Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1945, Page 9

Dýraverndarinn - 01.02.1945, Page 9
DÝRAVERNDARINN 3 Eigi reyndist Steinn bóndi sannspár um, að KoIIa mundi aldrei eignast lamb. Var skammt liðið á fyrsla vor liennar í Saurbæ, er faðir minn þóttist viss um, að liún væri með lambi. Þá voraði óvenjulega vel, svo að ærnar lágu úti og var Ivolla því með þeim, Rölti eg dag- lega við þíei- um sauðburðinn og bafði á þeim nákvæmar gætur. Svo var það einu sinni árla morguns, að eg var staddur á svo néfndri Fanndalabrún upp frá Saurbæ. Sá eg þá, livar Ivolla lá undir steini einum og bafði tekið lambsótt. Hún varð mín ekki vör og gat eg læðst svo nærri henni, að eg sá, að karslæmska var á henni en ekki farið að sjá á lambið. Og þar sem eg vissi engin þess dæmi, að ær eða fóstur befði neitt illl af því, þótt ær með lambsótt væri rekin spölkorn í liægðuin sínum ef eklci væri farið að sjá á lambið, þá ákvað eg þegar að reka Kollu beim. Þá var klukkan tíu árdegis, er eg bafði látið Kollu inn og bjóst við, að bún mundi bera bráðlega. En nú varð raunin önnur, og leið dagurinn svo og kveldið, að hún bar ckki. Var ])á föður minum ekki far- ið að lítast á blikuna. Mestan liluta nætur vakli eg og leit öðru liverju til Kollu. En þar var enga breyting að sjá og var bún óborin um morguninn. Gerðist þá faðir minn órólegur og ætlaði að láta sækja yfirsetukonu, sem þó var nokk- urum vandkvæðum bundið, ])ví að bvort tveggja var: að ])angað var eigi svo skammt að fara og yfir Fljótaá að sækja, sem þá var í miklum vexli vegna leysinga. Eg liafði innt að því við föður minn að lofa mér að lála Kollu út um morguninn, þvi að ekki hafði hún lilið við lieyi, og var það þó ekki valið af verra endanum, sem henni var boð- ið. En faðir minn var tregur til þess, liéll að eg mundi tapa af henni. Þó leyfði hann að lokum, að liún væri látin út á túnið ef hún vildi bíta, en fór sjálfur að ná hesti. Eg tók nú Kollu og fór höndum um hana mjög nákvæmlega, en það hafði faðir minn harðbannað mér. Fann eg brátt, að engin fæðingarhindrun mundi bjá Kollu eða lambi hennar, og sleppti henni á túnið. Fór þá eigi dult, að hún var mjög þjökuð orðin. Rölti LAPPI sómir sér vel þarna á húströppunum. — Mynd- ina sendi Gunnlaugur H. Guðmundsson á Litlu- Völlum, Bárðardal. bún þó af slað í liægðum sínum og stefndi fram og upp i fjallið. Laumaðist eg á eftir benni, en gætti þess, að hún yrði mín ekki vör. Undir svo nefndum Stórliól lagðist Ivolla niður og fæddi von bráðara fyrsta lambið silt, livítan hrút, fríðan og föngulegan. Heils- aðist báðum vel, og þegar eg yfirgaf bana nálægt nóni, bét eg þvi, að hún skyldi ekki ónáðuð að óþörfu framvegis, er hún leitaði á brott til þess að bera. Og það efndi eg trú- lega. Hún liafði i þetla sinn fært mér og öðr- um heim sanninn um það á eftirminnilegan hátt, að ekkert væri henni ríkara í skapi en að mega ráða sjálf ferðum sínum. Sjálfri sér treysti hún bezt og vildi engum lúta. Hún naut líka upp frá því meira frjálsræðis en nokkur önnur kind, sem eg liefi haft undir höndum. Þessi fyrsti lnútur hennar var eina lambið af þrettán, sem hún álli, er markað var að vordegi, enda var hún aldrei upp frá því rúin að vorinu. Næsta vor varð siðbúið og fé býst fram yt'ir sumannál, en beitt um daga. Þá var það kveld eitt, er vika var af sumri, að Svart- Kolla var horfin úr fénu og tvær ær með lienni. Þá var enn mikil fönn í fjöllum, svo að eigi var um annað að gera en leita þær uppi. Komst eg brátt á slóð þeirra og rakti

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.