Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 04.03.1952, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 04.03.1952, Blaðsíða 1
XXII. árg. Þriðjudagur 4. marz 1952 9. tbl. Frá bæjarstjórn: Dróttarbroiitin leígi, rdðinn sliHMiðKtjóri og tnejnr- verkstjóri. Á fundi bæjarstjórnar Akur- eyrar, 26. febrúar sl., lágu ýmis mál til afgreiðslu. Skulu þessi talin: 1. Kosning slökkviliðsstjóra og lóðaskrárritara. Tveir umsækj- endur voru um starfið: Ásgeir Valdemarsson, verkfræðingur, og Móses Aðalsteinsson, verkfræð- ingur. Hlaut Ásgeir kosningu með 9 atkvæðum (allra nema Alþýðu- flokksmanna) en Móses 2 atkv. 2. Kosinn bæjarverkstjóri. Fjöldi umsókna barst. Hafa áður verið nefndir hér í blaðinu flestir þeirra, en til viðbótar höfðu bor- izt umsóknir frá Bjarna Rósants- syni, múrarameistara, Ágúst Jóns- syni, byggingameistara. Axel Jó- hannssyni, Hafsteini Halldórs- syni, Páli Jónassyni, Hró- arsdal, Skagafirði. Kosningu hlaut Carl Tulinius með 6 atkv. (Framsókn, Sjálfstæði nema Ei- ríkur Einarsson). Þorsteinn Svan- laugsson fékk 2 atkvæði. 3 seðlar voru auðir. 3. Samþykkt að taka tilboði Landsbankans á Akureyri um húsnæði fyrir skrifstofur bæjar- ins til 5 ára fyrir 3.300.00 kr. á mánuði. Tillaga frá Steindóri Steindórssyni um það, að bærinn færi þegar á næsta ári að leggja fé til tdiðar með byggingu yfir skrifsíofurnar fyrir augum, var samþykkt samhljóða. 4. Samþykkt, að vinnumiðlun- arnefnd skyldi úthluta bæjarvinnu eftir þörfuin án tillits til þess. í hvaða verkalýðsfélagi á staðnum vimniumsækjandi væri. Hins vcg- ar sitji meðlimir V. A. að öðru jöfnu fyrir vinnunni, og ófélags- bundnir vinnuumsækjendur gangi þegar í V. A.. vilji þeir hljóta vinnuna. 5. Samþykktir 1. og 2. liður ályktunar smáibúðarnefndar (eru birtar á öðruin stað i blaðinu). Frestað 3. lið. Felldur 4. liður. Byggingafulltrúa falið að gera uppdrætti samkvæmt 2. lið og uppdrátt að 6—3 íbúðahúsi, sam- kvæmt 5. lið, en ákvörðun um þann lið að öðru íeyti frestað. 6. Fjórðungsstjórn fiskideilda i Norðlendingafjórðungi leyfð lóð undir fyrirhugaðan sjóvinnu- skóla sinn við Laufásgötu. næstu lóð nórðan' við Gróttu. 7. Leyfðar breytingar á húsum Byggingafélags Akureyrar við Eyrarveg að fengnu leyfi skipu- lagsnefndar ríkisins. 3. Samþykkt með 6 atkv. að semja við Skafta Áskelsson, Her- luf Ryel, Þorstein Þor6teinsson og Utgerðarfélag KEA um leigu á dráttarbraut bæjarins um næstu 5 ár. (Framsókn, kommúnistar og. Eiríkur Einarsson). Finim bæjar- fulltrúar (Alþýðuflokksmenn og 3 Sjálfstæðismenn) vildu taka til- boði Gunnars Jósefssonar og Atla h.f. Tilboðin voru annars 3, svo- hljóðandi samkvæmt bókun hafn- arnefndar: „1) Kristján Nói Kristjánsson. Fyrir síðasta bæjarstjórnar- fundi lá svohljóðandi tillaga, er Árni Þorgrímsson hafði borið fram í atvinnumálanefnd og hún einróma verið samþykkt: „Atvinnumálanefnd Akureyrar- bæjar hefir á fundi sínum 13. febrúar 1952 samþykkt eftirfar- andi ályktun til bæjarstjórnar Ak- ureyrar: Nefndin telur að tunnusmíðið hér á Akureyri, eins og það \ar rekið hér í fyrra, og útlit sízt betra í vctur, sé ekki til úrbóta at- vinnulega, bæði vegna þess, hve Iítið er smíðað og eins hitt, hve erfiðlega gengur að fá efnið fyrr en komið er langt fram á vetur. Nefndin vill þvi beina því iil bæj- arstjórnar Akureyrar, hvort ekki mundi hægt að auka íunnusmiði hér á Akureyri, ef bæjarstjórn tæki að sér tunnusmíðið fyrir sama verð og sannanlegt er að tunnur kosta á Siglufirði (vinna og raforka). Nefndin hefir hugsað þetta í stórum dráttum þannig: Síldarútvegsnefnd leggur til efni í minnst 30 þús. tunnur. Skal efnið komið fyrir jól, svo að hægt sé að hefja smíði strax úr áramót- Býður hann kr. 75 þús. ársleigu og leigutími 5 ár, eða þann leigu- tíma er um semst. 2) Gunnar Jósefsson og Atli h.f. Bjóða þeir 102 þús. kr. í árs- leigu og leigutími sé 5—10 ár. 3) Skafli Áskelsson, Herluf Ryel, Þorsteinn Þorsteinsson og Útgerðarfélag KEA h.f. þannig: a) Leigutími sé 10 ár og byrji 1. marz 1952. Ársleiga er kr. 70 þús., meðan aðeins einn vagn er til afnota, kr. 90 þús. meðan tveir vagnar en engir hliðargarðar eru til afnota. Þegar þar að auki eru komin stæði fyrir 4 skip eða fleiri kr. 100. þús. b) Lágmarksleiga kr. 80 þús. og auk þess 50r/c af upp- og fram- sátursgjöldum og slippleigu, sem fer yfir 80 þús. kr. árlega.