Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 29.04.1952, Page 1

Alþýðumaðurinn - 29.04.1952, Page 1
XXII. árg. I’riðjudagur 29. apríl 1952 17. tbl. fup\|dumaoumtx Réttindasyiptirínn í V. A. Deilan við stjórn Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar stendur fyrst og fremst um það, hvort ákveða eigi rétt- indi félagsmanna að lögum eða aðeins með einföldum fundarsamþykktum. 1. maí Næstkomandi fimmtudag held- ur verkalýðsstétt allra landa enn einu sinni 1. maí hátiðlegan til að minnast unninna sigra sinna í baráttumálum verkalýðsins og til að taka stefnumið á ný takmörk, nýja sigra í hagsmuna- og menn- ingarmálum sínum. Ef menn svipast yfir íarinn veg, frá því að 1. maí varð fyrst baráttudagur verkamanna fyrir bættum kjörum, getur enginn, sem ann umbótum, annað en fyllst aðdáun og hrifningu af árangri verkalýðssamtakanna, en sú aðdáun og hrifnmg má þó aldrei slæva áhugann fyrir meiri umbótum, heldur verða hvöt til nýrra dáða. Því miður verður ekki hægt að segja, að bjart verði um að litast fyrir íslenzkan verkalýð 1. maí í ár. Atvirina hefir verið með lang- rýrasta móti í vetur víða um land, svo að margur kemur með skuld á baki fram til sumarvinnu, en aðrir með tóman mal og pyngju. Atvinnuhorfur eru líka enn óráðnar og meiri óvissa nú en oftast áður um það, livar helzt verði atvinnu von. Þó er þetta ekki það versta. Hið versta er það, að óstjórn rík- ir í landi og enn heíir verkalýð- ur landsins ekki fundið styrk sinn í órofa samstöðu fyrir bætt- um kjörum. Enn halda of margir verkamenn, að kommúnisminn sé lausnari þeirra úr viðjuni örðug- leika, og meðan svo er, skorlir verkalýðinn þann Ófeigs hnefa, sem vissulega er ætíð þörf á að geta lagt á borðið fyrir framan Guðmund rika. en aldrei þó meir enn nú. Það er þarflaust að blekkja sjálfan sig á því, að til fjölda ára hafa verkalýðssamtök Islands verið í niðurlægingu félagslega séð og um forystu þjóðmála. Þau hafa verið veil og hálf vegna póli- lískra hjaðningavíga og liafa þar af leiðandi brugðizt því hlut- verki að miklu að þjálfa fram mikilhæfa forystumenn, sem hafa útsýn yfir fjalllendi jafnt sem flatlendi. Hirm óbreytti verka- maður hefir því ýmist misst eða aldrei öðlazt trú á samtök sin nema þá í þrengsta verkahring jieirra þ.e. kaup- og kjarasamn- inga, en verkalýðssamtökin ættu vissulega að starfa á miklu breið- ari grundvelli en svo, m.a. vera áhrifaríkur aðili um atvinnumál landsbúa. En þessi hálfleiki verður ekki læknaður með „sameiningu“ hins ósamrýmanlega: kommúnistiskr- í siðasta tbl. Verkamannsins er löng grein eftir Jóhannes Jósefs- son, varaformaim Verkamannafé- lags Akureyrarkaupstaðar, þar sem hann leitast við að réttlæta þau lögbrot og það gerræði fé- lagsstjórnarinnar að svipta 17 meðlimi kosningarétti og kjör- gengi á grundvelli einfaldrar fé- lagssamþykktar, enda þótt hin sama félagssamþykkt væri svo orðuð, að augljóst er, að fylgj- endur hennar töldu hana iillögu til lagabreytingar á næsta aðal- fundi. Það hefir lengi verið álit ýmsra verkamanna hér í bæ, að Jóhann- es Jósefsson væri hyggnasti kommúnistinn í V. A. Margir voru líka þeirrar skoðunar. að hann mundi koina í veg fyrir. að „félagi“ Björn, „félagi“ Hösk- uldur og „félagi" Þórir reyndu að framfylgja gerræði stjórnar- innar, þegar sýnt væri, að henni vrði ekki þolað það. En á síðasta félagsfundi í V. A. mun trúin á ,sanngirni“ Jóhannesar hafa alotið andlátið og með síðasta Vrn. mun álitið á hyggni Jóhann- 3sar hafa lagzt að fullu á bakið. 