Alþýðumaðurinn - 31.07.1945, Page 1
31. tbl.
XV. árg. Þriðjudaginn 31. Júlí 1945
Kosningasignr AI|i$ðuflokksins f Brotlandi
Flokkurinn fékk hreinan meiri hluta á þingi.
Hefir myudað hreina flokksstjórn.
Flestir ráðherrar Churchillsstjórnarinn-
ar féllu í kosningunum.
Foringjar Alþýðuflokksins sigruðu glæsilega.
KOSNINGAÚRSLITIN á Bretlandi, leiddu í ljós
stórkostlegri kosningasigur breska Alþýðuflokksins
en dæmi eru til í nokkru landi áður. Flokkurinn fékk
hreinan meirihluta á þingi, svo mikinn meira að
segja, að hann hefir þar nú meira en 150 þingsætum
fleira en allir aðrir flokkar samanlagðir. íhaldsflokk-
urinn, sem áður var langstærsti flokkur breska þings-
ins tapaði um það bil helmingi þingsæta sinna og
reyndist aðeins hálfdrættingur á við Alþýðuflokkinn
í kosningunum. En segja má, að Frjálslyndi flokkur-
inn og aðrir smærri flokkar hafi þurrkast út í kosn-
ingunum. Þeir hafa hver um sig ekki nema örfá þing-
sæti. Kommúnistaflokkurinn fékk ekki nema tvö
þingsæti.
Heildarurslit kosninganna.
Þingsætafjöldi flokkanna er sem hér segir (tölurnar í svig-
unum sýna þingsætafjölda flokkanna við síðustu kosningar í
Bretlandi árið 1935) :
Alþýðuflokkurinn: 390 (154)
íhaldsflokkurinn: 195 (387)
Þjóðlegir frjálslvndir: 14 (331
Frjálslvndi ílokkurinn: 11 (2 Í)
Óháðir: 8 (V
Óháði verkalýðsflokkurinn: 3 (4)
Komúnistar: 2 (1)
Common Wealtli: 1 (0)
Ráðherrar úr stjórn Churc-
hills, sem féllu í kosningunum,
voru meðal annara þessir:
Brendan Bracken flotamála-
ráðherra og fyrrverandi upp-
lýsingamálaráðherra, Hore Bel-
lisha, John Amery, Indlands-
málaráðherra, • Wormersley,
Harold Mac Millan, Sómers,
Geoffrey Lloyd, Sir James
Grigg, Llewelly birgðamálaráð-
herra, Duncan Sandys (tengda-
sonur ChurchillsJ, Sir Richard
Law og auk þeirra þessir menn,
sem allir eru kunnir í brezkum
stjórnmálum: Sir William Bev-
eridge (úr Frjálslynda flokkn-
um), Randolph Churchill (son-
ur Winston Churchills), Sir llic-
hard Ackland, aðalleiðtogi
Common Wealthflokksins. Það
vakti og mikla athygli í kosning-
unum, að Sir Archiljald Sinclair
(í frjálslynda flokknum) féll,
en mjóu munaði, þar sem íhalds-
maðurinn, sem vann þingsæti
lians hafði ekki nema 60 at-
kvæða meirihluta. Þá hafði
einnig Alþýðuflokksframbjóð-
andinn fleiri atkvæði en hann og
munaði 6 atkvæðum.
Aftur unnu foringjar flokks-
ins glæsilegan sigur í kosning-
unum.
Herberl Morrison, einn af at-
kvæðamestu mörmum Alþýðu-
flokksins breska vann þingsæti
í London, sem íhaldsmaður
hafði áður skipað. Ernest Bev-
ein, annar af forustumönnum
Alþýðuflokksins, sigraði einnig
glæsilega og hafði 5000 atkv.
meirihluta urn fram Ihaldsmaun
inn, sem keppti við hann, en áð-
ur var talið tvísýnt, að Bevein
gæti náð kosningu í þessu kjör-
dæmi. Ernst Bevin var fyrrum
hafnárverkamaður í Bristol, en
hefir reynst einn athafnamesti
og traustasti starfsmaður í
bresku stríðsstjórninni eins og
kunnugt er. Altlee var kosinn í
sínu kjördæmi með 4 af liverj-
um 5 atkvæðum, sem greidd
voru.
