Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1938, Blaðsíða 5

Dýraverndarinn - 01.09.1938, Blaðsíða 5
Dýravinir og dýrapyndingar. Þótt ólíklegt megi viröast, gera ýrnsir clýravinir sig seka um dýrapyndingar, sökum þess, hve þekk- ing þeirra á náttúrunni og' á eöli skepnanna er af skornum skamti. Margir dýravinir valda uppáhalds- skepunum sínurn hinna verstu óþæginda, af því þeir lifa í þeirri trú, að alt, sem þeirn er sjálfum ljúft og til þægðar, hljóti einnig að eiga viö dýrin, sem þeir hafa undir hendi. — Ekkert er algengara, en aö eigendur hunda, einkurn konur, láti jafnan við hverja máltíö undan snikjum tryggasta hús- dýrsins síns. Nú er þaö í sjálfu sér mjög skaölegt, aö offóðra skepnur, hvað þá, ef sætindi eru þeirn óhóflega í té látin. í því ganga börnin lengst, launa þau einmitt hvert afrek hinna mállausu leikbræöra sinna með sykurmolum, og sælgæti. Þó aö þetta sé alt af góðum huga gert, þá er heilbrigði skepnunn- ar stofnað í hættu meö ]?essu. Viö megum aldrei gleyma því, að hundurinn er i eðli sínu rándýr, kjötæta, svo að sykur er fjarri því aö vera eöli- leg fæöa handa honum. Villihundar snerta alls ekki við sætindum, þar segir örugg eðlishvöt til sín. Hjá tömdum hundum er eölishvötin aftur á móti oft tekin að sljófgast. Það er ]?vi skylda okkar, að aftra þeim frá þeim hlutum, er heilbrigði þeirra er búin hætta af. Sannarlega er það ömurleg sjón, aö sjá stælta og rennilega hunda breytast smám sam- an í kjagandi, másandi og blásandi mörvamba, sjálf- um þeim til kvalar og eigendunum til skapraunar. Stundum kemur það fyrir, að konur stökkvi ilm- vötnum á hunda sína, til þess að verja þá ódaun. Einuig ]>aö er hrein pynding fyrir skepnuna. Ilm- efni þau, sem hafa þægilega angan fyrir okkar smekk, valda hundunum illkynjaðrar ertingar og viðþolslauss kláða, og séu ilmvötn notuð á lumd- ana að staðaldri, eyðileggja þau þefvísi nefsins, sem er eitt hið mikilvægasta skynfæri þeirra. Hver sá, er séð hefir hund hlaupa ýlfrandi í felur, er hann kom auga á ilmvatnsflöskuna, getur gert sér nokkra hugmynd um, hversu heppileg þessi meö- ferð á þeim er. — Hér ber einnig aö vara við notk- un dropa eða dufta til útrýmingar á skordýrum, nema að ræöa sé um lyf, sem sérstaklega eru til þess ætluð. Öll slík lyktarsterk efni hafa hin verstu áhrif á hundana og valda þeim rneiri óþægindum heldur en nokkrar flær. — Það er einnig hin versta pynding fyrir dýrin, ef þau eru höfð að staðaldri inni í herbergjum, þar sem mikið er reykt. Hin við- kvæmu öndunarfæri dýranna eiga örðugt með að veita viðnám hinum skaðlegu áhrifum nikótínsins. — I>að er og versta hefndargjöf, er nrenn strá mol- um af nýju, blautu brauði út á gaddinn í því skyni, að gefa smáfuglunum eitthvað í svanginn. Afleið- ingin er sú, að meltingarfæri fuglanna sýkjast af þeirri fæðu, er þeir eru ekki færir um að melta. Veslast þeir síðan upp og deyja hinum kvalafyllsta dauða í einhverjum afkima. Skal g'efa þeim sér- staklega útlrúið fuglafóður, sem fæst i búðurn, eða ])á moðsalla. Þessi fáu framanskráðu atriði sýna, lrve merki- legt ]>aö er, aö kynnast eðli og uppruna dýranna okkar. Þekkiiig okkar á eðli hvers dýrs kennir okk- , ur, hvernig þa'ð verði verndað á réttan hátt. (Lausl. þýtt úr: Das Tiermagazin.)

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.