Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 26.02.1952, Síða 1

Alþýðumaðurinn - 26.02.1952, Síða 1
XXII. árg. Þriðjudagur 26. febrúar 1952 8. tbl. Mtrkisfíicli merhilegrd stofMM Elzta kaupfélag landsins, Kanpfélag Þingeyinga, 70 ára, S.Í.S. 50 ára. Fyrir tæpri viku átti elzta kaup- félag landsins, Kaupfélag Þing- eyinga, 70 ára starfsafmæli, en Samband íslenzkra samvinnufé- laga hálfrar aldar sögu að baki. Ugglaust má telja, að önnur fé- lagssamtök merkilegri en kaupfé- lögin hafi ekki risið upp hér á landi til hagsbóta alþýðu manna, og jafnframt má fullyrða, að lragsbætur félaganna hafi orðið enn meiri og áhrifaríkari vegna þess, að þau skipuðu sér í sam- band saman. Því eru stórafmæli ofangreindra stofnana vissulega merkisafmæli í sögu landsins. En hvort tveggja er, að þess- ara afmæla hefir að nokkru verið getið í útvarpi og dagblöðum höf- uðstaðarins, sem margir sjá, og almenningi eru þessi mál vel kunnug af eigin sjón og raun, og verða því afrek þessara stofnana hér ekki rakin. Hitt er ekki óviðeigandi, enda full ástæða til, að ræða nokkuð stöðu og starf kaupfélaga nú al- mennt svo og SÍS, einmitt vegna þess að umræður um verzlunar- mál landsmanna fara alhnjög fram í blöðuin þessa dagana. Er það raunar að mestum hluta frem- ur ófrjótt pex um það, hvort verzl- un sé betri í dag en í gær, betri í tíð núverandi stjórnar eða fyrr- verandi, en enginn virðist þora að segja það fullum rómi, að hvorug verzlunin var eða er góð, til þess vantaði og vantar frum- skilyrðin: í tíð fyrrverandi stjórn- ar var vöruekla, en í tíð núver- andi stjórnar skortir kaupgetuna hjá alþýðy manna. Fyrri skortur- inn var vondur, en sá síðari þó miklu verri. En við þessa tvo óvini alrnenn- ings hafa kaupfélögin frá upp- hafi vega sinna átt að etja, svo að sú barátta ætti ekki að vekja þeim ógn. Olíkt er líka, hversu afstaða félaganna er miklum mun sterk- ari nú en í upphafi: Þá voru þau allslaus samtök allslausra manna nánast sagt, nú í mörgum tilfell- um gróin fyrirtæki að völdum og fjármunum. Og hér er þá komið að styrk og hættu samvinnufélagsskapar- ins: Fjármunirnir eru nauðsyn- legir og sjálfsagðir til þess að fé- lögin geti rekið sem hagkvæmasta verzlun landsmönnum, áhrifin og völdin sömuleiðis. En þá þurfa líka fjáraflið, valdið og áhrifin að beinast að þessunr tilgangi kaupfélaganna heilshugar, en ekki öðrum verkefnum óskyldum, svo sem flokkapólitík, eins og augljós dæmi eru til um sum félögin og Sambandið sjálft. Víðs vegar um land blasa nú augljós dæmin við mönnum mn geysilegt fjármagn, sem kaupfé- lagsmenn hafa lagt kaupfélögun- um upp í hendur með verzlun sinni. Oft er því hampað, að kaupfélagsmenn sjálfir eigi þetta fjármagn, ráði því og fái það aft- ur, ef t. d. hlutaðeigandi félög hætti störfum. Það er nú svo með þessi vígorð, að þau eru góð til þess að flagga með þau, en hafa ekki annað gildi. Hinn raunhæíi sannleikur er, að því aðeins hafa kaupfélagsmenn hag og tekjur af því fjármagni, sem þeir leggja fé- lögunum upp í hendur með verzl- un sinni, að því sé varið til bættr- ar verzlunar. Verði varan ekki betri eða ódýrari, eða hvort tveggja, ellegar samvinnuverzlun- in veiti meðlimum sínum aukið örvggi um vöru, svo og arð af verzluninni, verður það gagn í