Alþýðumaðurinn - 29.09.1953, Page 4
4
ALÞfÐUMAÐURINN
ÞriSjudagur 29. september 1953
lafnaiorineim og mstri
urinn innu i við kosningarnar
r
I
Jafnaðarmenn langstærsti flokkurinn
Síðastliðinn þriðjudag fóru
fram almennar þingkosningar í
Danmörku, þær fyrstu eftir hinni
nýju stjórnarskrá landsins, sem
danska þingiö samþykkti endan-
lega síðastliðið vor. Auk þess sem
erfðalögum dönsku konungsætt-
arinnar var breytt, voru aðal-
breytingarnar þær, að danska
þingið er nú ein deild og kosn-
ingaaldur lækkaði úr 25 árum í
23 ár. Voru nú um 2.8 milljónir
manna fleiri á kjörskrá en nokkru
sinni fyrr. Alls skipa 179 þing-
menn danska þingið, 135 kjör-
dæmakosnir í Danmörku og 40
uppbótarmenn, 2 fulltrúar Fær-
eyinga og 2 Grænlendinga.
Á síðastliðnu vori fóru fram
þingkosningar í Danmörku í
sambandi við stjórnarskrárbreyt-
inguna, en þar áður var síðast
kosið 1950. Flokkaskipting eftir
vorkosningarnar var þessi:
Jafnaðarmenn 61 þingm. (836.507 atkv. 1950
Vmstri menn 33 þingm. (456.896 atkv. 1950
íhaldsmenn 26 þingm. (358.509 atkv. 1950
Róttækir 13 þingm. (178.942 atkv. 1950
Kommúnistar 7 þingm. ( 98.940 atkv. 1950
Róttækir 8 þingm. (116.288 atkv.
Þýzki minnihl. 1 þingm. ( 8.438 atkv.
813.224)
438.188)
365.236)
167.969)
94.523)
)
)
Auk þessara flokka bauð nú nýr
flokkur fram, Óháðir, undir for-
ustu hins gamla foringja vinstri-
flokksins, Knud Kristensens.
Þar sem kosið var nú um fleiri
þingmenn en fyrr og fleiri kjós-
endur á kjörskrá en áður, hefði
aukning flokkanna á þingmönn-
um frá vorkosningunum að ó-
breyttum hlutföllum átt að verða
þessi:
Jafnaðarmenn 71 þingm.
Vinstri menn 39 —
íhaldsmenn 31 —
Róttækir 15 —
Réttarsambandið 10 —
Kommúnistar 8 —
Þýzki minni hlutinn 1 —
Úrslit urðu hins vegar þessi:
Atkv. Þm.
Jafnaðarmenn 895.038 74
Vinstri menn 499.975 42
íhaldsmenn 365.270 30
Róttækir 168.794 14
Réttarsambandið 75.201 6
Kommúnistar 93.706 8
Þýzki minnihlutinn 9.734 1
Óháðir 58.522 engan
Jafnaðarmenn krefjast nú
stjórnarforystu, enda langstærsti
flokkur þingsins, en undanfarið
hafa vinstri menn og íhaldsflokk-
urinn farið með minnihlutastjórn
í Danmörku.
Er þoi til of ihils mœlit!
Upploætur á mjólk-
urn rá anknai*
Verðhækkanir á skyri, rjóma og ostum
Meirihluti bæjarróðs vildij
ekki setja það sem slcil-j
yrði fyrir malartekju úr
rafstöðvarlóni Glerór í
flugvöllinn nýja, að bif-
reiðarstjórar í bænum
sætu fyrir vinnunni.
Nýlega hefir flugmálastjórnin
farið þess á leit við Akureyrarbæ,
að hann heimili henni að taka
möl úr stíflulóni Glerárrafstöðv-
arinnar til að aka ofan á sand-
uppfyllingu flugvallarins, sem nú
er í byggingu rétt innan við bæ-
inn. Jafnframt er vitað, að
flugstjórnin hefir óskað tilboða
frá bifreiðastöðvuin bæjarins um
aksturinn, en þó látið í það
skína, að hún gæti látið eigin
bíla annast akstur þennan.