5vo furðuleg er sú ritsmíð, eins ig eftirfarandi sýnishorn ber rr ofríkisstefnu, sem m.a. telur 'angabúðir og þrælkun fanga éttmætt fyrirkoinulag innan stjórnarkerfis síns. og hinnar ’ýðræðissinnuðu jafnaðarstefnu. 51íkt er tómt mál að tala um. Qg 'ivar er í rauninni sá lýðræðis- rinni staddur andlega séð, sem 'elu r sig geta tekið með bróður- hug í hönd manns, er telur fanga- búðaþrælkun t. d. Rússa góðra gjalda verða og sjálfsagða? Nei, við eigum að gera 1. maí að samemingardegi verkalýðsins um sanna lýðræðisstefnu, sem krefst mikils fyrir fylgjendur sína, en krefst einnig mikils af þeim. Við eigum að stíga á slokk og strengja þess heit, að gera verkalýðshreyfinguna að voldugu þjóðfélagsafli, sem fyrst og fremst ráði málum íslenzka ríkis- ins í heilbrigðu og heiðarlegu samstarfi við önnur samtök vinn- andi fólks í landinu. vitni um (seinni leturbr. Alþm.): „Eina röksemdin, sem þessir menn (andstæðingar stjórnarinn- arj höfðu fram að færa, var sú, að samþykktin um að setja fé- lagana á aukaskrá, væri brot á lögum félagsins, þó að þeir gœtu ekki bent á neina grein, sem brot- in vœri, aj þeirri einföldu ástœðu, að lögin hvorki leyja þetta né banna það. Var málflutningur sundrungarmanna rækilega tætt- ur sundur af þeim Birni Jónssvni, Jóhannesi Jósefssyni, Rósberg Snædal, Þóri Daníelssyni og Ing- ólfi Árnasyni. sern sýndu jram á, að þessar ráðslajanir vœru ekki aðeins HEIMILAR SAMKV. LOGUM félagsins, sem og lögum A. S. I. og vinnulöggjöfinni, held- ur og sjálfsagðar Lil þess að fé- lagið sé áfram eins og það var við' stofnun, hreinl stéttarfélag verkamanna.“ Takið eftir samræmi kempunn- ar: Fyrst segir hún, að lög fé- lagsins hvorki leyfi né banni rélt- iudasviptinn, svo segir hún, að hann sé ckki aðeins heimill sam- kvæmt lögum félagsins, heldur og lögum A. S. I. og vinnulöggjöf- inrii! Höfuðröksemdir J. J. eru ann- ars þessar: 1. Réttmætt var að svipta 17- menningana kosningarétti og kjörgengi af því að það er gert samkvæmt tillögu nefnd- ar, sem andstæðingar mínir áltu meiri hluta í. 2. Lög félagsins hvorki leyfa né banna að svipta meðlimina ' kosningarétti eða kjörgengi. 3. Mótmæli gegn réttindasvipt- inum eru að engu hafandi. þar sem aðeins 35 undirrituðu mótmælin. 4. Hinir 17 voru sviptir kosn- ingarétti og kjörgengi, svo að félagið verði áfram eins og þpð var hreint stéttarfélag verkamanna. 5. Réttindasviptirinn hlýtur að \e.ra réttmætur fyijst þeir, sem kæra harin, fara ekki í mál út af honmn, heldur kæra hann til stjórnar A. S. í. 6. Aðgerðir stjórnar V. A. eru i samræmi við lög A. S. í. og .vinnulöggjöfina! Við skulum nú í bróðcrni íara yfir stafrófskver Jóh. Jósefsson- ar með honum. Við „rök“ nr. 1 gleymir hann tvennu: Nejndin gerði tillögu sína sem tillögu til lagabreyting- ar á nœsta aðaljundi og lagði á það höfuðáherzlu, að framkvæmd þeirrar nýju lagagreinar yrði óhlutdræg. Allir vita, að íillagan er ekki enn orðin