Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 22.03.1949, Blaðsíða 2

Alþýðumaðurinn - 22.03.1949, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUMAÐURINN Þriðjudagur 22. marz 1949 stundin mikla. Aílantshafssáttmálinn birtur. Örlaga „— uk lét gera fjötur þann, er Gleipnir heitir. — Fjöturinn varð sléttr ug blautr sem silki- ræma, en svá traustr ok sterkr sem nú skaltu heyra.“ Síðastliðinn föstudag var birtur Atlantshafssáttmálinn svonefndi, sem svo mjög liefir verið umtalaður und- anfarna rnánuði. Er sáttmálinn í 14. greinum. \Því miður hefir sá, sem þetta ritar, eigi frumtexta sáttmál- ans í höndum, heldur hefir aðeins séð þýðingar Alþýðuhlaðsins og Þjóðviljans á honum, og her þar nokkuð á milli sums staðar um oröa- lag, en tæpast svo að merkingar- munur sé. Alþýðublaðið túlkar sáttmálann sem „nánast viljayfirlýsing um sam- starf lýðræðisþjóðanna“, og verður því tæpast neitað, að sé svo einvörð- ungu, þá er dálítið hroslegt fyrir lýðræðisþjóðir, sem marglýst hafa yfir samstarfsvilja sínum, að þær þurfi að gera um slíka viljayfirlýs- ingu sáttmála til 20 ára. Þjóðviljinn kallar hins vegar sátt- málann árásarsamning og talar um hervarnir og styrjaldarþátttöku „í Jrágu bandarískra heimsvaldahags- P — muna“. Og verður ekki sagt,' að hér sé skammt öfganna á milli. Nú um skeið hefir allmikið verið um það deilt hér á landi, hvort ís- lendingum væri íáðlegt eða ekki að ganga í Atlantshafsbandalagið. Hef- ir að vonum mergur málsins verið sá, h,vort slíkt yki öryggi landsbúa eða ekki og hvorl aukið öryggi, ef Jrað fengist, yrði ])á ekki keypt of dýru verði. ETmræður þessai' munu vafalaust þykja allmerkilegar, Jtegar stundir líða. Þær hafa verið haröar, en Jjað er ekki nýtt hjá okkur. Ilitt er at- hyglisvert, live geysilegri áróðurs- tœkni hejir verið heitt til að já al- mennitig til að triia jijví, að ré.tt sé og sjálfsagt að ganga í bandalagið. Fyrstu og umhúðalausustu rökin voru þau, að lsland væri varnarlaust land gagnvart herveldi Rússa. Hér yrðu að koma „sterkustu vígvélar og morðtól til varnar og sóknar“. Þegar almenningi leizl ekki á Jjessi „rök“, var enn haldið franr nauðsyn þátttöku í bandalagi, en lögð áherzla á, að hér skyldi eigi ljá máls á „herstöðvum á íriðartímum“. Loks er svo hálf ríkisstjórnin send vestur um haf til að „kynna sér kvaðir og kosti“, og er slíkt raunar ekki átöluvert, en athyglisverðast í Jivi sambandi, að allar fréttir um slíkt fengu landshúar í erlendum jréttum Ríkisútvarpsins. Og nú hafa sem sagt hinar 14. gr. sáttmálans verið hirtar. Hér er ekki rúm til að hirta allar greinarnar, en sérstök athygli skal vakin á 3., 4. og 5. gr. hans. Þær hljóða svo (þýð. Þjóðviljans á 3. gr„ Jjar sem hún er hrengluð í AlþýÖubl., 4. og 5.,gr. þýð. Alþhl.): „III. gr. Til þess að ná tilgangi þessa sáttmála á öruggari hált munu aðiljar hans, hver fyrir sig og í sam- einingu, heita stöðugri og mark- vissri uppbyggingu og gagnkvæmri hjálp til að halda við og auka getu livers einstaks og allra sartieiginlega lil að veita mótspyrnu vopnaðri á- rás. IV. gr. SamningsaÖilar skulu ráðgasl við, hvenær sem friðhelgi lands, pólitísku sjálfstæði eða ör- yggi einhvers Jieirra er stofnaö í hættu, að áliti livers jteirra sem vera skal. V. gr. Samningsaðilar eru ásáttir um, að vopnuð árás á einhvern eða einhverja Jteirra, í Evrópu eða Norður-Ameríku, skuli skoðast árás á þá alla, og íyrir því eru þeir ásátt- ir um, að verði slík vopnuö árás gerð, skuli hver Jjeirra með skírskot- un lil réttarins til sjálfsvarnar, hvers einstaks eða margr'a sameiginlega, sem viðurkénndur er í 51. gr. sátt- mála S. Þ., konta Lil' hjálpar Jjeim samningsaðila eða aðilum, sem þannig er á ráðist, með ]>ví að gera þegar í stað, hver um sig og ásamt hinutn samningsaðilunum, Jjær ráð- stafanir, sem hann ályktar að nauð- synlegar séu* til að koma aftur á og * Alar leturbr. mínar. — Br. S. varðveita öryggi á N-Atlantshafs- svæðinu, og telst Jjar til beiting vopnavalds----------- í 9. gr. er svo ákveðið, að stofna skuli sérstakt ráð, sem sjá skuli um framkvæmd samningsins. A þar hver aðili fulltrúa, en Jró skal það þannig skipað, að það geti komið saman í skyndi. Nú verður oss íslendingum á að sp.yrja: Hvernig