Alþýðumaðurinn - 09.12.1947, Blaðsíða 1
XVII. árg.
Þriðjudagur 9. deseniber 1947
46. tbl.
Frá bæjarstjðrnarfnndi.
NÝJA-BÍÓ
Næsta mynd:
KONA MANNS
(„MANS KVINNA“)
Sænslc stórmynd frá Svensk film-
industri byggð á sanmefndri
skáldsögu eftir Wilhelm Moberg
Stjórnandi:
GUNNAR SKOGLUND.
Aðalblutverkin leika:
Edvin Adolphson
Birgit Tengroth
Holger Löwenadler
SkjalcLborgarbíó
„EG HEFÆTÍÐ ELSKAÐ
Þ!G"
\
Fögur og hrífandi músík- og
litmynd.
Sýnd í kvöld og næstu kvöld.
wi&tmwammmismsssMsimBSSBMSSí
,,Eg heji œtíð elskað þig“
er ákaflega fögur og mikil músík-
mynd. Var hún frumsýningarmvnd
í Austurbæjarbíó í Reykjavík og
munu um 20 þús. manns hafa séð
myndina þar. Píanósnillingurinn Art
ur Rubinstein leikur mörg lögin í
myndinni, án þess þó að koma fram
á sjónarsviðið.
CAROLINE REST
RIFIN
Á síðasta bæjarráðsfundi var sam-
þykkt að hefja nú þegar niðurrif
Caroline Rest.
Þá var einnig samþykkt að hækka
og treysta Glerárgarðinn og nota til
þess grjót úr Reslbyggingunni. Enn-
frernur var ákveðið að grjótpúkka
framhald Glerárgötu norður með
Eiðsvellinum og leggja holræsi í göt-
ur norður á Eyrinni.
Þá samþykkti bæjarráð að segja
upp lóðarleigu timburskúranna vest-
an Skipagötu frá 1. maí að telja, svo
að þar yrði hægl að hafa bifreiða-
stæði.
S, 1. þriðjudag var bæjarstjórnar-
fundur, og lágu ýmis mál fyrir, m. a.
tillaga lil ályktunar í gjaldeyris- og
innflulningsmálum bæjarins, álykt-
un frá vinnumiðliuiarstjórn um at-
vinnuaukningu í bænurn, svo og bréf
frá Verkamannafélagi Akureyrar-
kaupstaðar um sama efni.
Bæjarráð hafði sarnið ályktun í
innflutnings- og gjaldeyrismálunum,
en að ósk og tillögum Svavars Guð-
mundssonar, sem er upphafsmaður
að umræðum þessa rnáls í bæjar-
stjórn, var samþykkl önnur ályktun
svohljóðandi:
A. Bæjarstjórn Akureyrar telur
núverandi tilhögun á veitingu inn-
flulningsleyfa og gjaldeyrisúthlutun
óviðunandi fyrir allflest byggðarlög
utan Reykjavíkur.
Með núverandi fyrirkomulagi er
bersýnilega að því stefnt að flytja til
Reykjavíkur alla verzlun lands-
manna. Er þegar svo komið, að
fjöldi manna i öllum byggðarlögum
verður að Jeita til smásala í Reykja-
vík um kaup á margs konar nauð-
synjavörum, sökum vöruskorts hjá
verzlunum á staðnum.
Af þessum ástæðum fer bæjar-
stjórn Akureyrar þess á leit, að þeg-
ar verði tekin upp sú regla að skipta
innflutningi milli verzlunarstaða í
hlutfalli við íbúatölu og þarfir hvers
verzlunarsvæðis.
B. Þá átelur bæjarstjórn Akureyr-
ar það ástand, sem nú ríkir í sigl-
ingamálum og skorar á Eimskipafé-
lag Islands að laka nú þegar upp
beinar samgöngur milli útlanda og
aðalhafna á landinu eftir fastri áætl-
un.
Telur bæjarstjórn, að minnstu
krýfur í þessum efnum séu:
a. Mánaðarlegir ferðir milli Norð
urlanda og Englands til austur- og
riorðurlands.
b. Mánaðarlega ferðir frá Ame-
fíku vestan um land til Akurevrar.
Akveður bæjarstjórn að fela bæj-
arráði eða einum manni úr hverjum
flokki, að vinna að þessum málum
við Fjárhagsráð og ríkisstjórn, og
Alþingi, ef þörf gerist.
Við umræður, sem urðu um ýms-
ar fundarsamþykktir bæjarráðs, var
upplýsl, að búið vœri að selja skulda-
bréj Krossanesverksmiðjunnar jyrir
530 þús .kr., eða alla víxilupphœð
þá, sem tekin var að láni í Lands-
bankanum til að greiða kaupverð
verksmið'junnar.
