Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1929, Síða 8

Dýraverndarinn - 01.05.1929, Síða 8
34 DÝRAVERNDARINN „— — — Þér fariÖ nærri um kringumstæður mínar og tóm það, sem eg hefi nú í 12 ár haft til andlegra starfa. Og nú finnst mér rétt, að eg segi y'Sur nánar í fám dráttum um hagi mína, stutt ágrip af því, sem liðið er af ævinni. Eg er fædd 26. júni 1891. Átta ára gömul yfirgaf eg foreldra- húsin, fór út í veröldina, snauð að ytri efnum, með það eitt i veganesi, sem arfgengi og uppeldi ráð- vandra og góðra foreldra hafði látið mér i té. Hjá fósturforeldrum mínum var eg 13 ár, allvel haldin. Líkami minn hafði í sig og á, en sálin var sífelt hungruð og þyrst eftir meiri fróðleik, en almenn barnafræðsla þeirra tíma hafði að bjóSa. Prófessor Sig. P. Sívertsen fermdi mig vorið 1906. í kaupa- vinnu fór eg að heiman, og hafði jafnframt í hyggju að reyna að efnast, svo að eg gæti aflaö mér meiri upplýsingar um eitthvað af öllu því, sem þráin stóð til, en það var býsna margt, og því úr vöndu að ráða. Andstæður toguðust á um yfirrá'öin, annars vegar þörfin á að afla mér verklegrar kunnáttu, svo að eg gæti unnið sem bezt fyrir mér, og þeim megin á reipinu voru uppeldisáhrifin, sem kenndu og áminntu um, að „bókvitið yrði ekki í askana lát- ið“, en svo hins vegar brennandi þrá til bóknáms, söngs o. fl. Þrjú ár var eg svo hér og þar og safn- aði kaupi mínu og afurðum af nokkrum ám, sem eg hélt allt af í og keypti niður. Síðast var eg hjúkrunarkona, og féll sá starfi mjög vel. „Hver er sinnar hamingju smiður", en Danir bæta því við, að tilfellið smíði með, og svo vildi mér reynast. Eg veiktist hastarlega og lá rúmföst sex vikur, með meiri ofsahita en dæmi eru til, að nokkur hafi lifað af. Ekkert var unnt að gera. Prófessor Guðm. Thor- oddsen*) gaf enga von um líf. Grafið hafði í höfð- inu. Loks vann æska og meðfædd hreysti þó sigur. Eg komst á fætur, lömuð á sál og líkama. í leg- unni fékk eg aldrei óráð, enda beið minnið stórkost- legt tjón. Allt, sem eg hafði ætlað til að mennta mig fyrir, gekk til þess að leita mér strax lækningar, sem þó varð árangurslaust. Tólf ár þjáðist eg af sífelldum verk í höfði og graftrarrennsli ofan í kverkarnar. Af þessu öllu, ásamt vökulagi yfir börnum mínum, var eg alveg að missa sjón. Fór því suður til Rvík- ur til lækningar. Gunnl. Einarsson gerði á mér miðs- nesisuppskurð, og fékk eg fulla bót — reyndist nef- Ijrotin, og gróf uppi í höfðinu. Bæði sjón og sans- ar fá þá aldrei að fullu bætt sitt tjón. Haustið 1917 giftist eg Valdimar Jóhannessyni, hálfbróður Einars Sæmundsens. Við byrjuðum bæði efnalaus búskap inni í reginheiði. Um það finnst mér, að eg gæti ritað langa bók — ef tóm væri til. Við eigum 7 börn. Þér getið nú víst reiknað dæmið. Eg mun hafa sett það allskýrt upp fyrir yður. — ■— •— Eg vona, eftir ])ví sem likur benda til, að eg eigi hér i uppvexti 7 dýravini, þó að lítið hafi eg unnið fyrir dýrin — minna en eg hefði óskað. Sjaldan er næði, hugurinn sljór og lamaður á hverju kvöldi. Ljóðin yrki eg við vinnu mina, og læri jafnóðum, til að Ijjarga ]Deim frá glötun. Mest eru það lausa- vísur. Ein er á þessa leið: Markið háa horfi’ eg á, — hika má ei við að ná -—: Unga þrái’ eg sjö að sjá svífa’ í bláinn hreiðri frá. -------— Þorgils gjallandi var sjúklingur minn í Húsavík veturinn 1915, og vorum viS heztu vinir, þrátt fyrir 40 ára aldursmun. — — •— Eg missti mikið, þegar hann dó. Nú hefi eg engan að flýja til, er sett geti út á fyrir mér, — engan, sem eg geti reitt mig á að fullu, hvað dómgreind og óhlut- drægni snertir. — — •—“ * * * Meðal þess, sem Dýraverndaranum hefir borizt frá Guðfinnu Þorsteinsdóttur, er þessi Vorvísa. Senn kemur vorið sunnan, sól vermir dali’ og hóla, lækir með ærslum leika létt um grænkandi sléttu. Hygginn sér hreiður byggir hrafninn í klungrum jafnan. Lóur í laufga móa leggja dröfnóttum eggjum. *) Hann var þá læknir í Húsavík,

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.