Þegar haft er í huga, að und-
anfarna vetur og jafnvel aðra
árstíma hefir verið atvinnuleysi
hjá vörubílstjórum hér og ýmiss
konar afturkippur er í eðlilegum
vexti bæjarins, ennfremur að
bærinn hefir á allan hátt reynt
að mæta óskum flugmálastj órnar-
innar um fyrirgreiðslu og jafnvel
lánveitingar til flugvallagerðar-
innar — sem hér skal sízt átalið
— virtist það ekki nema sjálfsagt,
að bærinn reyndi að tryggja ak-
ureyrskum b.'lstjórum ofannefnda
atvinnu með því að setja það sem
skilyrði fyrir malartekjunni, að
þeir sætu fyrir vinnunni. Svo und
arlega brá þó við, þegar mál þetta
var til afgreiðslu í bæjarráði, að
meirihluti þess felldi að setja
þetta skilyrði fyrir malartekj-
unni.
Eftir er að sjá hvað bæjar-
stjórn gerir í dag.
40 þúsund hr. ó hjli
Sameiningarnefnd Akureyrar
og Glerárþorps hefir gert fyrir-
spurn til Rafveitu Akureyrar,
með hvaða kjörum hún vilji láta
rafurmagn til 8 bændabýla í
Kræklingahlíð, sunnan Lóns og
Ásláksstaða. Rafveitustjóri hefir
áætlað koslnað raflagna heim að
HiESti hósetol)lutnr ó
oi.l). (oróori
Hann var 19.551 króna
með orlofsfé.
Hæsti hásetahlutur á síldveið-
unum í sumar mun hafa verið á
m.b. Garðari, Rauðuvík, eign
Valtýs Þorsteinssonar, útgerðar-
manns, og fleiri. Með orlofsfé
varð hluturinn kr. 19.551.00 á
síldveiðunum, en úthaldstíminn
mun hafa verið sem næst 2Vá
mánuður. Veiðarnar voru stund-
aðar með hringnót og meginhluti
aflans saltaður.
Skipstjóri var Friðþjófur
Gunnlaugsson, Gránufélagsgötu
57, Akureyri.
Til samanburðar má geta þess,
að hásetahlutur á b.v. Jörundi,
aflahæsta skipi síldveiðiflotans
varð kr. 14.744.72, reiknað á
sama hátt, en Snæfellinu, öðru
aflahæsta skipinu, rétt um 14
þúsund krónur.
Ýmsir eiga högg í
annars garði
Þegar Alþýðumaðurinn sagði
frá myndun hinnar nýju ríkis-
stjórnar, í síðasta tölublaði, urðu
þau mistök á, að í leiðara blaðs-
ins, sem ritaður var áður en ná-
kvæm verkaskipting ráðherra var
kunn, var Ingólfur Jónsson frá
Hellu sagður fara með rafur-
magnsmálin. Þetta láðist að leið-
rétta í leiðaranum, þó að verka-
skiptingin væri kunn áður en
blaðið var prentað, en kom að
því leyti ekki að sök, að rétt var
frá verkaskiptingu skýrt á for-
síðu.
Þessu flaustri skopaðist ritstj.
íslendings réttilega að í næsts.ð-
asta tölublaði íslendings. En svo
klaufalega tókst hins vegar hon-
um sjálfum upp í sama tölublað-
inu, að sízt var betra. Hann skýr-
ir þar frá uppstyttu, sem orðið
hafi á kærleiksheimili bæjar-
stj órnarmeirihlutans í Vest-
mannaeyjum og fer þar bæði
rangt með nöfn manna og full-
trúaskipun flokka í bæjarstjórn
og hvernig þeir skiptust um á-
greiningsmálið: sölu annars bæj-
artogarans úr Eyjum.
Enn verr tekst þó ritstjóranum
í síðasta tölublaði. Þar leggur
hann út af því í hálfs dálks grein,
að nýlega hafi 2 menn verið
dæmdir í 3 mánaða fangelsi fyrir
að hafa orðið manni að bana í
gáleysi (ölvaðir). Dómurinn
hljóðaði upp á 3 ár og mátti lesa
það í hverju Reykj avíkurblað-
anna sem var.
Ilitt er svo annað mál, að vér
erum ritstjóra íslendings sam-
mála að öðru leyti í þeirri grein,
að glæpi á ekki að afsaka með
„fylliríi“.
húsvegg býlanna samtals 400.000
kr. og leggur til, að býlum þess-
um sé gefinn kostur á rafmagn-
inu gegn 40 þús. kr. framlagi
hvers og ábúendur þeirra sjái auk
þess um gröft á stauraholum.
