Alþýðumaðurinn - 14.12.1943, Blaðsíða 4
4
alÞýðumaðurinn
Tillögurnar, sem 'rr\» 11 •
ekki var ansað. f I llkynilin
Viðskiptaráðið hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á
brauðum;
Rúgbrauð óseydd 1500 gr. kr, 1,80
Rúgbrauð seydd 1500 — - 1,90
Normalbrauð 1250 — - 1.80
Franskbrauð 500 — - 1,25
Heilhveitibrauð 500 - — 1,25
Súrbrauð 500 - - 1,00
Wienarbrauð pr. stk. — 0,35
Kringlur pr. kg, - 2,85
Tvíbökur pr. kg, — 6,80
Séu nefnd brauð bökuð með annari þyngd ea að ofan greínir,
skulu þau verðlögð 1 hlutfalli við ofangreint verð.
Á þeim stöðum, þar sem brauðgerðir eru ekki starfandi, má bæta
sannanlegum flutningskostnaði viö hámarksverðið,
Ákvæöi tilkynningar þessarar koma til framkvæmda frá og með
6, Desetnber 1943.
Reykjavík, 3. Desember
Verðlagsstjórinn.
Framh. af 1. síðu.
við Dani fyrir 20 Maí 1944, skal
sáttmálinn ekki felldur úr gildi, fyr
en slíkar viðræður hafa farið fram.
B, Lýðveldisstotnun.
Þegar samningur sambandslag-
anna hefir veriö felldur úr gildi,
samþykkir Alþingi frumvarp til lýð-
veldisstjórnarskrár. Samtímis þessu
ályktar Alþingi, að þjóðaratkvæða-
greiðsla samkvæmt 4, mgr. 75, gr,
stjórnarskrárinnar skuli ekki fara
fram, fyr en rætt hefir verið við
konung.
Ef Alþingi fellir samnir.ginn úr
gildi, án þess að fullnægt sé
minnstu kröfu sambandslaganna,-
og stofnar lýðveldi á íslandi við
þær aðstæður og á þann hátt, sem
misbj^ður drengskapar- og sómatil-
finningu þjóðarinnar og réttarvitund
þeirri, sem henni hefir verið innrætt
af ágætustu leiðtogum hennar í
100 ára sjálfstæðsbaráttu, munu þau
hörmulegu tíðindi gerast, að Alþing;
neyði þjóðina til þess að vera sund-
nrlynda um lausn þessa stórmáls.
Vér munum telja það siðferðilega
skyldu vora að leggja málstað vorn
fvrir alþjóð íslendinga, svo að at.
kvæðagreiðsla um máliö verði sem
sönnust skýrsla um vilja þjóðarinnar.
Oss er ekki nóg að formlega sé
stofnað lýðveldi á íslandi, Vér vit-
um að margvíslegar hættur geta
steðjað að frelsi voru, þjóðerni og
menningu, Og gegn þeim hættum
verður aöeins barist til þrautar með
samhuga átökum þjóðar, sem er
jafn ófús að fremja rangirndi sem
að þola rangindi. Vér erum ekki
aö rjúfa neina þjóðareiningu um
lausn sjálfstæðismálsins. Sú eining
hefir þegar verið rofin með því að
fara að nauðsynjalausu með málið
inn á brautir, sem allmikill hluti
þjóðarinnar mun aldrei sætta sig
við. Vér erum að bjóða fram lið-
sinni vort og fjölda annarra manna
til þess að vinna að þeirri einingu,
sem nauðsynJegt er að skapa una
þetta mál.
Nú skyldu einhver atriði í þessn
máli vera þess eðlis, að þau gerðu
sem bráðastar aðgerðir nauðsyn-
legar, án þess aö leyfilegt væri að
birta þau almenningi, og erum vér
þá fúsir til þess að gera nefnd fárra
manna á fund forseta sameinaðs
Alþingis (og formanns stjórnarskrár-
nefndar, til viðræðna við hann og
þá, sem hann vildi kveðja til með
sér, um þ,tu atriði, og mundum
vér þá Ijá tafarlausum sambands-
slitum fylgi vort, ef þeir sannfærð-
ust um, að óhjákvæmileg þjóðar-
nauðsyn kretði,
Nýlátin
er á Kristneshæli Helga Indlaug Stein-
grímsdóttir, verkamanns, Glerárg, 9
hér í bænum; ung stúlka, efnileg
og vel metin.
Vér leyfum oss að vænta svars
við málaleitun vorri við fyrsta tæki-
færi,
Forseta sameinaðs Alþingis. for-
sætisráðherra og formönnum þing-
flokkanna verður sent afrit að þessœ
bréfi.
Reykjavlk, 29. Nóv, 1943,
Árni Pálsson. Gylfi Þ. Gíslason.
Hallgrímur Jónasson. Ingimar Tónsson
Jóhann Sæmundsson. Jón Ólafsson.
Klemens Tryggvas. Pálmi Hanness-
Ólafur Björnss. Magnús Ásgeigeirss^
Siguröur Nordal. Tómas Guðmundss,
í’orst. f’orsteins*. Þorv. f’órarinsson.
Angiýsið í Aljiýðnm.
Ábyrgðarmaöur
Erlingur Friðjónsaon.
Prentsmiðja Björns Jómaonar hi.