Clíurchill hélt sínu þingsæti,
eins og búist var við og svo gerði
Anthony Eden.
Kommúnistar fengu ekki
nema tvo þingmenn kjörna,
William Gallacher, sem þar var
fyrir og annan í viðbót.
Clement Attlee, leiðtogi Al-
þýðuflokksins breska á þingi,
sem nú mun verða forsætisráð-
herra, er 62 ára að aldri, hæg-
látur maður, sem ekki ber mikið
á, en er skarpskyggn og glögg-
ur og lætur eklci sinn hlut fyrir
neinum, þegar þvf er að skipta,
enda reyndist hann harðskeyttur
nú í kosningahríðinni. — Um
kvöldið, þegar kosningaúrslitin
voru kunn, íhitti Atllee stutta
ræðu, þar sem hann sagði meðal
annars, að Alþýðuflokkurinn
hefði gengið til þessara kosn-
inga með ákveðna stefnuskrá,
sem miðaði að alhliða umbót-
um, en í utanríkismálum myndu
Alþýðnflokksmenn enn sem fyr
vinna að því, að sigur ynnist á
Japönum sem skjótast og þetta
hefðu kjósendur Bretlands skil-
ið, sem nú hefðu kjörið Alþýðu-
flokkinn til valda á Bretlandi.
A Fimtudagskvöldið, strax
og séð var að Alþýðuflokkiu inn
var orðinn í meiri hluta, sagði
Cliurclúll af sér, en konungur
fól Atflee að mynda stjórn. —
Tóksl hann það á hendur og
lagði fram ráðherralista sinn
kvöldið eftir. Eru aðalmennirn-
ir í stjórninni þessir:
Clement Attle verður forsæt-
isráðherra. Jafnfranrt verður
Tekur við
emhætti
Hr. Sveinn Björnsson verð-
ur settur inn í emhœtti á
morgun, sem fyrsti þjóðkjör-
inn forseti Islands. Hefst at-
höfnin með bœn í Dómkirkj-
unni. Þaðan verður gengið til
neðri-deildarsals Alþingis, ]
og þar setur . forseti Hœsta-
réttar forsetann inn í hið
virðulega embætti. Viðstadd-
ir verða Ríkisstjórn Jslands,
fulltrúar erlendra ríkja og
annað stórmenni.
hann • landvarnamálaráðherra
eins og Churchill var. Ernst Be-
vin verður utanríkisráðherra,
Hugh Dalton fjármálaráðherra
og Sir Stafford Cripps viðskifta
málaráðherra. Sir Herbeit Mor-
rison verður varaforsætisráð-
herra og jafnframt talsmaður
ríkisstjórnarinnar í neðri mál-
stofu þingsins. Sir William Jo-
witt verður lordkanslari (Lord
Chancellor) og Artlnir Green-
wood innsiglisvörður konungs.
A morgun kemur þingið sam-
an til að kjósa forseta. Á Fimtu-
dag og Föstndag vinna þing-
menn eiða að stjórnarskránni,
en reglulegt þing mun ekki hefj-
ast fyr en 15. Ágúst n. k.
Attlee og Bevin flugu til Ber-
línar á Laugardaginn til að
halda áfram fundi hinna
„þriggja stóru“. Hann bauð
Churchill. að fara með, eins og
Atllee hafði áður farið með
Churchill, en ganúi maðurinn
neitaði.
Kosningaúrslitunum hefir ver
ið lekið með miklum fögnuði,
fyrst og fremst í Englandi sjálfu
á Indlandi er þeim líka mikið
fagnað. Treysta Indverjar því
að jafnaðarmannastjórnin verði
frjálslyndari í garð þeirra en í-
haldsstjórnin hefir verið. Þá hef
ir og sigur Alþýðuflokksins í
Englandi vakið mikinn fögnuð
og vaxandi traust á framtíðina
í þeim löndum, þar senr Alþýðu
Framh. á 4. síðu.