Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 07.12.1948, Qupperneq 1

Alþýðumaðurinn - 07.12.1948, Qupperneq 1
ftlþúíiumaíi ur iua XVIII. árg. Þriðjudaginn 7. desember 1948 45. tbl. Vansæmandi framkoma ís- lenzkra stiórnarblaða. KAUPIR F.ÆRINN 1. des. s. 1. voru 30 ár síðan lýst var yfir, að ísland væri frjálst og fullvalda ríki. Baráttan fram til þessa marks var löng og hörð og full hetju- afreka mætustu sona þjóðarinn- ar, afreka, sem núlifandi for- vstumenn á sviði þjóðmála mega aldrei láta sér gleymast. Virðuleg afmæli mikilia við- burða eru réttmæt sem áminn- ing um það, að aldrei skuli beztu afrek gleymast. Þó eru það ekki afmælishófin sjálf, heldur sá hugur; sem þau heidur, er máli skiptir, og út af fyrir sig eru af- mæli sjaldnast merkileg. Sennilega hefði 30 ára afmæli hins íslenzka fullveldis gengið sporlaust yfir spjöld íslenzkrar sögu, ef í sambandi við það hefði ekki gerzt hvort tveggja í senn: gleði- og sorgarviðburður. Gleðiviðburður að því leyti, að á afmælisdaginn er talað til ís- lenzku þjóðarinnar af svo heitri andagift, að lengi munu útvarps hlustendur, sem á hiýddu i minnum hafa. Er hér átt við hina afburðasnjöllu ræðu séra, Sigurbjarnar Einarssonar: Haldi Iiver vöku sinni. En sorg arviðburðurinn gerðist tveim dögum síðar í leiðurum tveggja stjórnarblaðanna, Morgunblaðs- ins og Alþýðublaðsins, er þau réðust rneð offorsi á séra Sigur- björn og ræðu hans. Ekkert er við því að segja, þótt háttvirtir ritstjórar þsss- ara blaða hafi aðra skoðun en séra Sigurbjörn á viðkvæmum þáttum í utanríkismálum þjóð- arinnar. I lýðfrjálsu landi er það hollt og sjálfsagt, að andstæðum rökum sé teflt fram^ alþjóð til glöggvunar og skilningsauka. En sjálfstæðismál lands vors og þjóðar á að vera langt fyrir of- an alia flokkapólitik. Séra Sig- urbjörn Einarsson flutti mál sitt af dýpstu alvöru og fyllsta drengskap og prúðmennsku. Því miður verðiu’ það ekki sagt um málflutning stjórnarblaðanna tveggja. Um máiflutning Morgunblaðs- ins verðui’' ekki fjölyrt hér. ,,Þar er mér úlfs von, sem ég eyrum sé,“ eins og máltækið segir. Hitt er hollast að segja um- búðalaust, að þeim, sem þetta ritar, fannst Alþýðublaðinu — og séra Sigurbirni — mjög mis- leggjast hendur, er hin ágæta ræða prestsins birtist í Þjóðveij- anum, en hroðyrtur leiðari í Ai- þýðublaðinu! Séra Sigurbjörn gaf þeim, sem vilja telja fólki trú um5 að hann sé kommúnisti og ríða þannig hsini í eggjar orðs hans, nýtt vopn í hendur. Alþýðublaðið gaf þeim, sem vilja telja það uggvænlega Bandaríkjasinnað, nýjan rýting upp í ermina. 