Þá kom einnig fram, sem raunar
var vitað um, að bæjarstjóri hafði
afhent Indriða Helgasyni, skv. mjög
hæpinni heimild, öll leyfi bæjar-
ins, 30 að tölu, til þvottavélakaupa,
Indriði síðan sent þáu heildsala í
Reykjavík, sem neitaði að skila þeim,
þótt Viktor Kristjánsson hefði lagt
fram skýlausar sannanir fyrir, að
hann gæli útvegað þvottavélar þegar
í stað hingað, ef leyfin fengjust af-
lient.
Munu allir bæjarbúar furða sig á
framkoinu Indriða í máli þessu, sem
annars hefir rekið hér verzlun um
fjölmörg ár án þess að fá vafasamt
orð á sig, svo að umtalsvert þætti.
Á fundinum voru samþykkt ýmis
götunöfn vestan Þórunnarstrætis.
Voru þau þessi: Mýravegur, Byggða
vegur, Suðurbyggð, Ásabyggð. Goða
byggð og Norðurbyggð, Kvenna-
brekka, Álftamýri, Flugumýri og
Fífumýri.
Eins og fyrr segir lágu fyrir fund-
inum tillögur Vinnumiðlunarstjórn-
ar og Verkamannafélags Akureyrar-
kaupstaðar um atvinnuaukningu i
bænum yfir vetrarmánuðina. Tillög-
ur þessar voru birtar í síðasta Al-
þýðumanni.
Er þær voru teknar til umræðu,
reis Björn Jónsson, sem mættur var
sem varamaður á fundinum, úr sæti
sínu og skemmti bæjarfulltrúum með
því að lesa tillögur fulltrúa Sósíalista
ílokksins í máli þessu. Máttu þær
heita nær orði til orðs íillögur Vinnu
miðlunarstjórnar. Brugðust bæjar-
fulltrúar Sósíalista hinir reiðustu
\ ið, >er bent var á hið skoplega í
vinnubrögðum þeirra, -og voru túlk-
anir þeirra á nauðsyn kúnsta þeirra
hinar kátbroslegustu. Gengu þeir
hver undir annars hönd til að koma
sér úr þessari broslegu sjálfheldu,
„True Knot”
hlekkist á.
Ameríska flutningaskipið „True
Knot“, sem fengið hefir verið til
síldarflutninga, hlekktist á síðastlið-
inn fimmtudag úti fyrir Vestfjörð-
um. Var það á leið til Siglufjarðar
frá Reykjavik með 35 þús. mál síld-
ar og lenti í slæmu veðri, norð-
austan stormi og hríðarbyl. Um kl.
6 síðdegis var skipið statt út af
Barða við Onundarfjörð, er skilrúm
mun hafa brostið í Iest skipsins, svo
að farmurinn kastaðist til. Lagðist
það á hliðina og virtist ekki ætla að
rétta sig við.
Togarinn Surprise frá Hafnarfirði
kom fyrstur að til hjálpar, en síðar
Ingólfur Arnarson. Fylgdust þeir
síðan með skipinu til Patreksfjarð-
ar, en þangað var leitað hafnar, og
komst True Knot það af sjálfsdáðun.
1 sama garðinum hlaut skipið Sig-
ríður, er einnig var í síldarflutning-
um, áfall út af Horni, svo að henni
kastaði á hliðina. Þó tókst skip-
verjum að koma skipinu í var á Að-
alvík og rétta það þar að fullu.
Búast má við, gð bæði þessi slys,
þótt ekki yrðu að mann- né skip-
tjóni valdi verulegum töfum við
síldarflutningana. Er talið alls óvíst,
að „True Knot“ fari aðra ferð norð-
ur, en við það skip einmitt munu all-
miklar vonir hafa verið bundnar um
greiða flulninga á síldinni norður.
sem þeir höfðu flónskazt í, en tókst
ekki. Virðist rilstjóri Vm., sem sat
og hlýddi á umræður, fá gullkorn
hafa f.undið í ræðum félaga sinna,
því að hann birtir ekkert úr þeim,
nema dálitla klausu eftir Tryggva
Helgasyni, sem gerði virðingaverða
tilraun til að vera fyndinn í síðustu
ræðu sinni. „Tillögur“ fulltrúanna
birtir Vm. ekki!
Eftir nokkurt þref var tillögum
Vinnumiðlunarstjórnar og Verka-
mannafélagsins vísað til bæjarráðs
lil athugunar, en tillögur þremenn-
inganna þóttu ekki gefa tilefni til
nokkurrar ályktunar eða ^amþykkt-
ar.