Dýraverndarinn - 01.02.1960, Blaðsíða 12
Gosí á Guniiarsfelli
Fallinn 6. okt. 1954
Ungur lékstu oft við stýrið,
elskulega veiðidýrið.
Grafinn ertu að Gunnarsfelli,
Gosi minn, í hárri elli.
Frjáls við mýsnar fékkstu að bisa,
fyrst svo ung og lítil kisa —,
reyndust þér í reisu hverri
rottur bæði stærri og verri.
Það var eins og augun skildu
orðin mín og hlýðnast vildu.
Kynstofn þinn var gegn og góður,
gáfaður og veiðihljóður:
Konu liarmur hefur vaknað,
hundar geta líka saknað —:
grandvarir að grafreit þínum
ganga þeir í hægðum sínum.
Gosi glaftur og hress.
Enginn frið í útlegð setti —
eins var það hjá rakka og ketti:
Bróðurandinn aldrei napur,
ætíð góður félagsskapur.
Meta skal ég þjónslund þína,
þar til mínir kraftar dvína.
Litli Gosi, laus við sýki
lifðu heill í dýraríki.
Jósef S. Húnfjörð
orti í orðastað Kristínar Stefánsdóttur.
lím Mývatn
Dýraverndarinn liefur frétt, að bæði náttúruvernd-
arráð og veiðimálastjóri liafa nú þungar áhyggjur
af því, að bæði silungsveiðinni í Mývatni og fugla-
lífinu í kringum það og á því sé hætta búin af hin-
um miklu netalögnum Mývetninga. En þar er all-
vandgert við að sporna, því að áætlað er, að Mývetn-
ingar hafi haft undanfarið hvorki meira né minna en
einnar milljón króna tekjur á ári af veiðinni í vatn-
inu og geti þeir alls ekki lifað mannsæmandi lífi,
nema þeir hafi miklar nytjar af silungnum, svo fjöl-
býlt sem orðið er í sveitinni.
Náttúru- og dýraverndarmenn vilja fá netaveiði
bannaða með öllu yfir ungatímann — og þá eink-
um júlímánuð. En slíku banni verður ekki komið
fram, samkv. lögum um veiði, nema til komi sam-
þykki tveggja þriðju allra þeirra bænda, sem eiga
veiðirétt í vatninu, en talið er, að tekjur af veiðinni
séu að meðaltali 40—50 þúsund krónur á hvern
slíkan bónda, og mest er veiðin um liásumarið. Ann-
ars er hún talsvert misjöfn ár frá ári, og er það skoð-
un fróðra mann, að mergð og magn mýgangna orki
mjög á viðkomu og vöxt silungsins. Er til dæmis tal-
ið, að mikið tjón sé að því, að vormý bregðist.
Dýraverndaranum er tjáð, að um veiði í Mývatni
gildi nú raunverulega engar reglur, en veiðimála-
stjóri vill beita sér fyrir, að eftirfarandi reglur verði
settar:
„1. Mývatn skal vera friðað fyrir allri veiði frá
27. september til 31. janúar ár hvert og auk þess 24
klukkustundir vikulega, frá miðvikudagskvöldi kl.
20 til fimmtudagskvölds kl. 20., á tímabilinu frá 1-
april til 26. september.
12
dýraverndarinn