21. þing Alþýðuflokksins er nýafstaðið. Engar þær samþykk ir voru þar gerðar, sem gefi Al- þýðublaðinu heimild til að tala svo fyrir munn alls Alþýðu- flokksins í viðkvæmu þjóðmáli og það gerir í fyrrnefndum leið- ara. Það er alkunnugt, að skoð- anir flokksmanna eru hér all- cieildar sem og annarra flokka. Eg, sem þetta rita, ætla mér ekki þá dul að tala fyrir munn eins eða neins nema sjálfs mín. Einn ber ég ábyrgð á orðum þessum. Hins er ég fuliviss, að fjöl- margir Alþýðufiokksmenn víðs- vegar um land munu taka af heilhug undir þsssi lokaorð mín: Þökk yður, séra Sigurbjörn, fyrir hina ágætu ræðu yðar Haldi hver vöku sinni — enda þótt yður henti sú skyssa ,að leyfa Þjóðviljanum hana tii birtingar, sem hann að mínu á- liti gerði einungis tl að bi’egða guðvefjarskikkju yfir ilihæru- öúkinn, sem innstu klæði hans eru skorin af! Br. S. SORPBRENNSLUOFN ? Á fundi sínum 3. nóv. s. 1. beindi heilbrigðisnefnd Akur- eyrar þeim tilmælum til bæjar- stjórnar, að hún athugaði um kaup á sorpbrennsluofni fyrir bæinn til brennslu á bréfarusli og lífrænum efnum úr sorpi. — Telur nefndin, að slíkt yrði stórt spor í þrifnaðai’átt og mikils- verður liður í baráttunni gegn rottuplágunni. TVeir togarar stranda íyrir Vestíjðrðum. Elleíu hrezkir sjömein farast. S. 1. miðvikudag gekk ofsa veður með hríð yfir Vestfii’ði. Strönduðu tveir togarar þar vestra í þeim gai’ði: Togar'.nn Júní fi’á Hafnai’fii’ði og Sai’gon frá Hull. Strandaði Júní um há’f sjö á miðvikudagskvöld inn anvert við Sauðanes utarlega við önundarfjörð, en Sai’gon ut- aiiega við Patreksf jörð að sunn an, nálægt Hafnarmúla, senni- : lega um likt leyti og Júní. I Björgun manna af Júni tókst g'.ftusamlega. Var áhöfnin 26 manns og bjöi’guðust allir, þótt ; eigi lyki því starfi fyrr en um hádegi dag'nn eftir að skipið strandaði. Var flestum skip- verja bjargað af skipshöfn tog- arans Ingólfs Arnarsonar, sem fann hið strandaðá skip með x’adartækjum sínum. Fór björg- unin fram með þeim hætti, að mennirnir af Júní voru selfluttir á björgunarfiek'a yfir í björgun- j ai’bát frá Ingólfi Arnarsyni. Einn mann tók út af flekanum og bjargaði mótorbáturinn Garð ar honum. Tveim mönnum, þeim síðustu, skipstjóra og stýrimanni, varð eigi bjargað á þennan hátt,- en björgunarsveit úr Súgandafix’ði tókst að bjarga þeim í land. Leið allri áhöfn vel eftir björgunina. Eigi tókst jafnvel um brezka íogai’ann. Varð engri björgun komið við af sjó; en björgunar- sveitin Brásðrábandið, sem kunn er fyrir björgun áhafnarinnar af Dhoon, tókst um lxádegi eftir strandið að ná sex af áhöfninni í land, mjög þrekuðum, en 11 höfðu farizt. Hafði einn tekið út um nóttina, en hinir dáið úr vos- búð og kulda( þar eð sjór hafði gengið yfir skipið alla nóttina. Jafnaðarmenn stórvinna á. S. 1. sunnudag fóru bæjai’- stjórnarkosningar fram í Berlín þrátt fyiir andstöðu hernáms- yfirvalda Rússa og mikinn áróð- ur kommúnista gegn þeim. — Beipdist áróður kommúnista fyrst og fremst að því að fá rnenn til að sitja heima. Samkvæmt fréttum um há- öegi í gær höfðu 86% atkvæða- bærra manna neytt kosninga- í’éttar síns við þessar kosningar, og var talið að jafnaðarmenn hefðu fengið 60% atkvæðanna. Kristilegir 19% og Fi’jálslyndir 16%.

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.