reyndinni ekki neitt, sem hinn óbreytti kaupfélagsmaður meðal neytenda hefir áf því að verzla við félag sitt. Og á sama liátt má segja um framleiðandann, að hans gagn af kaupfélagsverzlun er í reynd engin, ef hann fær ekki eitthvað af þessu: meira fyr- ir vöru sína, aukið söluöryggi fyrir vöru sína og ódýrari neyzlu- og rekstursvörur í bú sitt. Fáist þetta ekki í aðra hönd, hefir hinn •óbreytti kaupfélagsmaður í hæsta máta aðeins augnayndi af glæsi- legum húsakosti félags síns. Það er engum blöðum um það að fletta, að yfirleitt hafa kaup- félögin og SIS veitt meðlimum sínum í verulegum mæli allt það, sem hér er talið upp að framan, þótt í mismunandi stíl hafi yerið eftir árferði og forystu. Vegna þessa hefir samvinnustefnan orð- ið merkisþáttur í sögu þjóðar- innar, og þess vegna er 70 ára aí- mæli elzta kaupfélagsins og 50 ára afmæli Sambandsins sjálfs merkisafmæli. En vandi fylgir vegsemd hverri og það er sagt, að ekki sé síður mikils vert að gæta fengins fjár en afla þess. ekki síður vandi að halda virðingu en hljóta liana. Því er ekki að leyna, að ýrnis sólarmerki liafa bent íil þess á síðari árum, að í áhrifastöðum samvinnuhreyfingarinnar væru menn, sem hættir til að gleyma Síðastliðinn fimmtudag var frumsýndur í Samkomuhúsinu hér á veguin fulltrúaráðs verka- lýðsfél. gamanleikurinn „Landa- brugg og ást eftir Riemann og Sclnnartz. Er leikurinn staðfærð- ur hingað, en leikendur eru flest- ir úr leikskóla frú Ingibjargar Steinsdóttur, er stjórnaði leiksýn- ingunni og lék auk þess eitt hlut- verkið. Alls eru hlutverkin 10. Fara flestir hinna nýju leikenda mjög sæmilega með hlutverk sín og mætti segja mér, að Leikfélagi Akureyrar ætti eftir að bætast þar nýir kraftar. Vil ég þar sérstak- lega nefna Aka Eiríksson, skýr og hressilegur í tali, Bjarna F. Finn- bogason, kírainn og næmur fyrir broslegu, Lilja Hallgrímsdóttur, hressilega og ákveðna, Hrein Jón- asson, trúan og öruggan í leik sínum, og Sæunni Gunnarsdóttur, blált áfrain og eðlilega á sviði. Hins vegar „yfirdreif“ Guðm. I. Magnússon leik sinn á Ingjaldi landabruggara, sérstaklega í hreyfingum, og leikur Ragnheið- ar Kristjánsdótlur var mjög lit- laus, enda hlutverkið lítið. Jón Ingimarsson fór kímilega með hlutverk elliærs læknis, Rósberg Snædal skilmerkilega með hlut- verk lögregluþjóns og auðvitað setti leikur leikstjórans sinn svip á leiksýninguna. Dálítið bar á þvi, að leikendur kynnu enn ekki „rullurnar“, og tafði það leikinn nokkuð. Enn verður að átelja gróflega óstund- vísi (20 mín.), sem virtist ekki sýningargestum að kenna. því að þeir kornu í tæka tíð. Ahorfendur virtust skemmta sér vel. enda þótt leikurinn sé ans til að hljóta aukna velmegun á lífsleiðinni, en ekki vegur fárra útvalinna til valda og áhrifa í þjóðfélaginu, sjálfum þeim til yndisauka og auðsöfnunar. Því hljóta það að verða af- mælisóskir alþýðu manna til þessara afmælisbarna, er hér ræð- ir um, að þau verði ætíð minnug hins eina rétta hlutverks síns, að bæta lífsafkomu landsmanna, og gæti þess að láta sterka aðstöðu og mikil áhrif ekki afvegaleiða sig á götur hrokavalds, því að enn standa í fullu gildi spakmæli Hraínkelssögu Freysgoða, að „skömm er óhófs ævi“ og „dramb er falli næst“. harla vitlaus og til einskis annars ætlaður en vekja hlátur. Að lok- inni leiksýningu bárust leikstjóra blóm. Að öllu samanlögðu verður að teljast „borga“ sig að sjá þennan leilc, sérstaklega með það fyrir augúm að horfa á þá nýju krafta, sem þarna er teflt fram. Kvenfél. Alþýðuflokksins é Akureyri hélt aðalfund þriðjudaginn 12. þ. m. í Túngötu 2. Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfmidarstörf. — Stjórnina skipa nú: Guðrún Árna- dóttir, formaður, Hlín Jónsdóttir, varaformaður, Þorbjörg Gísla- dóttir, ritari, Anna Helgadóttir, gjaldkeri, og Soffía Gunnlaugs- dóttir, meðstjórnandi. — I vara- stjórn: Helga Daníelsdóttir og Hanna Hallgrímsdóttir. Endur- skoðendur voru kjörnar Svan- borg Jónasdóttir og Hanna Hall- grímsdóttir. Á fundinum þakkaði formaður Jensínu Loftsdóttur, sem verið hefir gjaldkeri félagsins frá stofn- un þess fyrir finnn árum, fyrir inikið og gott starf í þágu félags- ins, en hún baðst undan endur- kosningu í þetta sinn. — Á fund- inurn var samþykkt, að félagið héldi bazar um mánaðamótin marz—apríl og skyldi allur ágóð- inn renna til nýja spítalans. Eru félagskonur hvatlar til að undir- búa sig með að geta látið eitthvað af munum á bazarinn. ___*____ LEIKKVÖLD M.A. Hinar árlegu leiksýningar nem- enda Menntaskólans á Akureyri munu að forfallalausu hefjast í þessari viku eða næstkomandi íöstudagskvöld. Leikfélag M. A. sýnir að þessu sinni hinn sprenghlægilega skop- Ieik Spanskflugan eftir Arnold & Bauh, og hefir það sýnt hann áð- ur fyrir 9 árum síðan við mikla aðsó'oi þá og ánægju leikhús- gesta. Eins og vant er eru nemendurn- ir sem leika uppteknir mjög við nám sitl og verður því reynt að hraða leiksýningum eftir mætti. Er því vissara fyrir Ieikhúsgesti, sem sjá ætla leikinn. að fara sem fyrst. Leikfélag M. A. hyggst að hafa barnasýningar, eina eða fleiri, á sunnudagseflirmiðdögum við vægu verði. Leikstjóri er Jón Norðfjörð, leikari. Rataðist Morgunblaðiim rétt á nmnn? í 5. tbl. Alþýðumannsins, þann 5. þ. m. birtust glefsur úr Morg- unblaðinu og Tímanum. Hélt Morgunblaðið því fram, að spani- aðarandi Tímans varðandi utan- ríkisþjónustuna ykist eða minnk- aði, eftir því hvort Framsókri ætti mann á taflborðinu eða ekki. Ætti hún engan, væri vandlæting sparnaðarpostulanna í hámarki, en ætli hún hrókinn á borðinu, væri vandlætingin í núlli. ■ Tíminn svaraði þessum „sví- virðingum“ sárreiður. Sagðist hafa gert það eitt að gagnrýna „ýinislegl óhóf í utanríkisþjón- ustunni og þó einkum hinar miklu utanferðir í sambandi við meira og minna þýðingarlausar ráð- stefnur.“ Og síðar segir blaðið: „Eitt af því, sem Tíminn hefir átalið ér för utanríkisráðherrans við fjórða mann á fund Atlants- hafsbandalagsins í Róm í haust.“ Nú er Bjarni enn farinn á einn slíkan fund við fjórða mann lil Lissabon í Portugal. Fjórði mað- urinn er Eysteinn Jónsson, fjár- málaráðherra, enda hneykslasl nú Tíminn ekkerl á fundarmanna- fjöldanum. Kannske að Morgun- blaðið liafi sagl það salt, að mik- ilvægi alþjóðlegra funda fari í augun Tímans eftir því, hvort Framsóknarmaður situr þá eða ekki? Aheit á Sjómunnadaginn frá ónefntiri konu kr. 30.00. Með þökkum móttekið. • Eggert Olafsson. því, að hún á að vera tæki fjöld- ImdaliriM n dst Leihstjóri frú Steinsdóttir

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.