“ Það var þetta tilboð, sem sex- menningarnir í bæjarstjórn völdu. Auk þess hafði KEA og félagar boðið bænum 200 þús. kr. lán til byggingar á verkstæðishúsi við dráttarbrautina, en Gunnar og Atli h.f. buðust hins vegar til að byggja húsið undir forsögn hafn- arnefndar án annars framlags frá bænum en dráttarbrautarleiguna. * um. Akureyrarbær leggur til vinnukraft og rafmagn og smíðar tunnurnar fyrir sama verð og á Siglufirði. Síldarútvegsnefnd auki og endurnýi vélar verksmiðjunn- ar svo að þær verði sambærileg- ar og á Siglufirði. Unnið verði á tveimur vöktum -— um 30 manns á sólarhring. Nefndin telur þessa leið þá helztu til að tryggja íunnu- smíði hér sem atvinnubótavinnu yfir vetrarmánuðina, og vill því mælast til að háttvirt bæjarstjórn Akureyrar athugi þessar iillög- ur. Vilji bæjarstjórn fallast á þessa tillögu nefndarinnar, telur nefnd- in æskilegt, að bærinn geri tilboð nú þegar um að smíða úr því efni, sem nú er hér á staðnum og bjóði Síklarútvegsnefnd að smíða fyrir ákvæðisverð pr. tunnu (vinna og rafmagn) miðað við að hús og vélar séu í starfhæfu ásigkomulagi.“ Bæjarstjórn vísaði málinu til bæjarráðs til nánari athugunar. * Arsþing I.B.A. verður sett í íÞrótta- húsinu annað kvöltl, 5. marz, kl. 20.20. Fulltrúar eiga að niæta með kjurbréf. Tillaga atvinnumálaneíndar Akureyrar varðandi tunnusmíðina. Úr leiksýningu M. A. á Spanskflugunni. Barnahór Ahureyrar hélt samsöng sl. sunnudag í Nýja- Bíó undir stjórn Björgvins Jörg- enssonar. Var húsfyllir og söngn- um ágætlega tekið, enda söng- stjórinn kunnur að vandvirkni og smekkvísi. Viðfangsefnin voru eftir Björgvin Guðmundsson, Áskel Snorrason, Friðrik Einarsson, Inga T. Lárusson, Sigfús Einars- son, Þorvald Blöndal, Bjarna Þorsteinsson. Björgvin Jörgens- son, J. P. Stuntz, Mozart, Ra- decke, J. S. Bach svo og ítalskt þjóðlag. Einsöngvarar voru Arn- gr.'mur Jóhannsson, 11 ára, Bald- vin Bjarnason, 11 ára, og Jakob Jakobsson, 14 ára. Við hljóðfær- ið var Lena Ruckert 12 ára. Ágóðinn af skemmtuninni rann til greiðslu á hinu nýja hljóðfæri Barnaskólans. ME!RI BJARTSÝNI gætir nú unt línuveiðar en áður. Er það einkum tvennt, sem ræður þar mestu um: víkkun landhelg- innar á næstunni og hinar nýupp- teknu línuveiðar á nteira dýpi. Með stækkun landhelginnar og friðun fjarða og flóa fyrir botn- vörpuveiðum standa vonir til, að fiskur aukisl mjög við strendur landsins, eins og gcrði á stríðsár- ununii þegar fiskistofninum virt- ist ekki ofboðið með veiðurn. Með stærri landhclgi og beinunt grunn- línum verður líka auðveldara að verja landhelgina og lílið urn að villast. Ættu þessar ráðstafanir að draga úr veiðunt útlendinga hér við land og ýta undir, að þeir stundi meira önnur mið. Er því engan veginn víst, að víkkun land- helginnar verði til þess að bitna eins hart á íslenzkum botnvörpu- veiðum og virzl gæti i fljótu bragði. — (Viðir.) sýnir Spanshftuguna Leikstjóri Jón Norðfjörð. Síðastliðinn föstudag hafði Leikfélag Mennlaskólans á /Vkur- eyri frumsýningu sína á gaman- leiknum Spaiislcflugan eftir Arn- old og Bach. Hefir Jón Norðfjörð æft lcikinn og eru enda suinir leikendanna í leikskóla hjá hon- um. Allir eru leikendurnir úr M. A., en hlutverk eru 12. Var leikn- um ágællega tekið, enda vel æfð- ur, gekk hratt, hófst stundvíslega og er skemmtilega vitlaus, eins og þeir þckkja, sem áður hafa séð þennan leik. Danshljómsyeil M.A. lék nokkur lög áður en leikur hófst og eins á milli þátta. Ágæt hljómsveit, cf hún „jassaði“ ögn minna svona í leikhúsi. Að leiknum loknum voru leik- endur og lcikstjóri hylltir með dynjandi lófataki og bárust leik- stjóra blóm. Af leikendum er sérstök ástæða til að benda á leik þeirra Gurmars Gunnlaugssonar og Indriða Eiri- arssonar, báðir Siglfirðingar, en fleiri skiluðu þarna vel hlutverk- um sínum svo sem Herdís Egils- dóttir frá Húsavík og Erna Her- mannsdóttir frá Siglufirði, og enginn illa. Er litill vafi á, að leiksýningar M.A. verða vel þegn- ar af bæjarbúum nú eins og jafn- an fyrr.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.