Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 09.12.1947, Síða 2

Alþýðumaðurinn - 09.12.1947, Síða 2
1 AL>'?DUMAÐ¥RINN Þriífjudagur 9. desember 1947 Æskan mun hafna öfgastefnnm. Á síðu ungra Sjálfstæðismanna í ,.Isafold“, gaf nú fyrir nokkru *að líta eftirfarandi klausu: „Æskan veit, að Sjálfstæðisflokkurinn er öfl- ugasti málsvari frelsis og framfara meðal þjóðarinnar. Hún veit, að með því að efla Sjálfstæðisflokkinn býr hún bezt í haginn fyrir sjálfa sig og tryggir sjálfstæði þjóðarinnar.“ Fallega er nú komizt að orði, en væmið er það engu að síður. Saga Sjálfstæðisflokksins til þessa sýnir nú því miður hið gagnstæða, hún birtir okkur þau beisku sannindi, að einmitt þessi flokkur hefir hvað eftir annað traðkað á rétti alþýðunnar í landinu, hann hefir, að því er virð- ist, haft það fyrir ófrávíkjanlega skyldu, að berjast á móti hverju ein- asta framfara-. og réttinda-máli verka- manna og annarra alþýðustétta, en þó er höfundur áður nefndrar klausu svo fífldjarfur, að bera það blákalt fram, að þessi flokkur sé einmitt ör- uggasti málsvari æskunnar. Ja, heyr á endemi! Ætli verði ekki farið að segja það, að Hitler hafi verið skel- eggasti liðsmaður friðarins á sínum tíma? Væri það svipaður málflutn- ingur og hjá höfundi fyrrnefndrar Isafoldargreinar. Eg ætla að gamni mínu að drepa hér á eftir á nokkur atriði úr stjórnmálasögu Sjálfstæðis- flokksins hin síöustu ár. Hygg ég, að þessi sýnishorn, þótt fá verði, leiði í Ijós, að Sjálfstæðisflokkurinn er og-- hefir verið hin kalkaöa gröf þröngsýnis, skilningsleysis og rammr ar einstaklingshyggju, að hann hefir vei;ið og er baráttutæki auövaldsins gegn alþýðunni. Árið 1927 lét aðalforustumaður íhaldsins svo um mælt á Alþingi: „Það er fariö fram á að fella burt það skilyrÖi fyrir kosningaréttinum, að menn séu ekki í skuld fyrir þeg- inn sveitastyrk og einnig er aldurs- takmarkið fært niöur í 21 ár. Mér sýnist ekki rétt að fara að breyta þessu.“ Bera þessi ummæli vott um frjáls- lyndi og framfarahug? Nei, þetta er raust afturhaldsins, og ef þess sjón- armið hefðu borið sigur af hólmi í þessu máli, væri fátæklingum enn meinað kosningaréttar, og æsku- mönnum einnig til 25 ára aldurs. Árið 1926 komst einn af áhrifa- mönnum íhaldsins þannig að orði: „En hitt segi ég, að mér litist svo á þessa atvinnugrein (síldveiðarnar), að enginn skaði hefði verið fyrir þjóðina, þótt hún hefði aldrei rekin verið----------enda stunduÖ af rusl- aralýð og landshornafólki.“ Hvað sýna þessi unnnæli? Er hér um frjáls lyndi og framfarir að ræða? Nei, en þannig var andinn í forkólfum íhalds ins á þeim árum til þeirrar atvinnu- greinar, er öðrum fremur hefir fært þjóðinni björg í bú. Þótt þeir hins vegar nú prísi og lofi þann starfa, er síldveiðarnar hafa átl í uppbygg- ingu betri lífsafkomu á íslandi, en auðvitað vita þeir mætavel sjálfir, að í slíkt hefði aldrei verið ráðizt, ef þeirra vilji hefði orðið yfirsterk- ari í þessu máli, en um það má ekki ahnenningur vita, það á að falla í gleymsku og því er tranað fram yfir- lætislegum stefnuskrám, er eiga að bera vitni um framfarahug höfund- anna. Árið 1926 var verkafólk lands- ins ruslaralýður og landshornafólk að dómi hinna sömu manna, og við skulum vart trúa, að sá hugsunar- háttur hafi breytzt. Þessari illkvittnis- legu nafngift má ekki og á ekki al- þýðan að gleyma. Hún á að vera þess minnug, er arftakar höfundar- ins koma smjaðrandi, er kosningar fara í hönd. biðjandi um kjörfylgi og hrópandi: „Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur allra stétta“, eða einhver álíka slagorð. Þá er auövelt að borga fyrir nafngiftina á réttan hátt. Er lögin um verkamannabústaði voru til umræðu á Alþingi, sýndu þingmenn Sjálfstæðisflokksins á- þreifanlegar en nokkru sinni fyrr, hvers hinar vinnandi stéttir mega frekast vænta úr þeirri átt. Þykir mér vel við eiga að birta tvær glefs- ur úr ræðu, er núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Thors, hélt, er málið var á dagskrá þings- ins. Hann sagði m. a.: „Frumvarp hæstvirts 2. þingmanns Reykvíkinga er því ekki aðeins gagnslaust, heldur hreint og beint skaðlegt og aðeins flutt til þess að sýnast“, og Ólafur heldur áfram: „Það er hægt að þenja sig og grenja um dimmu, köldu og röku kjallaraholurnar“ o. s. frv. Slíkur var nú áhugi Ólafs Thors fyriribættúm húsakynnum til handa verkamanna, fyrir nokkrum árum. Um sama mál sagði Magnús Jóns- son: „Það er rétt, að það