Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 04.07.1944, Blaðsíða 4

Alþýðumaðurinn - 04.07.1944, Blaðsíða 4
4 Alþýðamatðtirinn ÚTSÖLUVERÐ á amerískum vindlingum má ekki vera hærra en hér segir: Lucky Strike ................ 20 stk. pakkiun kr. 3,40 Old Gold .....................20 stk. pakkinn kr. 3,40 Raleigh ......................20 stk. pakkinn kr. 3,40 Camel ...................... 20 stk. pakkinn kr. 3,40 Pall Mall ................... 20 stk. pakkinn kr. 4,00 Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má útsöluverð vera 5 prc. hærra vegna flutningskostnaðar. Tóbakseinkasala ríkisins. Grunnkaup verkamanna hækkar. Verkamannafélag Akureyrar- lcaupstaðar héfir undanfarið stað- ið í samningum við atvinnurek- c'ndur um hækkun á kaupi verka- jnanna. Fyrir helgina náðust samningar fyrir milligöngu sátta- .semjara. Hækkar kaup í almennri dagvinnu um ca. 11V2%. I skipa- vinnu um tæp 6%. 1 kola, salt og sementsxdnnu lim tæp 7%. Vnna við lempun kola í skipi og ketil- hrcinsun hækkar ekkert. Kaup ■drengja 14—1G ára hækkar um ca. 14%. Um nánari samninga hefir hlaðið ekki frétt, Eftirtekt vekur hve vinna við höfnina hækkar hlutíallslega mikið minna en al- menn vinna, sem kölluð er. Og hvað á það að þýða að hækka ekki kaup við lempun kola í skipum «og ketilhreinsun — yerstu vinnu sem unnin er? Einnig vckur það nokkra undrun að grjótvinnan skuli vera tekin út úr samningun- um. Verður það ekki skilið öðru- vísi en svo að félagið sé fallið frá því að krefjast hærra kaups við grjótvinnu en alm. vinnu. Mál þetta verður athugað nánar þcgar hinir nýju samningar liggja allir fyrir. Orlof verkafölks. Margt af verkafólki cr nú farið í orlol' og fer á næstunni. Er sjálf- sagt að fólk notfæri sér þessar Téttarbætur. En þegar er komið í 1 jós að ekki verða nema hálf not af orlofinu, meðan verldýðssam- tökin gangast ckki fyrir ákveðn- um ferðum til tiltekinna staða, þar sem fólkið getur notið ánægju og hvíldar. Prentsmiðja Björns Jónssonar h/f Ábyrgðarmaður: Erlingur Friðjóassoa. Noregur unúir oki Nasismans heitir bók, sem Rlaðamannafélag Islands IieTir gefið út. Höfundur hennar er Jac. S. Worm-Miiller. fyrvr. prófessor í sögu við Oslóar- háskóla, en dvelur nú landflótta í Bretlandi. Ragnar Jóhanriesson cand. mag. hefir þýtt bókina, en próf. Sig. Nordal ritar ýtarlegan og fróðlegan formála fyrir henni. Eins og nafnið bendir til, er hér sögð í aðaldráttum saga innrásar Þjóðværja í Noreg og baráttu heimaþjóðarhmar gegn kúgurum sínum. Að sjálfsögðu er hér endur- tekið ýmislegt, sem sagt er frá í bókinni »Árásin á Noreg«, en það nær aðeins til þess kafla þessarar bókar, sem fjallar um hernámið sjálft. Hér fær inaður því áfram- haldið af hinni hetjulegu baráttu Norðmanna undanfarin ár og fer ekki bjá því að margur drekkur í sig bókina ineð fullkominni at- hygli. Bókin er 167 blaðsíður, vönduð að frágangi. Mál og stíll aðgengilegt, og margir nuinu telja hana feng góðan og vera útgef- endunum þakldátir fyrir að hafa lagt í útgáfuna. Venjnleg hræsni og blekkingar kemur fram í á- varpi, sem trúnaðarmannaráð »Dágsbrúnar« í Reykjavík hefír sent meðlimum sínum. Trúnaðar- ráðið hvetur verkamenn til að not- færa sér réttindi þau, er orlofs- lög'in veita, og' segir að »verklýðs- samtökin« hafi lengi barist fyrir orlofslögunum. Það var Alþýðuflokkurinn sem tók upp baráttuna fy-rir orlofslög' unum og kom þeim í gegn á;AÞ þingi. En kommúnistar — bæðí á Alþingi og í verklýðsfélögunuin, ýmist lögðu þeim ekkert lið, eða unnu opinbert gegn því að verka- fólkið fengi þess'a réttarbót.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.