að lögum, og allir þekkja, að í framkvæmd stjórnarinnar hefir henni verið misbeitt í þokkabót þannig, að sumir hafa EKKI verið settir á aukaskrá, sem þar eiga að standa, rf tillagan verður einhvern tíma að lögum. Þá má benda á þá broslegu röksemdafærslu J. J„ að stjórn V. A. . liljóti að hafa gert rétt, fyrst hún sé að framkvæma nú þegar i vor tillögu til lagabreyt- ingari að vetri, gerðri af nefnd, sem andstæðingar sínir hafi átt meiri hlula í! Þó að Alþýðu- maðurinn beri eins og J. J. vissulega meira traust iil dóm- gremdar andslæðinga hans en sjálfs hans, þá mun hann leyfa sér að halda hiklaust fram, að lögum V. A. verði að hlíta um fé- lagsmál þess, hvenær sem aðrar samþykktir fara í bága við þau. Varðandi ,,rök“ nr. 2 er það að segja, að J. J. fer þar með vís- vitandi blekkingar. Samkvæmt núgildandi lögurn félagsins er ekki hægt að svipta löglega fé- laga réttindum nema þeir hafi gerzt atvinnurckendur í svo stór- um stíl, að þeir geti haft áhrif á kaupgjald eða lengd vinnutíma, hafi liakað félaginu tjón eða vanza eða ekki lilýtt lögum, fé- lagsins. Enginn liinna 17, sem sviptir voru réttindum, falla und- ir ofangreint nema einn, sem orð inn er atvinnurekandi. Var hann því sjálffarinn úr félaginu hvort eð var. „Rök“ nr. 3, að mótmæli 35 félaga séu ekki gild, verða harla léttvjig hjá J. J„ fyrst hann vill láta fundarsamþykkt 15 fundar- manna gilda sem lög, og þarf ekki að eyða orðum að slíku. „Rök“ nr. 4 virðast nokkuð seinfundin hjá J. J„ þegar það er rifjað upp, að hann sat sjálfur hinn fastasti í V. A„ þegar hann var verzlunarmaður, annar kol- lega hans var hvort tveggja í senn um skeið í V. A. og fram- kvæmdarstj. Pöntunarfél. Verka- lýðsins. E!nn af fyrrverandi for- mönnum félagsins tók flest ef ekki öll formannsár sín laun sam- kvæmt launasamþykkt bæjarins Framhald á 3. síðu. Aðalfuadur AlþýOuf lohhs- félags Akurejrrar Síðastliðinn föstudag hélt Al- þýðuflokksfélag Akureyrar aðal- fund sinn. Fráfarandi formaður, Sigurður M. Helgason, rakti starfsemi félagsins sl. starfsár, gjaldkeri, Stefán Þórarinsson, las reikninga félagsins og ritstjóri Alþýðumannsins, Bragi Sigur- jónsson, flutti skýrslu um rekst- ursafkomu blaðslns. Voru reikn- ingar félagsins og Alþm. sam- þykklir athugasemdalaust. Fráfarandi formaður, Sigurð- ur M. Helgason, og ritari, S!gurð- ur Kristjánsson, báðust báðir undan endurkosningu, og féll stjórnarkjör þannig: ' Aðalstjórn: Bragi Sigurjónsson, form. Þorst. Svanlaugsson, varaform. Sigurður Halldórsson, ritari Stefán Þórarinsson, gjaldkeri Stefán Snæbjörnsson, meðstj. Varastjórn: Halldór Friðjónsson, ritari Erlingur Friðjónsson, gjaldk. Arni Þorgrímsson, meðstj. Endurskoðendur: Jón Hmriksson, Stefán Ág. Kristjánsson, Trúnaðarráð: Steindór Steindórsson Friðjón Skarphéð!nsson Bragi Sigurjónsson Þorst. Svanlaugsson Sigurður Halldórsson Stefán Þórarinsson Stefán Snæbjörnsson Albert Sölvason Erlingur Friðjónsson Árni Þorgrímsson Halldór Friðjónsson Jón M. Árnason Sigurður M. Helgason Stefán Árnason Hafsteinn Halldórsson. Til vara: Sigurður Kristjánsson Ilöskuldur Helgason Hallgrímur Villijálmsson Alfred Möller Stefán Ág. Kristjánsson.

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.