Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 04.07.1944, Page 2

Alþýðumaðurinn - 04.07.1944, Page 2
2 Alþý#umaðurinn Gnðmnndur Friðjdnsson skáld Giíðmundur skákl Friðjónssoii var fæddur á Sandi í Aðaldal, í Sttður-Þinífeýja rsýslu 24. Olvt. 1869. Hann var sonnr Friðjóns iíónda Jónssonar og konu hans Sigur- hjargar Guðmundsdóttur, verður ættin ekki rakin hér enda kunnug þeim er stund leggja á þá fræði. Guðmundur ólst upp í föðurhus- xim og vandist þeim heimilishátt- um er lögðu hornsteina að við- horfi hans og skoðunum síðarmeir. Þá gengu. yfir harðindaár. Bændur og skyldulið þeirra þekktu skort- Inn og fátæktina, og skildu að gæta varð ýtrustu hófsemi, ef sigr- ast átti á erfiðleikunum. Þessa við- horfs gætir víða í sögum Guo- mundar, og hefir sumum fundist of mikið uin það, en sé vel að gætt, eru í þessu viðhorfi fólgin j>au einu hjargráð og sjálfsvörn, sem þjóðin gat lieilt til að fyrra sig hungurdauða þegar allt árferði brást. Þetta skildi jafnan haft í huga þegar menn lesa sögur Guð- mundar Fi'iðjónssonar. Ágætt dæmi þessa viðhorfs er sagan xGaiuki heyið«, því hún lýsir við- horfi hinna eklri kynslóða, en sem okkur sem nú lifum skortir oft skilning á. En hér verður ekki xætt um skáldsagnagerð G. F., þ\ í til þess er hvorki rúm né tími, að- eins nokkur orð um ljóðskáldið Guðmund Friðjónsson, sem nú er látinn, eni sem var eitt af höfuð- skáklum þjóðarinnar um langt skeið, og sem hún mun minpast meðan íslensk tunga er töluð. Guðmundur Friðjónsson gökk. í Möðruvallaskólann og tók þaðan burtfarapróf árið 1893. Hann varð þá strax kunnur, fyrir ritgerðir og erindaflutning, því hann átti Iþað tungutak og. þá orðkynngi, er gerði hann einstæðan og þjóð- Isaunnan sem rithöfund og skákl. Fyrsta Ijóðabók hans »Úr lieimahögunK, kom út er hann yar þrítugur, í henni er kvæðið »Ekkjan við ána«, er frægt hefir oroið og hver maður þekkir sem skáldskap ann. En þótt kvæði það sé irið ágætasta í sinni röð, er mikill áhirgðarhluti að fullyrða að það sé hið besta kvæði skáldsins, en til þess er nú tíðast vitnað. Guðmundur Friðjónsson orti fjökla eftirmæla og mihninghv- kvæða uin látna menn og konur, sem eru svo auðug af litum og skáldlegri fjölbreytni að næstum er ógerningur að segja hvert þeirra sé best. Eitt kvæðið hefir þetta til síns ágætis, annað hitt. Þau glitra og sindra af þeirri orð- kynngi og myndauðgi sem er jafn hressandi og hún er íátíð — og þótt hjá góðskáldum sé — það'sem G. F. kvað eftii Jóhann Signr- jónsson látinn, á jafn ágætlega við sjálfan hann: »1 gullsmiðju málsins er greindin og guðsmyndin losuð úr hlekk. Þitt líkindaríka og meitlaða mál scm mjöður á sálirnar fékk«. Maður les ekki þessar hending- ár, án þess að verða smortinn af snillinni og Ijómanum sem af þeim stafar. Höfuð einkeimi skáldskapar eru áhrif hans á vit- und þeirra senr njóta hans. En það er svipað með skáldskap og vín, að hann örvar tilfinmingar rnánna eða þeirra sem kunna að meta hann. Þeim er hann guðaveig, scm lætUr sálir þeirra finna á sér — þær verða örar og fagnandi! Þegar skáldið lýsir göirdnm manni sem erfiði og þrlög fengu ekki beygt, þá er lýsingin á þessa , leið: »— — Hlána lét j hugskotinit hlátra guðs til sólarlags----«. Á hversdagsiuáli myndi þetta heita að maðurinn nafi verið glað- lyndur. — En skáldið veit meira. Það hefir skyggnst inn í hugskot öldungsins, þar sem hlátraguðinn leysir bundna krafta og lætur hlákuvind gleðinnar fara utn sáhi hans. Þeim sem gefinn er bragsnilii og hughlær í jafn ríkum mæli og" G. F. voru gefnir þessir eiginlcikv ar, þcim er lítið gefið um margt sem tískan hill.ir sem skáklskap,- og G. F. var allra manna ófeimíK astur og berorðastur um þau efnt þegar honum þótti þörf að taka af skarið. Því er það að hann kveður svo að orði í kvæði um Grínr skáld á Bessastöðum: »Rís nú upp skákl, og rúnir kvæðagerðaf ristu á skjöldu' vorra ljóðasmiða. Þeirra scm húast flumósa til ferðá' flöktandi á vegum nýrra tiklur- siða«- Erindið er ádeila, en frá sjónar- miði skákls, sem gengst undir þao lög er fastir og fágaðir hættir hlýða, er ádeilan réttmæt. Guðmundi Friðjónssyni fundust tildur-siðakvæði óþörf — og verrí eir það. Hann skorar á Bassastaöa- skáldið að rísa upp og gefa fluiU' ósa Ijóðasmiðniun einskonar for- skrift, og hann æskir þess einnig af honum að hann kveðji land' vætti að hreinsa til á þingi. —' Hann sá hvar skórinn kreppti að. — — Guðmundur Friðjónsson virti skáldskaparlistina öllu öðru frani' ar. Hin þröngu einstigi hennar þóttu honum líklegri leiðir til úi'" lausnar og fullnægju, en nokkrar' aðrar. — Hann kvað: »Lás ég líffræði, og landafræði, las ég ljósfræði, las ég guðfræði; lausn lífsgátu lá þó hvergi — hvert sem ég horfði á hraðbergi. Veit ég vonaskarð vera í fjöllum — Braga blá-fjöllum beint í austri, móti morgunsót margra rasta, ’ ótal einstiga í undraskarð. ■

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.