Dýraverndarinn - 01.02.1960, Blaðsíða 8
KISA
Eftir Guðmund skáld Guðmundsson
(Birtist í Dýravininum 1907, ásamt myndinni, sem hér lylgir)
Þegar illa á mér lá
og ornuðu tárin hvarmi,
til mín komstu, kisa grá,
og kúrðir mér að barmi.
Ekki’ eru’, að visu, öll þín hljóð
eftir réttum nótum,
en þau koma kcer og góð
frá kattarins hjartarótum.
Mér finnst enginn efi á því,
þótt aðrir vilji’ ei triía,
að kattarþeli þinu i
þöglar ástir búa.
Margir segja, að söngur þinn
sé af verra tagi.
Þú hefur samt i sál mér inn
sungið dýra bragi.
Bezt þú skilur börnin smá,
sem bera þig sér á örmum,
við þau mjúkt þú malar þá
og mcenir á þau i hörmum.
Mig hafa glatt þín Ijóðin löni
og látið tárin þorna,
er þú kvaðst þinn kattarsöng
kát um bjarta morgna.
Þegar loksins líkaminn
leggst að köldum baðmi,
kýs ég að vera, ltisi minn,
köttur i meyjarfaðmi!
8
DÝRAVERNDARINN