Samkvæmt' verðlagsgrundvelli
landbúnaðarafurða hefir mjólk-
urverð hækkað til framleiðenda
um 10 aura lítrinn. Hefir verið
ákveðið, að ríkissjóður greiði
sjálfur hækkun þessa og mun hún
nema um 2.4 milljónum króna á
ári. Alls nemur þá uppbót r'kis-
sjóðs á hvern mjólkurlítra til
bænda 96 aurum, en það mun
samsvara um það bil 23 milljóna
króna útgjöldum úr ríkissjóði. Sú
upphæð er svo aftur tekin af al-
menningi með tollum og skött-
um.
Hins vegar hækkuðu allar
mjólkurafurðir nema smjör í
verði frá og með 23. september
síðastliðnum.
3—4% hækkun.
Ilækkun mjólkurafurðanna er
sem hér segir:
Skyr hækkar um 15 aura kíló-
ið í kr. 5.85.
Rjómi hœkkar um 75 aura lítr-
inn í kr. 24.90.
Mjólkurostur 40% hœkkar um
70 aura kílóið í kr. 24.80.
Mysuostur hœkkar um 45 aura
kílóið í kr. 11.45.
Smjör hækkar hins vegar ekki
e!ns og áður segir, enda liggja nú
í landinu óseldar smjörbirgðir,
sem nema um 3000 tonnum.
^ðáturtíðarþánkar
Roskinn verkamaður hringdi í
ritstjóra Alþýðumannsins síðast-
liðinn sunnudag til að spjalla um
daginn og veginn, og ekki er í.
frásögur færandi. En meðal ann-
ars leiddi hann talið að þv', að
forsjálum verkamanni hefði fyrir
stríð þótt sjálfsagt að birgja sig
nokkuð upp á haustin með haust-1
mat og fleira og helzt greiða
húsaleigu til áiamóta. Þetta var
eins konar öryggisráðs öfun gegn
atvinnuleysi vetrarmánaðanna.
Verkamaður með meðalfjölskyldu
bjó þá vísast í haginn fyrir sér
með eftirgreindum innkaupum,
um leið og hann innti neðan-
greind gjöld af höndum:
kr.
100 kg. kjöt 110.00
20 slátur 60.00
2 tn. karlöflur 50.00
3 tonn kol 120.00
Fiskur og korn 50.00
Útsvar og skattar 160.00
Húsaleiga í 3 mánuði 150.00
Sam'als kr. 700.00
Þetta var afrakstur 467 vinnu-
stunda miðað við verðlag og
tímakaup 1939.
Vilji verðamaður með sömu
fjölskyldustærð og aðstöðu haga
sér eins nú um innkaup og
greiðslur, lítur dæmið svona út:
kr.
100 kg. kjöt 1650.00
20 slátur 980.00
2 tn. kartöflur ca. 580.00
3 tonn kol 1600.00
Fiskur og korn 500.00
Skattar og útsvar 2500.00
Húsaleiga í 3 mánuði 1500.00
Samtals kr. 9.290.00
Nú tœki þannig 641 vinnustund
að vinna fyrir samsvarandi út-
gjöldum og 467 tíma, tók að
vinna fyrir 1939.
Þó að þetta dæmi kunni í ein-
hverju atriði að þykja hæpið, er
það í höfuðdráttum rétt, sagði
verkamaðurinn. — Kaupmáttur
launa hejir rýrnað síðan 1939.
Ég vil líka benda á, bætti hann
við, að þeir munu fáir nú verka-
mennirnir hér á Akureyri, sem
hafa 9290.00 kr. til góða eftir
sumaratvinnuna, hafi þeir fyrir
meðalfjölskyldu að sjá. Sé svo
haft í huga, að kröfur fólks til
1 fsins hafa stórum aukizt síðast-
liðinn ára'ug, getur hver gert sér
í hugarlund líðan þess verka-
manns á haustnóttum, sem horfir
fram á alvinnuleysi yfir vetrar-
tímann hafandi marga munna að
seðja, sagði hann að lokum.
Frii Alújóðasambandinu
Framhald af 2. síðu.
enda eða annarra afla, sem and-
stæð eru hagsmunum verkalýðs-
ins.
Þingið vill auk þess beina at-
hygli almenningsálitsins um
heim allan að hinni miklu nauð-
syn þess að almenn mannrétt-
indi njóti fullkominnar virðing-
ar, þar eð kúgun þessara réttinda
af hálfu hvaða ríkis sem er,
hindri eðlilega þróun lýðræðis og
framfara um heim allan.
Reyktur silungur
úr Mývatnssveit.
Kaupfél. verkamanna
Nýlenduvörudeild.
MroMóli Ahureyrar
verður settur 1. október næstkomandi kl. 2 e. m.
Akureyri, 28. september 1953.
Skólastjórinn.