Alþýðumaðurinn - 07.12.1954, Page 2
ALÞÝÐUMAÐURlNN
ÞriÖjudagur 7. desember 1954
ALÞÝÐUMAÐURINN
Útgefandi:
Alþýðujlohksfélag Akureyrar.
Ritstjóri:
BRAGI SIGURJ ÓNSSON
Bjarkarstíg 7. Sírai 1604.
VerS kr. 30.00 á ári.
Lausasala kr. 1.00 blaðið.
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.j.
Gleðirík ummæli
Ef til vill telja flestir, að eigi
beri svo mjög að henda á loxti
né taka hátíðlega ummæli, sem
um munn líða á vígsluhófum. Þó
er það nokkuð eftir því, hver
mælir og hvaða stöðu hann skip-
ar.
Það gat því varla hjá því far-
ið, að sérstaka athygli vektu og
ánægju ummæli, sem Eysteinn
Jónsson, fj ármálaráðherra, hafði
um hönd að Hólel KEA s. 1.
sunnudag í boði, sem bæjarstjórn
Akureyrar hafði þar inni í tilefni
af opnun Akureyrarflugvallar.
Ráðherrann hóf mál sitt með því
að segja, að hann teldi sig ekki
svartsýnan mann, enda þótt sum-
ir vildu koma því orði á sig, af
því að hann hefði ekki ætíð nóg
fé í ríkisfjárhirzlunni til allra
framkvæmda, sem óskað væri eft-
ir. En svo færi sér jafnan, er hann
kæmi til Eyjafjarðar. að sér ykist
bjartsýni, því að sér virtist hér
mjög ánægjulega og staðfastlega
að framkvæmdum unnið, jafnt í
héraði og bæ, og nefndi til þess
hinn blómlega búskap í héraðinu,
en togaraútgerðina, framkvæmdir
samvinnuhreyfingarinnar og
sjúkrahússbygginguna hér í bæn-
um, — að ógleymdri Laxárvirkj-
uninni — svo að dæmi væru tek-
in. Fyndist sér á fám stöðum aug-
ljóslegar birtast slaðfesting þess,
að strj álbýlið og þéttbýlið væru
hvort öðru til halds og trausts og
í Eyjafjarðarhéraði.
Síðan vék ráðherrann máli
sínu að verkefnum, sem næst
lægju fyrir hendi og nejndi þar á-
framhaldandi rafvœðingu byggð-
arlaganna við fjörðinn og bygg-
ingu hraðfrystihúss í bænum og
fullkomins fiskiðjuvers.
Sagði ráðherrann, a'S
allir aðilar yrðu að
sameinast um að koma
því mikla nauðsynja-
máli bæjarins í höfn,
en þar hefir einmitt
ríkisvaldið, og þá ekki
sízt fjármálaráðherra,
mikið að segja.
Þar sem Eysteinn Jónsson, fjár-
málaráðherra, hefir ekki það orð
á sér að vera gjarn á að lofa upp
í ermina s'na, en þykir einmitt
fylgja málum fast fram, ef hann
telur þau eiga fram að ganga, þá
hljóta þessi ummæli hans að
vekja sérs'aka athygli Akureyrar-
búa og þykja verulega ánægjuleg
og gleðirík meðal allra þeirra
mörgu, sem telja einmitt hrað-
frystihúsmálið mál málanna hér
í dag.
Bókin, sem
allir tala um
kostar aðeins kr. 58.00
í bandi.
1
I
|
1
i
I
A
I
a
1
NYKOMIÐ
Gluggatjaldaefni
Rúmteppi
Dívanteppi
o. m. fl.
Kaupfélag
verkamanna
Vefnaðarvörudeild.
0RÐSE1VDING
til biíreiðaeigenda og ökumanna bifreiða
Umferðaslysin eru orðin mikið vandamál. Þau verða árlega fjölda
manna að bana og enn fleiri meiðast meira og minna. Flest umferðaslys or-
sakast fyrir ógætilegan akstur og önnur brot á umferðareglum.
íslenzk bifreiðalög og tryggingarskírteini hafa að geyma sérstök ákvæði,
er miða að því, að ökumenn fari gætilega og skal sérstaklega bent á eftir-
farandi:
1. Samkvæmt 36. gr. bifreiðalaganna hafa tryggingafélögin rétt til að
krefjast endirrgreiðslu á tjónabótum hjá tryggingartaka eða öðrum
vátryggðum, ef tjón eða slys verður sakir stórkostlegrar óvarkárni
ökumanns eða af ófullnægjandi viðhaldi bifreiðar.
2. Samkvæmt kaskotryggingaskilmálum tryggingafélaganna, eru
skemmdir, sem verða á bifreiðum vegna stórkostlegrar óvarkárni
ökumanna, undanskildar ábyrgð félaganna. Auk þess mega félögin
draga allt að 25% frá skaðabótunum, ef vátryggði veldur tjóni
fyrir óvarkárni, sem þó ekki má telja stórkostlega.
1
Tryggingarfélögin hafa ekki beitt þessum ákvæðum til fulls, en vegna
hinna stórauknu tjóna, sem orðið hafa undanfarið, munu félögin sjá sig til-
neydd að beita þessum ákvæðum.
Bifreiðastjórar ættu því að gera sér það ljóst, að þeir geta sjálfir borið
stóra áhætlu, enda þótt bifreiðir þeirra séu tryggðar, ef þeir sýna mikla
óvarkárni í akstri.
Votrygg jendur
Mikið af góðum og nytsöm
jólagjöfnm
handa konum, körlum,
unglingum og börnum.
Komið. Skoðið. Kaupið!
Kaupfélag verkamanna
TILKYNNING
Þeir, sem hafa undir höndum undirskriftalista um uppsögn
herverndarsamningsins, eru beðnir að skila þeim til einhvers
undirritaðra nefndarmanna fyrir næstkomandi miðvikudags-
kvöld 8. þ. m.
I framkvæmdanefnd undirskriftasöfnunarinnar.
Anna Helgadóltir. Einar Kristjánsson. Magnús Alberts.
V efnaðarvör udeild
TILKYNNING
Nr. 4, 1954.
til innflytjenda.
Frá og með 1. desember ber öllum innflytjendum vefnað-
arvöru og fatnaðar, að skila verðúlreikningi til skrifstofunn-
ar, eða trúnaðarmanna hennar utan Reykjavíkur, áður en
sala hefst.
Reykjavik, 30. nóvember 1954.
Verðgæzlustjórinn.
jOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO»9<»OOOOOOOOOCOOOO«
Frif FjórðtiniissjÉraÉsiii
Akveðið hefir verið að leita tilboða í eftirtaldar húseignir:
a) Ganila sjúkrahúsið með nyrðri viðbyggingu.
b) Ganginn milli gamla sjúkrahússins og nemabústaðar.
Tilboð má gera í eignirnar allar saman eða einstakar
byggingar.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum.
Tilboðin sendist skrifstofu Fjórðungssjúkrahússins fyrir
15- desember næstkomandi.
Símaskráin
Þar sem verið er að prenta Símaskrá Akureyrar, eru þeir
símanotendur, sem óska að koma að breytingum við síma-
skrána, beðnir að tilkynna mér það skriflega fyrir 5. þ. m-
Símastjórinn.
- Auglýsið í Alþýðumanninum -