Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 11.07.1944, Blaðsíða 3

Alþýðumaðurinn - 11.07.1944, Blaðsíða 3
AtfetðumaAirin* 3 INGVAR GUÐJÓNSSON KVEÐJA FRÁ SKIPSTJÓRAFÉLAGI NORÐLENDINGA Velkominn lieim á þína feðra fold, föst var þín tryggð við hennar gróðurmold. í víking fórstu, vannst þér frœgðarorð, því vættur íslands stóð hjá þér um horð. Þú sigldir djarft, en fékkst þó fjöldans traust, og fyrir þér varð Ægi gullið laust. Velkominn heim. Fyrst víking lokið er, vel fer á því, að duft þitt hvíli hér. Við yzta haf, við aftanroða skraut, og árdagsskin og Ijóma af vetrarbraut. F. H. BERG. kaup um 84% og kvennakaup um 114%. 6—11 prósentin hjá Verkamannafélaginu eru náttúr- lega afar glæsilegur sigur við hliðina á þessu, að maður tali nú ekki um 0 prósentin (eins og hjá Bör Börson) við lempun kola í skipi og ketilhreinsun. SAMFERÐAMENN og fleiri sögur heitir bók, sem blaðinu hefir Borist nýlega. Þetta er ekki stór bók — 96 blaðsíður, en hefir að l®ra 14 smásögur. Höfundurinn ei' Jón H. Guðmundsson ritstjóri í5Vikunnar“. Áður hafa komið út eftir Jón tvær bækur, sem báðar blutu vinsamlega dóma. Þessar 14 smásögur eru liðlega t'itaðar og fjalla um hversdagsleg efni, flestar, og eru auðsjáanlega daegrastyttingarstörf höfundarins, en ekki ritaðar til að *,slá sér upp“ á þeim. Þær eru myndir úr dag- lega lífinu, frá haráttu alþýðu- fólks, dregnar upp á einfaldan, en ijósan hátt — og svo sennilegar, fáum mun detta í hug að þær ®éu skáldskapur — tilbúningur. Þetta er höfuðstyrkur þeirra allra, og hverrar út af fyrir sig — °g hann ekki veigalítill. »J 0 R Г 1. og 2. hefti V. árg. hefir blað- Jnu borist nýlega. í fyrsta hefti»u ber mest á ritgjörðum ritstjórans. Éjalla þ ær aðallega um sjálfstæð- ^niálið og forsetann. Þá ritar Bétur Sigurðsson allhvassa grein ^ni þjóðskipulag og stjórnmála- 8pillingu. Einnig er í ritinu ýmis- bonar fróðleikur, ritfregnir o. fl. 1 annað heftið rita, auk ritstjórans, ^uðm. Finnbogason, Kristján frá Garðsstöðum, Matthías Þórðarson Silfurbrúðkaup áttu 6. þ. m. Jónas Rafnar yfir- læknir og frú hans, Ingibjörg Bjarnadóttir. Sama dag voru gefm saman í hjónaband ungfrú Berg- ljót Haraldz og stud. med. Bjaini Rafnar, sonur Kristneshjónanna. Alþýðumaðurinn kemur ekki út í næstu viku vegna sumarleyfa fólksins í prentsmiðj- unni. o. fl. Kristmann Guðmundsson á þarna sögu. Einnig eru þarna rit- fregnir, fróðleiksmolar, skák, inn- rásarkort o. fl. Aðalumboðsmað- ur fyrir „Jörð“ er hér nyrðra ung- frú Ragnheiður 0. Björnsson, Ak- ureyri. Leiðrétting. Inn í umsögn F. H. Berg urn Guðm. Friðjónsson í síðasta blaði, höfðs slæðst þessar prentvillur: Líkindaríka í stað líkingaríka, hlátraguðs í stað hlátraguð og hilla í stað hylla. Þá var það og missagt að Guðm. hefði verið fæddur á Sandi. Hann var fædduh á Sílalæk, næsta hæ við Sand. GJALDDAGI ! Alþýðumannsins var 1. Júlí. — Þeir kaupendur, sem ekki hafa þegar greitt blaðið, eru vinsam- lega beðnir að greiða það við tæki- færi til Erlings Friðjónssonar, Kaupfélagi Verkamanna, Stránd- götu 7.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.