er mest um vert að byggja ódýrt. En ég held, að bezta ráðið að því marki sé að gera engar ráðstafanir“. Ja, þvílíkur framfarahugur, frændi sæll! Var ekki Sjálfstæðisflokkurinn á móti togara- vökulögunum, orlofslögunum, full- komnum almannatryggingum, auk þeirra mála, er ég hefi getið um hér að framan? Sem sagt, Sjálfstæöis- flokkurinn hefir barizt með oddi og egg gegn öllum þeim framfaramálum, er borin hafa verið frain til bættrar og öruggari lífsafkomu íslenzkrar al- þýðu, sem er þó meirihluti þjóðar- innar, og flokksbroddarnir hafa ckki látið undan síga af þeirri ástæðu, að þeim hafi snúizt hugur, heldur hafa þeir óttast dóm þjóðarinnar, þess vegna hafa þeir gripið til þess ör- þrifaráös að villa á sér heimildi'r og látast vera annað og betra en þeir eru. Það vita allir, eða ættu að vita, hverjir ráða lögum og lofum í Sjálf- stæðisflokknum. Það eru auðmenn- irnir á íslandi og þeir herrar híða eftir fyrsta hentugleika til að skerða þau réttindi, er hinar vinnandi stétt- ir hafa hlotið fyrir baráttu Alþýðu- flokksins á liðnum árum og það tækifæri getur komið fyrr en varir, ef meirihluti þjóðarinnar verður ekki vel á verði gegn því skrumi og óheil- indum, er forustumenn íhaldsins láta sér sæma að nota til að blekkja hátt- virta kj ósendur. ÁSurnefndur greinarhöfundur fer mörgum hörðum orðum um komm- únista og ætla ég sízt að lasta það, en vil aöeins minna hann á, að Sjálf- stæðisflokkurinn hefir ekki skirzt við að leggja lag sitt við kommúnista, er liann hefir álitið, að eitthvað mætti á því græða. Má minna á hjálp Sjálf- stæðisflokksins við kommúnista til að kljúfa verkalýÖssamtökin. Það var þeirra áhugamál, að baráttusamtök alþýðunnar yrðu sundruð, því að ef slíkt heppnaðist, ættu verkamenn öllu óhægara að gæta réttar síns við atvinnurekendur. Þess vegna var gengið í bandalag við kommúnista í því skyni að eyðileggja Alþýðuflokk inn. Árangurinn af því bandalagi hefir komiö fram og er hann til lít- illa lieilla fyrir þjóðina. Það standa hörð álök yfir um sál æskunnar. Áróðursvélar beggja öfga flokkanna til hægri og vinstri, eru í fullum gangi og ekkert er látið ónot- að við veiöarnar: Það er dorgað, duflað, beitt kjassmælgi, fagurgala, ofstæki og lygi, allt eftir því hvað lientar bezt í hvert skipti. Því miður hafa margir æskumenn látið blekkj- ast, látiö teyma sig inn í raðir komm- únista eða auðvaldsflokksins, án þess að vita um stefnu þessara flokka eða markmið. Þeir voru hrennndir af veiðimönnunum á mismunandi hátt, sumir kannske á dansskemmtunum, aðrir í grautarveizlu á hóteli og enn öðrum var lofað gulli og grænum skógum, bara ef þeár vildu skrifa sig á meinleysislegt skjal o. s. frv. En allt hefir sinn enda og einnig árangr- ar slíkrar veiðimennsku. Því fyrr því betra. Sem betur fer hefir æskulýður landsins um fleiri stefnur að velja en kommúnisma eða afturhaldsstefnu Sjálfstæðisflokksins. Eg er þess full- viss, að hin uppvaxandi æska mun fara meöalveginn, hún mun sjá, að sósíalisminn á vegum lýðræðisins er rétta leiðin, leið framfaranna og rétt- lætisins, leiðin, sem tryggir þjóðfé- lagsþegni jafna aðstöðu í lífsbarátt- unni, þar sem engin forréttindi eru liðin eða aðrir megingallar kapital- ismans, þar sem einræði og önnur markmið kommúnismans, er leiða til áþjánar, er útilokuð. Síðustu kosningar sýndu, að æsk- an er að koma auga á þetta. Fylgis- aukning Alþýðuflokksins þá var fyrsta sporið, en ekki það síðasta. — Æskan mun efla jafnaðarstefnuna markvisst og ákveðið, hún mun hyorki láta blekkingar kommúnista eða íhaldsins trufla dómgreind sína, því að hún ætlar sér hvorki að verða hlýðinn þræll komraúnismans né auð valdsins í framtíði»ni. Sigur/ón Jóhannsson. Frétta- tilkyrming. Nýlega var undirritað í Haag sam- komulag um aukin viðskipti milli Hollands og ísland«. Samk-væmt sam komulaginu munu íslendingar selja Hollendingum frysUn fisk, fiskimjöl, síldarlýsi, söltuÖ þorskflök og síldar- lýsi, en frá Hollsndi munu verða keyptar ýmsar nanðsynjavörur. Þetta samkomulag er árangur af viðræðum, sem fóru fram í Reykja- vík í september milli hollenzkrar og íslenzkrar verzlunarnefndar og sem síðan var lokið í Haag. Af íslands hálfu gengu frá sam- komulaginu Eggert Kristjánsson, stórkaupmaður, Hulgi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri, og Þórhallur Ás- geirsson, fulltrúi. U tanríkisráð uneytið, Reykjavík, 29. nóv. 1947,

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.