Alþýðumaðurinn - 19.03.1946, Side 3
ÞriSjudaginn 19. Mars 1946
ALÞYÐUMAÐURINN
3
Nýi foringinn.
ALÞÝÐUMAÐURINN
Utgefandi:
AlþýSujlohkafílag Akureyrar
ÁbyrgSarmaSur:
Erlingur FriSjónsson
Blaðið kemur út á hverjum Þriðjudegi
Af greiðslumaður:
Jón Hinriksson, Eiðsvallagötu 9
Argangurinn kostar kr. 10.00
Lausasöluverð 30 aurar
TIL MINNIS
Opinberar skrifstofur opnar:
Bæjarfógetaskrifstofan 10—12 og 1—3
Skrifstofur bæjarins 10—12 03 1—5
— byggingafulltrúa 11—12
framfærslufulltrúa 4%—5Mi
— jarðræktarráðunauts 1—2
Skömmtunarskrifstofan 10—12
Vinnumiðlunarskrifstofan 2—5.
Bókasafnið opið:
Þriðjud., Fimtud., Laugardaga 4—7
l
Gufubaðstofa sundlaugarinnar<
Fimtud. Konur 8—11.50 og 5—7
Karlar 2—4.50
Laugard. Konur 3—4.50
Karlar 8-11.50 og 1-2.50 og 5-7.
Póststofan:
Bréfastofan 10—6
Bögglastofan 10—12 og 1—5
Bankarnir opnir:
Landsbankinn 10Va—12 og IVa—3
Búnaðarbankinn 10Va—12 og 1V>—3
Útvegsbankinn 10%—12 og 1—4.
Viðtalstími lœkna:
Héraðslæknirinn 10%—11%
Sjúkrahúslæknirinn 11—12
Árni Guðmundsson 2—4
Jón Geirsson 11—12 og 1—3
Ólafur Sigurðsson 1—3
Pétur Jónsson 10—12 og 5—6
Stefán Guðnason 12%—2 og 5—6
Helgi Skúlason, augnl. 10—12 og 6—7
Friðjón Jensson tannl. 10—12, 1—3 og 4-6
Gunnar Hallgrímss. tannl. 10-12 og l%-4
Berklavarnastöðin 2-4 á Þriðju- og Föstud.
Sjúkrasamlagið 10—12 og 3—6.
Kaupgjald og vísitala:
Almennt kaup karla .... kr. 7,13 á klst.
Almenn kaup kvenna .. kr. 4,42 á klst.
Kaup ung. 14—16 ára .. kr. 4,70 á klst.
Vísitala framfærslukostnaðar 285 stig.
Flokksafmælið.
Framhald af 1. síu.
heldur vilja aðhyllast vestrænt
vit en au$trænt æði, ráðnir til
samstarfs við kratana.
Alþýðuflokkur íslands er
einn af alþýðuflokkum Evrópu.
Hann hefir margsinnis sýnt, að
hann hefir bæði vit og vilja til
þess að stefna í sömu átt og þeir.
Þess vegna samfagna allir
frjálslniga íslendingar honum á
þessum degi og óska honum
mikillar framtíðar og langra líf-
daga.“
Á það var hent hér í blaðinu
fyrir kosningarnar í vetur, að
kynleg væri röðun manna á lista
Kommúnistaflokksins: I fyrsta
sæti maður, sem langdvölum
væri fjarverandi úr bænum, í
öðru sæti maður, sem atvinnu
sinnar vegna yrði langdvölum
úr bænum! Flökkurinn ællaði
auðsjáanlega að treysta á vara-
fulltrúana, enda sagði Tryggvi
Ilelgason, að Jón Ingimarsson
skyldi inn. Reyndist það sann-
spá svona skoðað.
Nú eru báðir farnir, Steingr.
og Tryggvi, en hr. Jón Ingimars-
son, pöntunarfélagsstjóri, tekinn
við forustu Kommúnistaflokks-
ins hér ásamt Rósberg. Hefir
feimtur mikið gripið andstöðu-
flokkana, því að alkunnugt er,
hve geysiáhrifamikill Jón er.
Má nú búast við stóraukningu
Kommúnistaflokksins hér, ef
Jón fær að stjórna sjálfráður,
en ekki í umboði Steingr. undir
eftirliti Elísabetar.
Jón ber vopnin hátl í 12. tbl.
Verkam. og snýr þeirn gegn mér
— vesölum. Satt að segja er 'ég
hræddur við að ganga undir
vopn afarmennis þessa, en vil
þó ekki hrökkva strax fyrir. Skal
nú ögn leitast við að svara grein
hans.
Fyrst byrjar Jón á því að
vitna: Bæjarmálastefnuskrá Al-
þýðuflokksins á Akureyri var
samin eftir tillögum fulltrúaráðs
(Jón formaður þess) verkalýðs-
félaganna, sömdum snemmá í
nóv.!
Það hefir orðið Kommúnist-
um sár biti að kingja, að Al-
þýðuflokkurinn var þeim fyrri
til að semja stefnuskrá í bæjar-
málum og þeir liöfðu enga hug-
kvæmni til aðra en apar hana eft-
ir. Steingr. og Tryggvi kunnu
hér engan mótleik, en strax og
Jón tekur við forustunni stend-
ur ekki á honum: Eftir 4 mán.
upplýsist að fulltrúaráðið (Jón
formaðurinn) samdi e’iginlega
stefnuskrána!
