Alþýðumaðurinn - 09.09.1941, Síða 3
Mjðlkin hækkar enn
Mjólkurverðlagsnefndin í Reykjavík
hefir enn einusinni hækkað verð á
neytslumjólk og mjólkurafurðum.
Nemur verðhækkunin á mjólkinni
\\>2% og öðrum mjólkurafurðum
f samræmi við það.
Væntanlega hækkar mjólkurverð-
ið annarstaðar á landinu nú á næst-
unni.
Ástæðan fyrir þessari verðhækk-
un er ekki sjáanleg, önnur en löng-
unin til að auka á dýrtíðina. Ekki
er það hækkun á kaupgjaldi seinni-
hluta sumars. Ekki getur það ver-
ið vegna vaxandi dýrtíðar, því
vaxandi dýrtíð síðustu mánuði
stafar af verðhækkun á afurðum
bænda, sömu manna og framleiða
mjólkina. Hefði sú verðhækkun
því frekar átt að leiða til verðlœkk-
unar á mjólkinni en hækkunar.
»Tíminn* er nýbúinn að lofa
bændur fyrir það hve lofsverðan
vilja þeir sýni — undir handleiðslu
Framsóknarflokksins — á því að
halda dýrtíðinni niðri.
Húsnæðismálm
eru nú mjög á dagskrá eins og
von er til. Óðum færist nær þeim
degi er fjöldi fólks verður að flytja
út á götuna, ef ekki verður búið
að útvega því samastað áður.
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir sam-
þykkt að Iáta byggja 100 bráða-
byrgða-íbúðir, en það nær skammt;
og auðvitað er þetta engin fram-
tíðarlausn á þessu vandræðamáli.
Víðar í stærri kaupstöðum er Ifka
um fullkomin vandræði að ræða.
Síðasti bæjarstjórnarfundur hafði
húsnæðisvandræðin hér til umræðu
og kaus 5 manna nefnd til að vera
húsnæðislausu fólki til aðstoðar
um útvegun húsnæðis. Eins og
gefur að skilja mun starf nefndar-
innar ekki vera komið nema lítið á
veg ennþá.
Og auðvitað er aðeins hægt að
ráða eina verulega bót á húsnæðis-
leysinu og það er að byggja fieiri
íbúðarhús en nú eru til í bænum,
ALPY Ð UM AÐURINN
3
Aðvðrun vegna fjárpestar
í réttum verður allt fé, sem mál-
að er á hornum, tekið frá með
því líkur eru á að það sé af
sýktum eða grunuðum svæðum.
Er skorað á alla réttarmenn að
vera hjálplegir að benda hrepps*
stjórum á þetta fé.
Akureyri, 9. September 1941,
Sýslumaður Eyjafjarðarsýslu
SIO. EOGERZ.
AOvðrno vepa fjðrpestar.
Kindaslátur má því aðeinsflytja at
sýkta svæðinu til Akureyrar/ að
hausar hafi verið sviðnir. Lung-
un má ekki flytja.
Akureyri, 9. September 1941. j
Sýslumaður Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógeti Akureyrar.
Sig. Eggerz.
Aðvörun til skipa og báta
frá póst- og símamálastjórninni
Að gefnu tilefni eru skip og bátar enn á ný aðvöruð
gegn því að gefa með talstöðvum sínum nokkrar upp-
lýsingar um veðrið. Sé út af þessu brugðið, getur
það haft hinar alvarlegustu afleiðingar.
lilTÐ HÚS
til sölu. — Laust 1. Okt.
Ritstj. vísar á.
Ábyrgðarmaður.
Erlingui Friðjónsaon.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.