verður „haldið við og aukin geta vor til að veita mót- spyrnu vopnaðri árás“ (III. gr.), ef hér er hvorki herskylda, erlendur her né nokkur herstöð á friðartím- um? Eða ætla íslenzkir fylgjendur bandalagsins eftir allt saman að ganga frá fögru yfirlýsingundm? Eftir 4. gr. er ákvörðunarréttur- inn tekinn af sanmingsaðilum um það, hvenœr þeim er ógnað, sarnan- ber niðurlag greinarinnar. Þetta er aðeins hættulegt fyrir smáþjóðirnar, stórþjóöirnar geta í reynd alltaf á- kveöið slíkt sjálfar. Og eftir 5. gr. ráða samningsaðil- ar því sjálfir, hver jyrir sig, hvaða hjálparráðstafanir þeir gera, ef á eitt ríkis er ráðizt, }j. e. samkvæml henni er engin skýlaus yfirlýsing stórveld- anna um vopnaða vernd sntájjjóðun- um til handa. Oss verður nú á að spyrja: Hvað er nú unnið við, að ísland gangi í Jjetta handalag? Samkvæmt aldagamalli hefð .vit- um vér, að Bretland leyfir engu sér óvinveittu ríki að ná herstöðu hér á landi, geti Jjað spornaö við því. Bandaríkin hafa lýst Jrví skýlaust yf- ir bæði 1941 og aftur 1945, að þau gætu ekki vegna eigin öryggis J)ol- að, að nokkurt ríki Jieim óvinveitt næði Islandi á silt vald, en J)essi tvö ríki, Bretland og Bandaríkin, eru þau einu af bandalagsríkjunum, sem veitt geta oss vopnavernd. Það er því augljóst, að ekki Jmrfum vér að gerast aðilar að handalaginu iil að iiðlast ])á vissu, að Bretar og Banda- ríkjamenn vaki yfir J)ví, að Rússinn taki oss ekki herskildi. Um samstarfsvilja þeirra þjóða, sem að Atlantshafssáttmálanum standa, hæði á sviði efnahags-, menningar- og mannréttinda-mála, efumst vér ekki sáttmálalaust. Þess vegna þurfum vér ekki að hinda oss þar til 20 ára. Gagnvart Vestur- og Noröur-Ev- rópuríkjunum og Vesturálfu hefir íslenzka Jtjóðin ætíð sýnt það Ijós- lega, að hún muni aldrei vega að haki ])eim. Þess vegna þurfa ]>au engan 20 ára sáttmála um slíkt af vorri hendi. Þórólfur Nefjólfsson hað Jjess fyrst fyrir liönd erlends konungs af íslendingum, að þeir gæfu land og J)jóð á lians vald, þar næst Grimsey eina og loks það eitt, að helztu höfð- ingjar landsins kæmu á konungs- fund. íslendingar neituðu þessu öllu, en sendu 4 höfðingjasonu utan. Þeir hundust engu, en sýndu fyllstu vin- áttumerki. Nefjólfssynir nútímans hafa fyrst heiðst þess af þjóðinni, að hún gerði land silt „áð sterkasta víghreiðri“, næst að hún bindist í samtök, sem ekki skuldhindu hana ])ó til her- stöðva á friðartímum, loks að hún undirriti „nánast viljayfirlýsingu um samslarf lýðræSis])jóðanna“. (Al])bl. 19. marz 1949.) Islendingar eru vopnlaus ])jóð, sem lýst hcfir yfir ævarandi hlut- leysi í hernaöi. Þeir eiga sér ntenn- ingararf, sem hver þjóð má vera stolt af. Þeir hafa barizt fyrir sjálf- stæði sínu um aldaraðir og loks end- urheimt ])að fyrir skönnnu. Sú bar- áttusaga ætti að vera oss leiðarljós. Islenzka þjóðin á nú innan skamms að taka örlagaríka ákvörð- un um 20 ár fram í tímann. Nú ríð- ur á, að hún velji rétt. Nú ríður á, að hún dragi dæmin af sögu sinni og horfi vel í skuggsjá dæmisagna sinna. Hvort man nú engin söguna um fjöturinn Gleipni, sem enginn fjötur sýndist, en þó hélt öllum böndum hetur? Ilvort man nú enginn lengur, að eitt sinn var íslenzkri þjóð talin trú um, að Gamli sáttmáli væri henni beinlínis hinn hagfelldasti öryggis- sáttmáli? Hér mega engin annarleg sjónar- mið rugla íslenzka ])jóö, Jiegar á- kvörðun verður tekin í því, hvort hún skuli gerast aðili að Atlants- hafssáttmálanum eða ekki. Aðeins íslenzkt sjónarmið á að ráða, það, hvað íslenzku Jijóðinni er hezt og affarasælast. Verði svo, er enginn efi á svarinu: I ér neinum Nefjóljssoji- um um bæn Olajs digra, vér neiturn hojiurn um Grímsey, vér neitum því að geja beztu höjðingja vora á vald honum, en vér viljum gjarnan að öðru leyti sýna honum fullt traust, meðan hann sýnir sig j>ess verðug- an. Vér viljum gjarnan senda beztu sonu vora: íslenzkan höfðingsskap, manndóm og brœðralagsvilja utan til grannþjóða vorra, svo að þeijn leiki enginn eji á, að vér erum jylgj- endur FRELSIS, JAFNRÉTTIS og BRÆÐRA LA GS. En vér höfum jengið nóg aj gömlum og nýjum sáttmálum. Vér höjum fengið nóg af jjötrinum Gleipni. Þess vegna segjum vér N E I. Br. S.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.