Næst tekur Jón upp tvær máls
greiuar inuan tilvitnunarmerkja
og telur mig hafa ritað þær: „að
Sósíalistar hafi bráðólmir vilj-
að samstarf við íhaldið“ — „Og
hefðu þeir ekki viljað hlusta á
samstarf 'við Framsókn“. Því
miður hefir pöntunarfélagsstjór-
anum orðið þarna á ritfals, vafa
laust óviljandi, því að þessar
málsgreioar hefi ég hvergi skrif-
að. Þykist ég þess fullviss, að
Jón biðjist afsökunar á þessu í
næsta blaði, því að óheiðarlegur
Vopnaburður er lionum mjög
viðurstyggilegur samkvæmt eig-
in sögn.
Næst upplýsir Jón lesendur
Verkamannsins um það, að
Friðjón Skarphéðinsson hafi áll
frumkvæðið að því, að Sjálf-
stæðisflokknunr var boðið til
samstarfs um bæjarmálin. Það
er rétt, að Friðjón vildi, að bæði
Framsókn og Sjálfstæðinu væru
gerð jöfn tilboð, meðan ekkert
lá fyrir um það, hvort fengisl
til meiri vinstri samvinnu. Versl
bára fyrir Jón að glopra þessu
úr úr sér, því að 2. Febr. í 7. tbl.
Verkamannsins segir Steingr.
Aðalst.: „Ekki vildu fulltrúar
Alþýðuflokksins heldur leita til
Sjálfstæðisfl. um, að stjórnarfl.
mynduðu sameiginlega meiri-
hlula í liæjarstjórninni — held-
ur virtist hugur þeirra einkum
beinast til samstarfs við Fram-
sóknarfl.“
Hvað heldurðu Jón, að Stein-
grímur segi við því, að þú hefir
gerl hann að ósannindamanni?
Þegar sýnt þótti, að Sjálfstæð-
isfíokkurinn vildi ekki koma
eins langt til vinstri móts við
verkalýðsflokkana og Fram-
sóknarfl., þá vildu Alþýðufl.
fulltrúarnir 'ekki ganga eftir
sjálfstœðinu með grasið í skón-
um eins og Steingr. gerði, þetta
vottar yfirlýsing sú, sem full-
trúar Alþýðufl. lögðu fram á
samningafundunum og var svo-
hljóðandi:
„Alþýðufl. vill halda fast við
þann málefnasamning um bæj-
armál, sem gerður hefir verið
milli AlþýÖufl., Framsóknarfl.
og Sósíalistafl., og það þótt
Sjálfstæðisfl. vilji ekki gerast
aðili að þeim málefnasamn-
ingi.
Sjái Sósíalistafl. sér ekki fœrt
að halda við þann málefnasamn-
ing. án þess að Sjálfstœðisfl.
gerist aðili að honum —“ o. s.
frv. Þetta sá Sósíalistafl. sér
ekki fært og þess vegna sitjum
við nú með Steinsen sem bæjar-
stjóra, Jóh minn, það getur þú
aldrei hrakið.
Jón hneykslast mjög á því,
að ég átelji Steingrím fyrir að
hafa leikið úr hendi Akureyr-
inga bæjarútgerð. Segir hann,
að Sjálfstæðismenn hafi lengi
gumað af einstaklingsframtak-
inu, og Steingr. hafi viljaÖ lofa
þeim að sýna sig!
Það mun vafalaust einsdæmi
um „sósíalista“ og „verkalýðs-
frömuð“, sé þetta rétt hjá Jóni,
að hann sýni almenningsheill
svo takmarkalausa lítilsvirðingu
að kasta hágsmunamálum al-
þýðunnar sér til skenuntunar
fyrir fætur einkaframtaksins,
þótt hann sé í hjarta sínu sann-
færðu r um réttmæti aunarar úr-
lausnar!
Þá telur Jón mig skrökva því,
að Alþýðúfl.fulltrúarnir liafi
boðist til að útvega Jón Guð-
jónsson sem bæjarstjóra.
Jón koni stundum seint á samn
ingafundina og beið Steingr.
hans ekki. Hins vegar getur Jón
fengið sér upplýsingar um sann-
indi orða minna hjá Framsókn-
armönnuhum, nöma þeir vilji
gerast sjálfboðaliðar fyrir
Kommúnista við það að segja
mig ósannindamann, eins og
Tryggvi og Jón gerðu fyrjr
Framsókn.
Samviskuspurningunum þrem
ur, s'em Jón lagði fyrir mig í
grein sinni, verð ég honum til
lirellingar að svara öllum neit-
andi. Það ríkir sem sé prent-
frelsi hjá Alþýðufl., þótt aðrir
flokkar leyfi sér að gera „sam-
þykktir“ og „banna“ ungum,
hvatvísum mönnum að svara
greinum.
Loks vil ég svo óska vinum
mínum, Kommúnistum, til ham-
ingju með nýja foringjann. Það
‘er gott að vera framgjarn, þeg-
ar engin hætta er á hvatvísi, að-
eins væri kannske rétt að benda
ritstjóranum á að gæta þess, að
„foringinn“ ryðji ekki um koll
í hita bardagans „við að vinna
sig upp“, súlum þeim, sem fyr-
verandi foringjar hafa skotið
undir musterishvelfingu flokks-
ins hér.
Br. S.
FRAMHALDSSTOFNFUNDUR
BARNAVINAFÉLAGS Á
AKUREYRI
verður haldinn í kirkjukapell-
unni næstk. Sunnud. 24. þ. m.
kl. 4 síðd.
Tekin verður endanleg ákvörð
un um stofnun félagsins, gengið
frá lögum þess, kosin stjórn o. s.
frv.
Þeir, sem styrkja vilja þennan
félagsskap, eru beðnir að mæta
á fundinum og gerast félagar.
Molasykur
fæst í
Kaupfél. Verkamanna
Fataefni
Höfum fengið nokkur
dökk fataefni.
KaupféL Verkamanna
V efnaðarvörudeild-