í faðma, hefir verið um þá talað
sem samherja. Er ekki margt fjar-
lægara en það, að lýðuiinn, sem
glæpaverk Stalins á Finnum hefir
hrint frá kommúnistum, leiti yfir til
sinna nánustu, þegar þeir koma til
hans í sjaldhafnarklæðum »frjáls-
lyndis«, sem »óháðir« sem »björg-
unarmenn*, með gull í höndum og
»græna skóga* framundan. Pað
hefir margur sáð í óunnari akur.
lltllluluil
skömmtunarseðla
fyrir febrúartnánuð fer
fram á skrifsfofu nefnd-
arinnar (áður skrifstofa Raf
veitunnar) dagana 29., 30. og
31. þ. m. alla dagana frá
kl. 10-12 f.h. og 1,30-7 e.h. j
Seðlarnir verða aðeins afhent-
ir gegn árituðum stofnum.
s
Pað, sem hér hefir verið sagt ætti,
hvað sem er um þau staðbundnu
fyrirbæri, sem rakin hafa verió, að
opna augu alþýðu þessa lands
fyrir því, að henni ber að hafa
kommúnismann og fasismann í einu
og sama númeri, sem óaðskiljan-
legar stærðir og þjóðinni jafn
hættulegar, eins og alþýðan, og
samtök hennar, á Norðurlöndum
hefir gert. Og það fólk, sem
glæpst hefir til fylgis við kommún-
ista, en sér nú í gegnum blekking-
arvef þeirra, ætti að varast að
ginnast af fagurgala hinna grímu-
klæddu fasista. Að lenda yfir til
þeirra á eftir, er sannarlega að
stíga úr öskunni í eldinn. *
Fiskafli er góöur á Siglufirði um
þessar mundir, og ekki langsóttur.
Trillubátar fá frá 1000—2000 pund
í róðri, en stærri bátar 2000—5000
pund. —
ísafoldarfundur annað kvöld á
venjulegum stað og tíma. Kosning
embættismanna, Rætt um spurning-
ar frá áfengismálanefnd Laugamóts-
ins. —
Eftir tvo mánuði
Tveir mánuðir eru nú liðnir síðan
Rússar réðust á Finna og tilkynntu
umheiminum aö þeir yrðu búnir að
brjóta viðnámsþrótt finnsku þjóðar-
innar á bak aftur eftir 14 daga.
Hernaöarsérfræðingar hafa rannsak-
að hvernig þessi mál standa nú,
Peir segja:
1. Rússar hafa ekki náð að draga
úr kjarki finnsku þjóðarinnar.
2. Peim hefir ekki tekist aö vinna
Mannerheimvíggirðingunum sjá-
anlegan skaða.
3. Peim hefir ekki tekist að skifta
Finnlandi í tvo hluta hernaðar-
lega, eins og þeir ætluðu sér i
fyrstu.
4. Viðhorf Rússa til að vinna á
Finnum hefir síður en svo batn-
að, þrátt fyrir ótrúlega mikið
raanntjón og missir hergagna,
5. Aðstaða Finna til varnar hefir
víða batnað síðan í stríðsbyrjun.
Svona telja þeir þessi mál standa
eftir tvo fyrstu mánuði þessa ljóta
harmleiks. Hvað framtíðin ber í
skauti sér er hulið þoku óviss-
unnar.
Með vorinu er talið að aðstaða
Finna til varnar versni aö surau
lejrti, en batni líka á ýmsan hátt.
En um eitt eru allir sammála, og
það er að til að tryggja vörn Finna
að fullu, þurfi þeim að berast hern-
aðarleg hjálp í stórum stíl nú meö-
vorinu.
Leiðrétting.
Af vangá haíði nafn ritarans fall-
iö úr í tilkynningunni í síðasta blaði
um tilnefningn í aðalstjórn Verklýðs-
félags Akureyrar, sem kosið verður
um á aðalfundi. Tilnefningin er þann-
ig — rétt:
Aðalstjórn:
Erlingur Friöjónsson, form.
Haraldur Porvaldss. gjaldk.
Arni Porgrímsson, ritari
Helga Jónsdóttir og Jóhann-
es Jóhannesson, meðstjórn-
endur.