Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1934, Blaðsíða 7

Dýraverndarinn - 01.12.1934, Blaðsíða 7
DÝRAVERNDARINN 59 sem honum þótti vera til meins. Var oft gaman a'Ö sjá, hve natinn hann var vi'Ö þetta. Hins vegar tók hann sjaldan upp hjá sjálfum sér aö reka úr brekkunum, en geröi þaö tafarlaust og honum var sagt það. I framhaldi af þessu vörzlustarfi þykir hlýöa aö geta um fleira, er sanna þótti vitsmuni Hauks. Á þeim tíma, sem fénaður mátti ganga á túnun- um, kom það vitanlega oftsinnis fyrir á meÖ- an engar vóru girðingar, að fénaður úr vesturbæn- um leitaði inn á mitt tún. En Haukur leið engum stórgrip úr vesturbænum stundinni lengur að grípa niður á mínu túni, og jafnvel þótt um hávetur væri. Rak hann þá miskunnarlaust vestur á þeirra tún, og dugði engum að setja sig upp á móti vilja hans. Var oft skemtun góð að horfa á, er hann var að skilja þessa gripi frá mínum. Sama var og að gegna, er aðrir afbæjar stórgripir, t. d. frá Eyvindarmúla, komu hér heim á tún; þá rak hann eitthvað austur með fjalli. En um sauðfé stóð honum á sama, og virtist ekkert hirða um hverjir áttu. Og þó að hestum gesta minna væri slept á túnið, beizlislaus- um, amaðist hann ekki við þeim og lét þá sjálf- ráða. Mjög var Haukur mér fylgispakur, einkum heima við, en elti mig þó sjaldan er eg fór að heiman ríðandi. Mun ástæðan sú, að eg bannaði honum það í fyrstu, svo að hann vendist síður á bæjaflakk. En í hvert sinn, sem eg fór gangandi að heiman og eitthvað á aðra bæi, fanst honum sjálfsögð skylda að fylgja mér. Og annað haustið, sem eg átti hann, rak eg með honum sláturfé til Reykjavíkur, og svo upp frá þvi á hverju hausti í mörg ár, og dugði hann jafnan ágætlega. í fyrstu ferðunum fylgdi hann mér eftir á meðan eg dvaldi í Reykjavík. En svo var það haust eitt, er suður kom í Sláturhúsið, að okkur var tilkynt, rekstrarmönnunum, að Reykja- víkurbær hefði gert samþykt um að banna alla um- ferð hunda á götum höfuðstaðarins, en jafnframt trygt þeim sveitarökkum, sem erindi áttu til bæj- arins, örugga geymslu inni í Tungu. Þangað fór eg svo með Hauk, og bað fyrir hann á meðan eg dveldi í bænum. Var það mál auðsótt. Þegar eg svo, að nokkurum dögum liðnum, var ferðbúinn, vitjaði eg hundsins, en var þá sagt, að hann hefði sloppið úr gæzlunni, ásamt fleiri hund- urn og ekki náðst aftur. Lét eg i ljós, að mér þætti þetta lítt viðunandi, þar sem mér hefði verið heitið Haukur. því, að hundurinn skyldi geymdur á öruggum stað. En sá,sem hundanna átti að gæta, fór þá að afsaka sig, og jafnframt gefa í skyn, að ef hundurinn hefði verið skotinn, mundi eflaust koma fyrir harm eitthvert verð, einhvers staðar frá. Svaraði eg því stuttlega, að mér þætti það lítils virði, og engin afsökun fyrir hirðuleysi gæzlumanns. Varð eg að láta mér þetta lynda, án þess að geta fengið neitt frekar að vita um afdrif hundsins. Hélt eg svo heim- leiðis og var í þungu skapi. En er heim kom, hýrn- aði yfir mér er eg sá, að þar var Haukur fyrir og fagnaði mér með nokkurum drýgindum, eins og hann vildi gefa í skyn, að heim hefði hann kornizt án minnar hjálpar og tilhlutunar. Eftir því, sem fullyrt var í Tungu, höfðu hundarnir sloppið út að aflíðandi nóni á miðvikudegi, en næsta morgun (fimtudags) vöknuðu heimamenn í Múlakoti skömmu fyrir rismál við það, að kvatt var dyra og fylgt fast eftir. Þegar komið var ofan stóð Hauk- ur fyrir dyrum úti og gaf til kynna, að nú væri hann matarþurfi. Þótti hann og taka ósleitilega til matar síns, enda hafði hann, eftir því sem næst var komizt, runnið í einum áfanga 130 km. á 14— 15 klukkustundum. En Haukur kunni illa þeirri ráðstöfun valdhaf-

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.