Dýraverndarinn - 01.09.1938, Qupperneq 6
34
DYRAVERNDARINN
Dýraverndunarfélag
r
Islands.
Frá aðalfundi og skýrsla stjórnarinnar.
Þriíijudaginn 3. maí 1938 var haklinn aðalfundur
Dýráverndunarfélags íslands i Varðarhúsinu við
Kalksofnsveg, samkvæmt fundarboði með kortum
til félaganna, dags. 26. f. m.
Fundurinn hófst kl. 21.
Fundinum stýrði formaður félagsins, Þórarinn
Kristjánsson hafnarstjóri, og fundarritari var Lud-
vig C. Magnússon, ritari félagsins.
Áður en gengið var til dagskrár mintist formaður
látinna félaga á starfsárinu, en þeir eru þessir:
i leiðursfélagi Ólafur Ólafsson, frikirkjuprestur.
Æfifélagi jes Zimsen, kaupmaður.
Félagi Daníel Daníelsson, varaform. Dvf.
Fundarmenn risu úr sætum sínum í minningu um
liina látnu félaga.
Þá var gengið til dagskrár. Reikningar félags-
ins, d'ryggvasjóðs, Minningarsjóðs Guðlaugs Tóm-
assonar, Minningarsjóðs jóns Ólafssonar Iranka-
stjóra og Ártíðaskrá dýranna lágu fyrir fundinum.
Höfðu þeir fyrst verið endurskoðaðir af löggiltum
endurskoðendum og síðan af hinum félagskjörnu
endurskoðendum, og ekkert fundist við þá að at-
huga. Las formaður upp reikningana og skýrði ein-
staka liði þeirra. Voru þeir síðan samþyktir um-
ræðulaust.
Skudlaus eign félagsins við áramót var krónur
15.587.^4. Þá var Tryggvasjóður kr. 85.816.78,
Minningarsjóður Jóns Ólafssonar bankastjóra kr.
2.400.00, Minumgia'rsjóður Guðlaiugs Tómassonar
kr. 687.75 og Ártíðaskrá dýranna kr. 57-59-
Skýrsla formanns.
Þá gaf formaður skýrslu um hi'ð helsta er gerst
hafði á hinti liðna starfsári.
Gat formaður þess, að á árinu hefði verið haldn-
ir alls 10 Irókaðir stjórnarfundir, ]>ar sem stjórnin
hefði tekið til meðferðar mál þau, sem fyrir hefðu
legið, og athugað framkomnar kærur. Af kærum
þeim, sem stjórninni bárust, vildi formaður geta
tveggja. Vor önnur á hendur dönskum manni, er
leigði sér hesta til fcrðalags um landið, og mis-
beitti þeim svo, að hestarnir voru allir stórskemd-
ir eftir ferðalagið, og suma þurfti að aflífa að ferð-
inrii lokinni. Ifkki verður hér um kennt vanþekk-
ingu erlends manns, því að með danska mannin-
um voru tveir íslendingar, fylgdarmaður og ferða-
félagi. Stjórn félagsins kærði þessa þokkapilta
og sættust tveir þeirra upp á 200 kr. sekt hvor,
en sá þriðji mun biða dóms í málinu. ÞaÖ er illt
til þess að vita, að íslendingar skuli ekki geta haft
vit fyrir sjálfum sér, hvað þá öðrum, um meðferð
reiðhesta á löngum ferðalögum, en misþyrma þeim
með böðulslegri notkun, eins og hér átti sér stað,
til stundargleði fyrir sjálfan sig.
Hin kæran Irarst stjórninni frá ensku dýravernd-
unarfélagi út af óhæfilegum aðbúnaði útflutnings-
hrossa um borð i Dettifossi í ágústferð skipsins til
Englands. Stjórnin lét kæruna ganga til lögreglu-
stjórans í Reykjavík, sem tók skýrslu í málinu, og
sendi því næst stjórnarráðinu til frekari aðgerða;
mun kærumál þetta enn óútkljáð. Fullyrða má, að
þó að enn hafi eigi tekizt að koma ábyrgð á hend-
ur réttum hlutaðeigendum út af misþyrmingu hest-
anna í Dettifossi, þá hafa þó afskifti Dýravernd-
unarfélagsins af því máli gjört mikið gagn, með
því að vekja menn til umhugsunar um liina ó-
hæfilegu meðferð á útflutningshrossunum. Stjórn
félagsins samþykti að ráða sérstakan mann til
þess að hafa eftirlit með útflutningi hrossa fyrir
félagið á komandi sumri, og reyna að koma í veg
fyrir ])að hirðuleysi, sem átt hefir sér stað hingað
til um þá hluti.
Eftirlit með slátrun hefir verið með líku móti
og undanfarin ár. Sérstakur maður hefir haft dag-
legt eftirlit með slátrun í Reykjavík og Hafnar-
firði, og athugað umbúnað á biluni þeim, sem flytja
féð. Eftirlitsstarf þetta hefir haft mjög mikla þýð-
ingu og má nú fullyrða, áð öll meðferð á slátur-
fé á þessum stöðum hafi gjörbreytzt, og sé nú í
sæmilegu standi. Eftirlitið var nokkuð aukið á ár-
inu; tveir menn úr stjórn félagsins, þeir Björn
Gunnlaugsson og Sig. Gíslason, fóru eftirlitsferð
norður í land og komu við i 13 sláturhúsum, 3 i
Borgarnesi, 1 á Borðeyri, 3 á Hvammstanga, 3 á
Blönduósi og 3 á Sauðárkróki. Athuguðu þeir allan
umbúnað i sláturhúsum á þessum stöðum, ræddu
við forstöðumenn sláturhúsanna og hvöttu til mann-
úðlegrar meðferðar á sláturfénu. Þess skal með
þakklæti getið, að landbúnaðarráðherra veitti fé-
laginu 150 kr. styrk til eftirlitsstarfseminnar og